Í vinnunni í gær var maður sem leit nákvæmlega út eins og Sean Connery. Í vinnunni í dag var maður sem leit nákvæmlega út eins og Orlando Bloom. Hef ég það að sönnun fyrir því að tímarnir verða aðeins verri.
Í lok vinnudagsins þurfti ég að afgreiða mann sem leit út eins og fífl. Þegar hann [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 30, 2005 – 19:04
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá sem ég afgreiddi í versluninni í dag má telja á fingrum annarrar handar. Það gefur tilefni til þakklætis gagnvart veðuröflunum. Vona mín vegna að stormurinn haldist yfir helgi. Svo er líka svo notalegt að standa í hlýjunni heima hjá sér og horfa út í bylinn, jafnvel með tebolla um hönd.
Í lok vinnudagsins keypti ég [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 28, 2005 – 20:47
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Maginn er lykillinn að hjarta mannsins, hefur oft verið sagt. Kannski það sé þess vegna sem pör í tilhugahugleiðingum eru síétandi á veitingastöðum, kannski þau séu að reyna að éta í sig ástina?
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 28, 2005 – 15:08
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er ömurlegt veður úti. Akkuru?!
Í öðrum fréttum ætlar Anders Fogh að reyna að hindra allar tilvonandi hryðjuverkaárásir í Danmörku. Það sé ég fyrir mér nokkurnvegin svona: Nej! De har sprængt pølsevognen! Hvor i helvede var fænden han Anders Fogh da terroristerne kom til vores fantastiske by?! Ahm, jeg snakkede med dem og de sagde [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 28, 2005 – 13:14
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hugsið ykkur morðingja með nytjastefnu – eignast þrjú börn fyrir hvern þann einn sem hann drepur. Væri hægt að kalla það morðingja með samvisku?
- Þetta gæti verið úr hugmyndafræði þeirra spekinga og öfgagrænfóðursjaplara sem telja allt myrt sem ekki dó sjálft, enda þótt bætt sé upp fyrir það, t.d. þrír græðlingar fyrir hvert tré, eins [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 27, 2005 – 17:55
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hámarksumferðarhraði á Suðurlandsbraut hefur verið hækkaður úr 50 í 60. Hvers vegna? Vegna þess kannski að fólk hefur alltaf keyrt þar á 60? Er það í lagi þess vegna? Keyrir fólk þá ekki bara á 70, fyrst flestir telja að tíu yfir sé í lagi? Var einhver þörf á þessari breytingu? Þessu velti ég fyrir [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 27, 2005 – 17:24
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er nærri því búinn með Sjálfstætt fólk. Ég hef verið í lestrarhléi í tvo tíma, enda þótt ég eigi aðeins rétt rúmar tuttugu síður eftir. Þetta kalla ég að fresta því að ljúka bókinni, og ég geri þetta alltaf þegar ég sé fyrir endann á bók, án þess þó að vita hvers vegna ég [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 26, 2005 – 21:08
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Allir krakkar í skýjunum! Þau eru komin í áhöfn Icelandair: Íþróttaálfurinn, Glanni glæpur, Solla stirða og allir hinir í Latabæ! Lazy Town matarbakkar, sjónvarpsþættir, litabækur o.fl.“
Hvernig dettur þeim í hug að kalla þetta Lazy Town?
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 26, 2005 – 14:11
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Eins og það var nú hljóðlátt í þessu húsi hér áður fyrr. Nú heyrist barnsgrátur að neðan, bankedíbank að ofan og rifrildi hinum megin frá; alstaðar kliður og læti. Eitt sinn bjó hér aðeins gamalt fólk. Ég get ímyndað mér að það hafi svipt það sálarró og suma hverja lífinu þegar foreldrar mínir fluttu hingað [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 25, 2005 – 20:52
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í nótt dreymdi mig þá hryllilegustu martröð sem mig hefur nokkru sinni dreymt. Hún var það ógeðfelld að ég held ég láti ógert að segja frá henni við nokkurn mann. Ég segi hins vegar þetta: Það þarf mikið til að láta kalt vatn renna mér milli skinns og hörunds í hvert skipti sem ég hugsa [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 24, 2005 – 21:32
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Óska konum til hamingju með daginn. Stemmningin er gríðarlega góð niðri í bæ og ég er sannfærður um að enn fleiri séu þar samankomnir nú en fyrir 30 árum. Sjálfur þurfti ég þó að yfirgefa bæinn þar sem rúmið mitt nýja fer að detta inn úr dyrunum og einhver (ekki mamma mín) þarf að taka [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 24, 2005 – 16:41
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er ekki langt síðan ég skrúfaði frá sjónvarpinu, svo ég orði það eins og amma mín, og sá þar teiknimynd með lítlum skrýtnum karli sitjandi bakvið skrifborð og mynd af hamri og sigð bakvið hann. Nei, er þetta ekki Lenín, hugsaði ég og settist niður viðbúinn konunglegri skemmtun. Það leið ekki á löngu áður [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 23, 2005 – 18:57
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá er þessum landsfundi lokið. Eins skemmtilegur og hann var er samt gott að honum er lokið. Það hefði nú samt mátt taka meiri tíma í að ræða um ýmis mál.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 23, 2005 – 17:23
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Frétt aldarinnar: Þorgerður Katrín er ekki hrifin af VG. Ég sem hélt hún væri það hrifin af VG að hún vildi ekki spilla honum með félagsskap sínum. En við eigum þá að minnsta kosti ekki í hættu á að fá sjálfgræðismenntaleysisráðherra í flokkinn, sem getur varla talist neitt annað en hið besta mál.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 22, 2005 – 17:42
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í dag var mér gefið nýtt rúm. Það fæ ég sent heim til mín á mánudaginn. Það gamla fékk ég að gjöf frá ömmu minni árið 1997 eða 1998 og var ónýtt. Rúmið sem ég átti þar á undan fékk ég einnig að gjöf frá ömmu minni, árið 1990. Það hvílir niðri í geymslu, nema [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 19, 2005 – 19:49
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef alltaf vorkennt þeim sem eru kallaðir „Rúnki“ og vonað að það viðurnefni sé ekki til komið af mannkostum. Hvað ímynd hefur maður af manni sem kallaður er „Rúnki“? Halló, ég heiti Rúnki og áhugamál mín eru …
Nei, einfaldlega of hræðilegt. Ekki gera fólki þetta.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 19, 2005 – 19:16
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef lokið miklum áfanga. Það var nú gott.
Sjálfstætt fólk er ein þeirra bóka sem ég er að lesa núna. Hún vinnur á eftir því sem maður kemst lengra. Og ekki byrjaði hún illa. Það verður að gefa Halldóri það, að hann er eini maðurinn sem hefur megnað að skrifa raunsæisbókmenntir eftir mínum smekk. Að [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 18, 2005 – 23:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það að sjá fyrir endann á verkefnabunkanum hefur veitt mér meiri lífsfyllingu þessa tvo síðastliðna daga en allt síðastliðið ár. Allt sem ég hef gert lengi hef ég gert í skugga hins stóra ókláraða verkefnis sem nú sér fyrir endann á. Og það er langt síðan ég hef verið eins ánægður með sjálfan mig. Ég [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 17, 2005 – 22:38
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nei, ég lýg engu þótt ég segi draumfarir mínar ekki sléttar. Nú í nótt dreymdi mig, auk færslunnar fyrri í dag, að Skúli væri skegglaus. Það hefur nú komið á daginn að Skúli er orðinn skegglaus. Fyrst ég er greinilega berdreyminn geri ég ráð fyrir því að ef Þorkell minnist ekki á Sigrúnu, kærustu Sigga [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 17, 2005 – 22:19
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í sögutíma: Lóa er að tala um fyrsta útvarpsmastrið á Íslandi.
Þorkell: Þetta útvarpsmastur stóð einmitt á landareign pabba Sigrúnar, kærustu Sigga húsvarðar.
Einhver stelpa: Kærasta Sigga heitir Sigurlín!
Þorkell: Nei nei, hún heitir Sigrún
Lóa: Hvernig stendur eiginlega á því að þú veist svona mikið um Sigga húsvörð?
Þorkell: Ég veit ekkert um Sigga húsvörð.
Daníel: Gettu betur …
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 17, 2005 – 13:49
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég var beðinn um aðstoð við afgreiðslukassana í vinnunni í dag. Kortéri eftir að ég er sestur að afgreiðslu er ég kominn í jólaskap. Peningar gera jólaskapið. Merking um firringu eða hvað?
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 16, 2005 – 22:46
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér leiðast helgarnar. Vil helst að þær líði hjá sem fljótast.
Það er margt sem þarf að gerast í næstu viku og ómögulegt að samræma það allt. Spurning hvað þarf að sitja á hakanum. Ætli ég neyðist ekki bara til að hætta að sofa. En ég er þreyttur og búinn á því, nenni helst ekki að [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 15, 2005 – 23:40
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér hefur fundist Reykjavík eitthvað svo eyðileg upp á síðkastið. Ef ég ynni ekki í stórverslun gæti ég trúað því að borgin væri að mestu yfirgefin.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 15, 2005 – 21:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég ætla að klára starfsferilsskrána mína í kvöld og senda á tilvonandi vinnustaði á mánudaginn. Ég hef fengið mig fullsaddan á að þjóna kreditkortaþrælum og tímabilafíklum. Það er alveg kominn tími á sumt fólk að upplifa almennilega kreppu, svo ekki sé meira sagt. Það eru líka fleiri ástæður, en ég nenni ekki að diskútera þær [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 15, 2005 – 18:46
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Enn meira gæfi ég fyrir að þeir hættu að sýna þessa uppblásnu karókíkeppni í sjónvarpinu. Hvers gæti nokkur óskað sér meira? Jú, kannski að bloggþjónustan þeirra nauðbeygði þá ekki til að klippa lengri færslurnar í tvennt svo þeir geti birt þær, urg!
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 14, 2005 – 21:57
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mikið gæfi ég fyrir að menn rökræddu ekki eins og Friðbjörn Orri Ketilsson. Hann svekkir sig á fordómum gegn Bandaríkjunum og segir að fólk noti Íraksstríðið sýknt og heilagt til að dæma þjóðina. Það gæti verið rétt, að einhverjir alhæfðu um þjóðina útfrá því, en það gerir enginn með fullu viti. Ríkisstjórnina má gagnrýna fyrir [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 14, 2005 – 21:40
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Bandaríkjamenn eiga mjög stóra bíla sem kosta jafn mikið og meðal fólksbíll á Íslandi. Framleiðni er mikil í Bandaríkjunum vegna þess að hagkerfið er mjög frjálst. Það leiðir af sér að hver klukkustund skapar meiri verðmæti en t.d. í Evrópu. Því geta þeir unnið færri klukkustundir og notið meiri frítíma en samt haft góðar tekjur. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 14, 2005 – 21:38
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Af hverju vill þetta Blogger-dót ekki birta löngu færslurnar mínar?
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 14, 2005 – 21:36
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef það á tilfinningunni að vinstri fóturinn á mér sé tímasprengja, einn daginn muni hann gefa sig (þá vonandi ekki á gilbarmi!). Ef svo verður þarf ég að ganga við staf, eins og Stefán frá Hvítadal. Það er töff. Því miður er ekki sérlega töff að vera eins og farlama gamalmenni með ónýtan fót. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 14, 2005 – 19:05
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Er þetta grín? Er einhver virkilega svo heimskur að falla fyrir því að prentaðir hafi verið milljón dollara seðlar í fyrsta lagi, og það með mynd af Washington í öðru lagi? Mér finnst eiginlega að Ríkislögreglustjóri ætti ekkert að aðhafast. Þeir sem nógu vitlausir eru að falla fyrir þessu eiga það skilið.
Sumar þjóðir (ekki Íslendingar [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 14, 2005 – 15:35
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Grein mín, Ísland er ekki land þitt (sem skapaði enga umræðu í athugasemdunum, urg!), hefur nú birst bæði á Múrnum og á Vinstri.is. Á greinunum er blæbrigðamunur, vegna þess að Múrverjar leiðréttu greinina mína lítillega.
Vek annars athygli á því að á Halldór Laxness les sögu sína Paradísarheimt í Útvarpinu á hverjum degi klukkan tvö. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 14, 2005 – 15:22
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Til að manninum sé unnt að skilja heiminn þarf hann að einfalda hann. Til þess notar hann svokallaðar staðalmyndir, en jafnframt því að vera manninum ómissandi hjálpargagn ala þær einnig á fordómum. Það gefur auga leið að þeim mun smærri sem heimsmynd manna er, þeim mun meiri fordóma hafa þeir.
Hugtakið land er ein þessara staðalmynda. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 13, 2005 – 09:32
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Stafsetningarfyrirkomulag þessarar síðu tekur breytingum frá og með þessari færslu. Orðið allt mun héðan af stafsett alt, og sömuleiðis öll þau orð er innihalda allt, s.s. allsstaðar (alstaðar), alltaf (alt af), lék á alls oddi (als oddi), alltént (altént) o.s.frv.
Eldri stafsetningarbreytingar hafa verið á orðunum jæja (jæa), ævi (æfi), biskup (byskup), skrítið (skrýtið) og skrímsli [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 12, 2005 – 22:43
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég fletti afa mínum upp á netinu. Það eina sem um hann er skrifað er þetta:
„Eftirtaldir hafa gegnt embætti formanns frá stofnun félagsins [Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni]:
…
Arngrímur Bjarnason 1939
… “
Þvílík neðanmálsgrein í mannkynssögunni! Helst langar mig til að skrifa æfiágrip hans á netið. Það verður ekki ítarlegt, ef miðað er við helstu [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 12, 2005 – 19:09
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í nótt dreymdi mig að ég hefði skipt um andlit. Þegar ég vaknaði var ég búinn að gleyma því hvernig ég lít út og brá nokkuð við að líta í spegil. Var samt feginn að sjá mitt andlit.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 12, 2005 – 16:09
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ef þessi bók er eftir sama mann og teiknaði mig á Mokka um daginn (án þess að spyrja leyfis, en ég bannaði honum það samt ekki) þá er kannski mynd af mér í henni.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 11, 2005 – 17:33
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
… að þessu sinni eru þrjú.
Kvenmaður, eftir Jón Thoroddsen yngri:
Hún var formáli að ástarævisögum manna.
Hún var innskotskafli.
Hún var kapítulaskipti.
Og nú er hún ástarævisaga mín. En það hefur
gleymst að prenta orðin: Öll réttindi áskilin.
Af þessu má ráða að Jón Thoroddsen er greinilegur áhrifavaldur okkar mesta samtíðarskálds, Andra Snæs Magnasonar:
-, eftir Andra Snæ Magnason:
Sviðakjamminn horfir á mig
ísköldu [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 11, 2005 – 17:16
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Oft hef ég orðið vitni að mönnum deila um hvort það geti staðist að einn dagur sé þúsund ár fyrir guði og öfugt. Það sem menn átta sig kannski ekki alltaf á er að túlkun Matthíasar Jochumson á guðdómnum á nákvæmlega ekkert skylt við guðdóminn. Þess vegna eru allar rökræður um þetta í senn fíflalegar [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 11, 2005 – 16:59
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég leyfi mér í hroka mínum að fullyrða að ég myndi fremur deyja hinum ömurlegasta dauðdaga en láta sjást til mín róta í sorptunnum bæjarins. Hins vegar veit ég að margir kjósa hið gagnstæða. Þess vegna gengur það svo gjörsamlega fram af mér að sjá augljóslega vel setta menn með krumlurnar ofan í tunnum í [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 11, 2005 – 14:57
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Himininn hrynur og umlykur húsin,
höfgi grámans fyllir tómið
og bílarnir fljóta á öldum tímans
á önnur mið.
Flaumurinn fellur af húsum fram,
eitt og eitt lík slæðist með
og kettirnir synda baksund í öllu saman!
og finna frið.
Gróðurinn drukknar í lausninni,
hestvagnar fljóta upp á vatnsborðið
og rósirnar sem við áttum,
þú, ég: Við.
Borgin er hafið og eftir þér kafa ég ystu myrkrin,
gegnum hljóðfærasæginn [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 10, 2005 – 20:59
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er spenntur fyrir framtíðinni. Svo spenntur að ég get varla á mér setið og festist ekki við neitt annað. Samt veit ég að ég get ekki gefið mér tíma til þess sem mig langar til, það er margt sem stendur framtíðaráformum mínum fyrir þrifum og þarf að taka til hendinni við, áður en hlaupið [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 10, 2005 – 18:06
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Skrýtið hvernig dyrasími heimilisins virkar alltaf nema þegar pósturinn hringir. Þá skiptir engu máli hversu hátt er hrópað í dyrasímann, það heyrist ekki einu sinni í rokinu fyrir utan. Tólið bara hættir að virka. Þessu hafa flestir á heimilinu vanist og hleypa póstburðarkonunni inn, jafnvel þótt hún hafi engin færi fengið á að auðkenna sig. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 10, 2005 – 13:39
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Á forsíðu Fréttablaðsins stendur að Þorfinnur Ómarsson hafi borið út dagblöð í æsku. Og þetta segja þeir núna!
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 10, 2005 – 13:36
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þarftu að gera yfirtökutilboð í alþjóðlegan banka? Ertu að hugsa um að kaupa þér matvörukeðju, fyrirtækjasamstæðu eða bara að fara með starfsfólkið út að borða?“
Það er gott að Iceland Express þekkir sína viðskiptavini.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 10, 2005 – 13:20
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef velt því fyrir mér hvaða akkur menn sjá sér í að sameina sem flest og fjarlægust sveitarfélög. Græðir einhver á því að þvinga nokkurhundruð manna byggðarlög til sameiningar við tugþúsunda sveitarfélög? Ekki fæ ég séð að arðurinn sé mikill. Hins vegar gæti ég trúað því að kostnaður aukist fyrir sveitarfélögin og þjónusta verði [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 10, 2005 – 12:55
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Je minn,þú þarft að fara til læknis ef þetta er kviðslit!“ kommentaði Silja. Þessu ætlaði ég í gríni að svara þannig að ég ætlaði bara að harka þetta af mér. Nema svo fer ég til læknis og mér er sagt að harka þetta bara af mér, ég muni vita þegar þar að kemur hvort þetta [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 9, 2005 – 15:30
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég var að fá hugmynd að bók. Veit ekki hvernig ég fékk hana, hugmyndin fékk mig eiginlega. En hugmyndin er góð og mig langar til að skrifa þessa bók, jafnvel þótt ég fái hana líklegast aldrei gefna út.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 9, 2005 – 12:27
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er naumast veðursældin. Líklega síðasta skorpan fyrir langt rigningartímabil og loks snjókomu.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 9, 2005 – 11:27
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það fer versnandi, kviðslitið, ef það er það sem það er. Það veit ekki á gott, áður gerði það aðeins vart við sig í vinnunni, þegar ég hafði staðið lengi. Nú finn ég fyrir því við lesturinn.
Ef ég væri einn þeirra sem gerði slíkan óþverra að efni í kveðskap myndi ég áreiðanlega yrkja þessa ferskeytlu:
Verkinn [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 8, 2005 – 20:35
- Author:
- By Arngrímur Vídalín