Monthly Archives: July 2005

Þvílíkt útsýni! 0

Nasa heldur áfram að skapa goðsagnir. Þeirra orða verður svo sannarlega minnst þegar fyrsti geimfarinn til að snúa sér við á sporbaugi og skoða jörðina mælti, svo undir tók í alheiminum: Þvílíkt útsýni! Á hann verður án efa minnst í sömu andrá og Neil Armstrong, sem einnig gerðist orðheppinn úti í geimi. Svo sannarlega hefur [...]

Svefnleysi og 18. aldar pönk 0

Skrýtið að ég sé ekki sofnaður enn. Sérstaklega þar sem ég vaknaði upp af undarlegum draumi með andfælum klukkan átta í morgun þar sem mig dreymdi að ég væri Indiana Jones að slást við heilan her af svörtum köttum. Það verður ekki aftur sofnað eftir slíkt.
Raunveruleg ástæða svefnleysisins hlýtur að vera sú að ég rakst [...]

112266679030927911 0

Þessum vinnudegi má jafna við sirkus, á öllum sviðum þá. Hann var eins ömurlegur og blaðið, jafn verðlaus og sjónvarpsstöðin og fullur af fokkíng trúðum.

112258625802755829 0

Ég mæli með því að lesendur lesi þessar fáu tilvitnanir sem Hreinn Hjartahlýr hefur valið úr gamla testamentinu. Þær segja lengri sögu, ef vel er að gætt.
Annars hafði ég mesta gaman að útvarpsþætti Atla Freys um suðurþýskt jóðl. Þátturinn var jafngóður og efni hans er steikt. Sumsé stórskemmtilegur. Og þessir Rhembræður eru nú meiri kallarnir.
En [...]

Strætó 0

Rétt í þessu, sem ég kem úr bankanum sé ég mann bíða eftir strætó. Sjálfsagt hefur hann beðið eftir fjarkanum, því þegar tólfan kom hristi hann höfuðið til vagnstjórans til merkis um að hann kæmi ekki með. Svo, þegar það var um seinan, áttaði hann sig á mistökum sínum og hljóp á eftir vagninum, sem [...]

Komandi dagar 0

Enn er ýmislegt sem mig vanhagar fyrir Spánarför mína eftir sex daga. Ég þarf að kaupa mér buxur, greiða reikningana, sækja pin-númerin mín í bankann og tæma myndavélina. Eins gott er að hafa hraðar hendur svo ég nái þessu nú örugglega. Með tvo vinnudaga framundan og verslunarmannahelgi er best að gera sem mest í dag. [...]

Skörp kúvending til hins betra 0

Ég er ánægður með plaggið sem ég fékk frá skattinum. Það sér fram í tímann. Það segir sögur af tímum allsnægta, ríkidómi og stráum sem smjör drýpur af. Það ber von í skauti sér. Og fögur fyrirheit um unaðslega sælureiti, hvar fagurkerar andans dreypa lítið eitt á víni og syngja undursamleg munarljóð til hins stjörnubjarta [...]

112247976304954635 0

Þetta trampólínæði er nú meiri vitleysan. Enn meiri vitleysa var þó þegar vélsleðar þóttu vinsæl fermingargjöf fyrir um þrettán árum. Einnig færist það sífellt í aukana að 17 ára krakkar fái bíla í afmælisgjöf. Við horfum til framtíðar með öndina í hálsinum þegar fallhlífar og sveðjur verða normið meðal fermingar- og afmælisgjafatrendsettera. Sjáiði bara til, [...]

Mótmælandi Íslands 0

Að sjálfsögðu var ég límdur við skerminn að horfa á Mótmælanda Íslands áðan. Helgi Hóseasson er merkilegur maður og ekki er útséð um hvernig Íslendingar munu koma til með að spjara sig án hans þegar karlinn hrekkur upp af á endanum. Í það minnsta missir Langholtsvegurinn allan status meðal gatna í Reykjavík.
Það er einfalt mál [...]

112240810519973107 0

Ég get vel skilið hvers vegna Tom Cruise er svo heillaður af Vísindakirkjunni (e. scientology (vísindafræði?)). Þetta eru merkileg fræði. Sjáið bara þessa tilvitnun í uppeldisfræði kirkjunnar, rauð undir- og yfirstrikun er mín og innskot eru merkt með hornklofum:
„Children are not dogs. They can’t be trained like dogs are trained [sjáum hvað þeir segja aðeins [...]

112240684075187856 0

Eftir litla umhugsun hef ég komist að því að það er ekkert skrýtið þótt allar Steven Seagal myndirnar hafi hlotið titilinn „Hart á móti hörðu“ upp á íslenska tungu: Þær eru nefnilega allar eins. Þannig nægir að segja „Hart á móti hörðu“ þegar fólk spyr mann hvaða Steven Seagal myndir maður hefur séð.
Þetta [...]

112240620722673809 0

Þetta er ótrúlegt. Ég skil ekki hvernig Blogger getur neitað að birta eina tiltekna færslu, meira að segja eftir að ég fór yfir allar forritunarvillurnar í textanum.
Þetta er ekki einleikið.

112240478021618602 0

Ég virðist geta birt allt nema svívirðilega löngu færsluna um Vísindakirkjuna sem ég skrifaði í gær. Ætli Tom Cruise hafi haft þar hönd í bagga?

112240461854001810 0

Virkar þetta?

Svo ljúft hann söng 0

Pabbi var langflottastur í Útvarpinu í gær, enda þótt upptakan sé þrettán ára gömul og hann sé margfalt betri söngvari í dag. Nirfilinn söng hann og eitt annað lag, sem ég því miður man ekki hvað var.
Einhverra hluta vegna virðist engum hjá RÚV dottið í hug að nokkur maður vildi hlusta á þáttinn á netinu [...]

Minnisleysi 0

Ég sá mann í vinnunni sem mér fannst ég kannast svo við. Hann var lengi á vappinu milli deilda og kom nokkrum sinnum fram og til baka um deildina mína. Allan þann tíma fylgdist ég með honum og reyndi að koma honum fyrir mig, en allt kom fyrir ekki. Á endanum ákvað ég að ég [...]

112208234305382820 0

Kominn heim úr partíi dauðans. Sem ég kom heim stóð fólk spangólandi á götum úti. Ég var ekki lengi að leggja saman tvo og tvo þegar ég uppgötvaði að tunglið er fullt.

Unuhús 0

Önnur bók sem ég hef nýverið lesið (eins og ykkur sé ekki sama) og ég gleymdi að minnast á er Í Unuhúsi, skrifuð af Þórbergi eftir frásögn Stefáns frá Hvítadal, og Þórbergi tekst vel að orða bókina eins og Stefán hafi skrifað hana. Merkilegur bleðill, en skilur lítið eftir til meltingar. Þýðingarlítill í minningunni, þótt [...]

Greinaskrif 0

Heimasíða UVG birtir hér grein eftir mig. Greinin er hálfgert eip, eins og flestallar greinarnar mínar, en boðskapurinn er góður.

Sumar letinnar 2005 0

Þetta sumar hefur farið í allt annað en ég hafði ráðgert. Ég ætlaði að láta gera við hjólið mitt, en enn liggur það niðri í geymslu og safnar ryki. Ég ætlaði að reyna að yrkja eitthvað, en lítið sem ekkert hef ég ort. Ég ætlaði að lesa mikið, en það hefur ekki gengið eftir. Ég [...]

Umbótastarfsemi R-listans 0

Stjórn Íslensku óperunnar hyggst beita sér fyrir byggingu óperuhúss í Kópavoginum. Ætlaði sama stjórn ekki að beita sér fyrir að tónleikahús risi í Reykjavíkurhöfn? Hvað varð um þær áformanir? Þær hafa kannski drukknað í loforðalista R-listans, sem hvað ofan í annað lofar menningarumbótum, sem hvergi krælir á. En svo ég höggvi á báða bóga, má [...]

Senn nær íhaldið borginni 0

„Nú er í gangi skoðanakönnun – eða nýbúin – sem framkvæmd er af Gallup þar sem spurt er um hverja menn vilji sjá leiða lista Sjálfstæðismanna … Gísli þarf að taka ákvörðun og tilkynna hana áður en könnunin kemur. Í fyrsta lagi virkar það aldrei vel þegar stjórnmálamenn láta reka fyrir vindum skoðanakannana. Honum verður [...]

Þetta tengist spoiler á Harry Potter bókinni 0

Það hefur vitanlega ekki farið framhjá mörgum að ein persóna deyr í nýjustu Harry Potter bókinni. Þökk sé Ármanni komst ég að því hérna hver það er (og var raunar alveg sama). Þeim ykkar sem einnig er alveg sama þá bendi ég á þessa stórskemmtilegu umræðu, þar sem skrifað er um dauða persónunnar í stíl [...]

112187072071378598 0

Ekki skil ég hvers vegna fólk vill láta börnin sín heita Christopher eða Christofer, þegar Kristófer er þegar til. Þaðan af síður skil ég hvers vegna Mannanafnanefnd samþykkir svona obskúra rithætti. Enn undarlegra þykir mér Danielsnafnið. Er Daníel ekki nógu gott?
Mannanafnanefnd telur nægan rökstuðning til heimildar vera að einhvern tíma hafi verið til íslenskir ríkisborgarar [...]

Stríð og Batman 0

Í nótt dreymdi mig að Bandaríkjaher réðist gegn hryðjuverkum á Íslandi. Til þess notuðu þeir litlar hljóð- og mannlausar flaugar sem gátu svifið eins og þyrlur. Rót hins íslenska hryðjuverkavanda var í gamla Myndlista- og handíðaskólanum við Laugarnesveginn, og við íbúarnir fylgdumst með flaugunum tortíma svæðinu, uns þær fóru að taka okkur í misgripum fyrir [...]

112171635958869852 0

Aldrei myndi ég þora að láta sjá mig í skátabúningi í sjónvarpinu. Það er víst til tvenns konar hugrekki.

112170136346578265 0

Á leiðinni í bankann sá ég að einhver hafði skrifað á skilti „God save the cock“. Greinilegt er að einhverjir eru uggandi vegna aukins jafnréttis kynjanna.
Nú sit ég með Aloa Vera galdrakrem á sviðnum puttanum. Ég prófa allt einu sinni. Sem betur fer nota ég þumalinn ekki mikið, not!

112169777989407483 0

Móðir mín hefur löngum haft orð á því að ég klæði mig eins og ég sé fimmtugur og svo tekur tannlæknirinn minn upp á því að deyja. Það er aðeins fólk á fimmtugsaldri sem missir tannlækninn sinn. Ætli ég þurfi ekki að leita uppi annan lækni sem getur rétt af þessar þrjár tennur sem hafa [...]

Það er ekki hættulaust að lesa 0

Ég gaf Nietzsche annan séns áðan og hef nú tekið hann í sátt aftur. Ég þurfti þó fljótlega að hætta að lesa því kúpan af leslampanum losnaði og féll í öllum sínum eldglóandi ofsa í kjöltu mér. Í flýti mínum varð mér á að ýta kúpunni af mér með þumalfingri svo ég brann. Ég flýtti [...]

112163364315325064 0

Áreiðanlega eru margir hlutir erfiðari en að finna nál í heystakk, a.m.k. ef marka má þann sem sagði mér einhverntíma að hann hefði fengið nál í rassinn, þegar hann settist á heystakk. Ég man nú ekki hver sagði mér þá sögu. Hvort það var Alli eða einhver annar, sem þrumuskýin elta, og allt slæmt virðist [...]

112163022712958992 0

Í gær kom maður í búðina sem vildi kaupa einhvern fjandann sem ekki var til. Þegar ég sagði honum hvernig í pottinn var búið, sagðist hann alltaf muna eftir 26. desember 1993, því þá var það til í búðinni sem hann vildi kaupa.
Í þann tíð var IKEA í Kringlunni og Mikligarður var um það bil [...]

Hví, Nietzsche, hví?! 0

Í gærkvöldi las ég inngangskaflann að Svo mælti Zaraþústra eftir Friedrich Nietzsche. Ef öll bókin er skrifuð í sama absúrd véfréttastíl og inngangurinn gæti ég þurft að berja mig til bókarinnar. Líkt og píanókennarar gerðu við nemendur sína, meðan píanóleikur var ekki á færi þeirra, sem ekki þoldu barsmíðar. Ég hef aldrei verið mikið fyrir [...]

112145646972023636 0

Stundum eru afleiðingar til trafala. Ef ég gæti til dæmis sagt hvað sem er án þess að þurfa að fást við afleiðingarnar, hefði ég sagt ýmislegt í vinnunni í dag. En sannleikanum er hver sárreiðastur svo ég hélt kjafti. En ekki er víst að ég geri það aftur.
Menn sem sjá skrattann í hverju horni ættu [...]

Tenglablogg 0

Þá er ég búinn að lesa enn eina Þórbergsbókina, Ofvitann, og enn einu sinni stend ég agndofa eftir lesturinn. Það er gaman þegar bækur hafa áhrif á mann.
Nú virðast allir vera að fara til Ítalíu, eða nýkomnir þaðan. Ég vildi að ég væri að fara þangað, á mínar gömlu heimaslóðir.
Talandi um Ítalíu, þá skilst mér [...]

Fengsæld? 0

Ég veit ekki hvernig, en reglulega tekst mér að ramba á ýmiss konar orðabækur Íslenskar á netinu, við leit á einhverju öðru. Til dæmis fann ég þessa hér þegar ég leitaði í forvitni minni að því hvort nokkur maður hefði verið svo heppinn að heita Zóphonias Zoëga. Æ, ekki spyrja!

Rigningartónlist 0

Fyrst núna, eftir að hafa gengið í gegnum rúma viku af rigningu og dumbungsveðri, finn ég mestu rigningarplötu allra tíma: Alice með Tom Waits, sem hafði verið mér týnd í nærri ár. Ég er að hlusta á hana núna, í von um að hann rigni. Það er svo mikilvægt að hlusta á tónlist eftir veðri. [...]

Málverk dagsins 0

Jesús meðal lækna eftir Albrecht Dürer. Draumur hvers læknis? Mér finnst þetta allavega frábært. Sjá líka hversu ógeðslegir læknarnir og skræðurnar þeirra eru frammi fyrir hreinleika mannssonarins. Svo er einn fýr þarna í hægra efra horninu sem augljóslega bruggar frelsaranum launráð. Deja Vu?

112125764790585083 0

Í gegnum tíðina hefur verið vinsælt að trúa því að þeir sem framið hafa sjálfsmorð gangi aftur, án þess að nokkur hafi velt því fyrir sér, hvers vegna sjálfmorða ættu að vilja ganga aftur. Leiddist þeim lífið ekki nógu mikið til að finna sér verðugri viðfangsefni í dauðanum, en að spígspora um sama hallærisplanið, í [...]

112120192550092502 0

Svo virðist vera sem eitthvað sé að athugasemdunum. Kópíerið því allar athugasemdir í heild sinni, og ef þær birtast ekki, vinsamlegast reynið aftur að hálfri mínútu liðinni.

112118467986903968 0

Þegar farsímarafhlöður eru nærri uppurnar lætur síminn mann vita að hann sé að verða tómur með skilaboðunum: Rafhlaða nærri tóm. Það er gott og gilt, en hvers vegna í ósköpunum eyðir síminn síðustu hleðsluögninni í að láta mig vita að hann sé tómur? „Rafhlaðan tóm“. Ég hefði getað ýtt á send-takkann eða náð að klára [...]

Leiðindablogg 0

„Hugurinn er eins og fallhlíf: Hann virkar ekki nema hann sé opinn“. Ef þetta hallærismáltæki er lýsandi fyrir Listahátíð unga fólksins á Seyðisfirði er eins gott að ég haldi mér frá austfjörðum á næstunni.
Reykjavík er kuldaleg og grá í dag, eins og raunar síðustu viku alla. Það skal engan undra þótt hengingarhvötinni vaxi ásmegin meðan [...]

Samtal við símasölumann 0

Ég: Já?
Sölumaður: Arngrímur?
Ég: Já.
Sölumaður: Má bjóða þér að færa númerið þitt yfir til OgVodafone?
Ég: Ég er hjá Vodafone.
Sölumaður: Ég skil.
Ég: Bíddu, get ég samt fengið tilboð í númerið?
Lagt á.
Ég er að hugsa um að skipta yfir til Símans.

Dagurinn sem heimurinn varð verri 0

Í síðustu færslu sagði ég að heimurinn gæti kannski ekki versnað mikið meira. Það er ekki fleiri orð hafandi um það en: Heimurinn tók áskoruninni.

Stríð gegn hryðjuverkum 0

Össur Skarphéðinsson hitti naglann á höfuðið í bloggfærslu sinni á miðvikudaginn var, þar sem hann sagði að villimannsleg hryðjuverkaárás á miðborg Lundúna staðfesti að stríðið gegn alþjóðlegum hryðjuverkasamtökum sé langt í frá unnið.
Stríði gegn hryðjuverkum lýkur aldrei. Það elur á ótta, hatur og fordóma. Hin augljósa og óhjákvæmilega afleiðing þess eru fleiri hryðjuverk. Því, þar [...]

Ég er Taggart 0

Hvers vegna stofnar Bjöggi ekki hljómsveit með bræðrum sínum, Karli Inga og Jóhanni? Þeir gætu kalla hana The Karlsson 3 og hún yrði það vinsælasta síðan Jackson 5 var og hét.
Ég hef komist að því að helsta vandamál viðskiptavina sænska stórveldisins er að þeir lærðu lestur án túlkunar. Ef ég raðaði eins sjónvarpshillum í tvo [...]

Óbærilegur furðuleiki tilverunnar og endurkoma ÁJ 0

Stundum er allt frábært. Stundum er allt hræðilegt. Stundum er allt í steik. Núna er allt í steik. Ef ég segði frá öllum þeim undrafregnum sem mér hafa borist á síðastliðnum vikum (sem ég geri ekki) gæti ég skrifað ansi langa og steikta bloggfærslu. Því miður slær ábyrgðin alla löngun banahöggi (d. slår ihjel) þar [...]

Skemmtilegt 0

Ég fann mynd af Bjögga félaga á bloggsíðu Katrínarpúnkturis. Skyldi hann vita að tekin var mynd af honum áfengisdauðum á Roskilde?

Önnur tilvitnun 0

„Þetta fólk virðist telja að dauðinn sé mikilvægari en lífið. Það er erfitt að eiga við slíkt fólk.“
-Halldór Ásgrímsson, trúarbragðasérfræðingur.

Tilvitnun dagsins 0

„Við vorum nú eiginlega að vona að þetta væri búið!“
-Halldór Ásgrímsson.

Spurning dagsins 0

Hvaða arabaríki þarf að gjalda fyrir þetta? Vitaskuld er áróðursmaskínunni strax hrundið af stað þegar Blair tilkynnir að hryðjuverkamennirnir séu að reyna að hindra G8 í að ræða um bætta framtíð Afríkuríkjanna. Right!
Ætli stjúpbróðir minn hefði lent í þessu, hefði hann ekki flutt aftur til Íslands? Ég velti því fyrir mér.