Monthly Archives: May 2005

Tvenns konar mælskulist 0

Það er blóðugt að horfa upp á Steingrím J. hakka í sig aðstoðarmann forsætisráðherra aðeins degi eftir að Ólafur Teitur brytjaði Sigurjón M. Egils í spað í Íslandinu. Munurinn er að hjá Steingrími J. var málflutningurinn pjúra röksemdarfærsla, byggð á staðreyndum. Hjá Ólafi Teiti var það öðru fremur yfirvegun og tækni, meðan fréttastjórinn barmaði sér [...]

Ljóð dagsins 0

Af því enginn gat svarað því hver orti ljóð gærdagsins birti ég annað ljóð eftir sama skáld. Takið eftir því hvað hann hittir naglann á höfuðið:
Dagblöðin
Úr blöðunum hjómast ei hugsun til neins,
mig hryllir við þvílíku sargi,
því málið og stíllinn og efnið er eins:
svo andlega meinþýfður kargi.
Nú ætti hringurinn að fara að þrengjast um skáldið. Ef [...]

Lífsgátan 0

Þorgrímur Þráinsson bullar í Blaðinu (sem er nota bene ömurlegt blað) í dag. Þar segir hann að grísku goðin hafi falið leyndardóm lífsins í hjartanu, eftir að hafa skeggrætt um að fela hann uppi á hæsta fjallinu eða í dýpsta djúpálnum. Þetta hef ég aldrei heyrt áður. Þó er ég þónokkuð kunnugur hvers konar goðafræði, [...]

Dr. Gunni er fyndinn 0

Fyrir tilviljun rakst ég á gamla bloggfærslu hjá dr. Gunna. Þessi mynd fylgir færslunni:
„Húrra!
Stefán Einar, 19 ára, er framtíðarhetja „frjálslyndra“ Sjálfsstæðismanna. Hann er með ilmandi hressa heimasíðu og aðdáendamynd af Bjössa Bjarna og allt. Á mínu kommúníska æskuheimili voru svona gaurar kallaðir „smjörkúkar“ og mikið gaman hent að slíkum. Í þá daga fylgdu hornspangargleraugu lúkkinu. [...]

Ljóð dagsins 0

Uppörvun
Lát óskelfdur heimsku hof
háðs í eldi brenna -
miskunn veldu og manndáð lof,
meðan veldur penna.
Lát óm þinna hljómfalla opna þér dyr
í íslenzku kotin,
og hritt því, að málið, sem hugdirfði fyrr,
sé herlúður brotinn.
Ég skil það, að hann geri heiminum gagn,
sem huggar, en letur -
en skáldsins í valdi er voldugra magn,
sem vekur og etur.
Ætli einhverjir lesenda þessarar örmu [...]

Stjórnarskrá ESB 0

Nú kjósa frakkar um stjórnarskrá ‘Sambandsins (takið eftir hvað þessi ritháttur samræmist betur virðingu hinna yngri og vandlátari kjósenda). Það sem helst vekur athygli við fréttina, fyrir utan það að Chirac kemur fram við kjósendur eins og börn, að því er virðist, er það sem stendur undir myndinni: „Þrjár kjörvélar sem prófaðar verða í atkvæðagreiðslunni [...]

Lesendabréf 0

Ég var að lesa dagbók þína á Netinu. Ég kannast ekki við að hafa verið ókurteis við neinn í IKEA. Ég er auðvitað stundum að flýta mér, eins og allir eru, en ég hef engan áhuga á því að vera dónalegur við einn eða neinn. Ef ég hef verið það, þá hefur það verið óviljandi.
HHG
Nei, [...]

Notkun eyrnapinna undir stýri 0

Nú hef ég séð allt.
Ég sofnaði strax eftir að hafa bloggað í gær og var ég þá nýkominn úr vinnunni. Svo dreymdi mig að ég væri í vinnunni. Svo vaknaði ég klukkan sjö. Þá voru fimm tímar í að ég átti að mæta í vinnuna. Það minnir mig á setningu úr myndinni Waking Life:
„Did you [...]

Öðruvísi mér áður brá 0

Þegar ég var búinn að ganga frá öllu í deildinni eftir lokun fór ég sem vant er og hafði fataskipti. Á leiðinni út kastaði ég kveðju á über-by-the-book öryggisvörðinn okkar og fékk vægast sagt ófyrirsjáanleg viðbrögð. Ég hefði búist við því að hann segði eitthvað á þessa leið: „Samkvæmt reglugerð 3A, kapítula 7, grein 7.38 [...]

Die Selbstehenpartei 0

Það má alltaf treysta á hæversku sjálfstæðismanna. Í Kastljósinu er borgarkandídat, sem í fjórgang hefur sagst hafa mikla reynslu, þekkingu og vilja til að starfa í borginni, að tala um 30 ára áætlun Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Mætti kalla það „stóra stökkið“? En fyrst er að sjá hvort þeir ná kjöri. Svo er að sjá hvort [...]

Sagnfræðilegar deilur 0

Deila spratt um fyrir skömmu um sagnfræðilegt „vafaatriði“. Stóð deilan milli sagnfræðings og óbreytts. Til eru þeir sem telja hinn óbreytta hafa haft rétt fyrir sér. Þeir skulu lesa þetta. Þetta er nákvæmlega það sem deilan snerist um. Hvers eiga fræðimenn að gjalda?

Pablo Honey 0

Eflaust vilja margir Radioheadaðdáendur vita hvaðan nafnið Pablo Honey kemur. Þetta fann ég á netinu:
February ‘92 was also marked the released of Radiohead’s debut album. February 22nd, actually. They called it Pablo Honey. And you know where they got that title? remember “The Jerky Boys” and their crank phone calls? Radiohead was given a Jerky [...]

Spurningar dagsins 0

Hvernig hefnist þér fyrir kurteisina?
Svar: Þú ert skráður í viðbótarlífeyrissparnað fyrir framan nefið á þér, án þess að þú hreyfir legg né lið til mótmæla.
Hvernig lærist þér fyrir kurteisina?
Svar: Héðan af segir þú símasölumönnum að hoppa upp í rassgatið á sér.

Hryllingurinn 0

Ég vinn í IKEA, eins og fáum lesendum síðu órrar dylst. Þar kemur fyrir að ég þarf að setja saman húsgögn, og hefi ég nú sett saman hvorki meira né minna en tvo sófa, eitt eldhúsborð og einn koll, á þeim stutta tíma sem ég hefi staðið vaktina inni í borðstofudeild.
Í dag bað móðir mín [...]

Grammar Wizard 0

Þetta er fyndið.

Overheard in New York 0

A well-dressed African-American businessman passes.
Thug #1: He’s a faggot.
Thug #2: Yo, shut up, man. That faggot got money!

Mæli með þessari síðu.

Kratar kjósa 0

Ingibjörg Sólrún er orðin formaður Samfylkingarinnar. Frábært. Ef Samfylkingin stækkar eitthvað á næsta ári getum við fullvissað okkur um að við fáum annan R-lista í ríkisstjórn. Sem er einmitt það sem við viljum. Eða þannig.
Mikið er ég feginn að vera ekki í þessum flokki.

Stjernekrig, af sin forfatter, George Lucas 0

Ég fór með Bjössa á Star Wars í gær. Þar voru ýmsir klæddir í búninga, eins og von var að. Gunnar Birgisson sá ég t.d. uppáklæddan sem Jabba the Hut. Myndin var stórgóð, langbest af nýju myndunum. Nú bíð ég þess að geta eignast allan pakkann á DVD. Þá verður sólarhrings sjónvarpsglápsmaraþon.
En nú er það [...]

Sternekriege 0

Temmilega viðburðarsnauður dagur í vinnunni, fyrir utan einn nettan fýr sem spurði mig hvort hann þyrfti nokkuð að berja verslunarstjórann til að fá vissan skáp. Réttast væri að berja svona eintök, fremur en öfugt.
Í kvöld er það svo Revenge of the Sith (betri titill óskast!) með Birni Frey Björnssyni. Þá verður ákaft mænt á ljósvarp [...]

Héldu menn virkilega að við kæmumst áfram? 0

Er ég svekktur yfir því að íslendingar drulluðu á sig í Ojróvisjón ársins? Hreint ekki. Þá þurfum við ekki að hlusta á þjóðernisfasísk komment sjónvarpsviðrinisins Gísla Marteins, þar sem hann tuðar um helvítis hundingstyrkja með absólút nó ríspekt fyrir þeim glæstu væringjum miðalda. Fari hann og veri. Nú verður fyrst gaman að horfa á Ojróvisjón!
Nú [...]

Tvennt 0

1. Mér finnst það alveg hræðilega óskemmtilegt að sitja í strætó með fólki sem ómögulega getur beðið áfangastaðar til þess að hakka í sig ýmis konar matvæli. Sér í lagi ef viðkomandi sér sér ekki fært að tylla sér neinsstaðar annarsstaðar en við hliðina á mér. Mér finnst það hreint út sagt í hæsta lagi [...]

Hattakaup 0

Ég fór upp í toll og sótti hattinn minn. Pósturinn rukkaði mig um tæpan fjögurþúsundkall í toll og virðisaukaskatt. Það er ekki í lagi hvað hlutirnir kosta hér á landi. Hér er sundurliðun á kostnaði hattsins:
Hattur, 5798 kr.
Sendingarkostnaður, 2255 kr.
Tollur 1208 kr.
VSK, 1973 kr.
Aðflutningsgjöld, 614 kr., geri ég ráð fyrir.
Heildarverð: 11848 kr.
En nú á ég [...]

Eurovision 0

Mér finnst þessi síða eiginlega fáránleg.

Krónan og Daytonhatturinn góði 0

Ég skrapp í Krónuna Norðurbrún til að berja Bjössa augum í úniformi. Áður hafði ég þá ímynd af starfsfólki Krónunnar að það væri asnalegt, en ekki lengur. Nú get ég vottað að enginn tekur sig betur út í Krónugalla en Bjössi.
Svo fékk ég bréf frá Póstinum, en hatturinn minn er lentur upp á Stórhöfða. Alveg [...]

Þá er því lokið 0

Þá er skólinn formlega búinn. Meðaleinkunnin (eða einkannin, eins og svo margir virðast segja núorðið, sem er fáránlegt) er nógu há til að ég geti sótt um að verða óreglulegur nemandi, m.ö.o. að mætingin skiptir ekki máli.
Rússneska verður kennd næsta vetur, svo við kommar og fasistar fögnum ákaft. Til marks um hversu mikill fasisti ég [...]

Litla innleggið mitt 0

Það eru alltaf mistök fyrir leikmenn að rífast við sérfræðinga. Það eru feitir sjónvarpsmenn sem karpa við sagnfræðinga ekki undanskildir. En hvað fær sagnfræðingurinn að launum fyrir að gera tilraun til að halda faglegum vinnubrögðum til haga?
Hann hlýtur sjálfsagt það vafasama uppnefni „sovétkommi“. Þetta eru víst laun þeirra, sem ekki samþykkja að tilgangurinn helgi meðalið. [...]

Kopfschmerzen 0

Ég hef verið með djöfullegan hausverk í allan dag. Hann er lúmskur. Alltaf þegar ég held hann farinn læðist hann aftan úr höfðinu á mér og breiðir anga sína yfir það allt svo þeir mætast í einum konsentreruðum punkti aðeins vinstra megin við mitt ennið, valdandi gífurlegum, stingandi sársauka. Ég yrði ekki hissa þótt hausinn [...]

Batman og Adam West II 0

Ég trúi því ekki að ég hafi gleymt því besta:
[Stuck to Penguin's magnetic buoy, with a torpedo approaching, Batman pries loose his utility belt transmitter.]
Batman: If I could just reverse the polarity… send out waves of super-energy…
. . .
[An [...]

Batman og Adam West 0

Eftirfarandi tilvitnanir í Batmanþættina og myndina frá 1966 eru ekki uppdiktaðar af mér né nokkrum öðrum. Þið hafið verið vöruð við.
Robin: “Ghoti” is “fish”?
Batman: See here. English phonetics. GH becomes F, as in “tough” or “laugh”. O becomes I as in “women”. TI becomes SH as in “ration” or the word “nation”.
Robin: Holy semantics, Batman. [...]

Hautage 0

Sono fantasma. Fokkíng spidermann!

Yfirvinna 0

Ég er örendur. Ég var nefnilega að koma frá yfirvinnu við áfyllingar. Af þeim þrettán klukkustundum sem ég hef vakað í dag hef ég eytt tólf í vinnunni, sem er svipað og gerðist í janúar. Hvorugt bætir þó metið mitt, þegar ég mætti klukkan hálfníu í vinnuna, sem þá var í Vínbúðinni Smáralind, kláraði hálftólf [...]

Hálfvitar 0

Menn þvaðra vitleysu út um annað munnvikið á sama máta og áður; fasti sem einkennir hið íslenska borgarlíf. Ætli menn fari enn einu sinni að röfla um muninn á Hochschule og Universität?
Ein góð regla: Þú mátt vera ánægður með þitt án þess að skjóta á náungann. Eru menn ekki miklu betri í þeirri vissu að [...]

Kaffi 0

Bróðir minn benti mér á þessa grein á Djöflaeyjunni. Þetta er æðislegt.

Fyndið 0

Þetta heyrði ég í vinnunni í dag (orðrétt): Nýjustu fréttir frá Írak herma að þar sé verið að pynta menn. Þeir eru þá látnir drekka áfengi, borða svínakjöt og hafa samfarir. Í Írak heitir þetta pyntingar. Á Íslandi heitir þetta árshátíð.

Flyðran sú arna 0

Meðferð Gísla Marteins á viðmælendum sínum mætti líkja við kynferðislega misnotkun. Það væri ánægjulegt ef einhver gestur Gísla Marteins gjaldaði honum líku líkt. Sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur?
Gestur: [segir lélegan brandara]
Gísli Marteinn: Fliss fliss fliss!
Gestur: Gísli, nú ert þú besta og mesta rassasleikja Íslands …
Gísli Marteinn: [hissa] Ha, nei nei.
Gestur: Jú, víst [brosir sem [...]

Kaffimeistarinn 0

Ég fór hamförum inni á kaffistofu í dag. Þannig er mál með vexti að ég drekk kaffi, eins og allir góðir menn, þ.e. nema þeir slæmu, m.ö.o. frakkar og nútímalistamenn. Í þeim tilgangi að svala fíkn minni í þann svarta líknarvökva seildist ég í bolla uppi á hillu og nálgaðist kaffikönnuna, með bjarta von í [...]

Lífsspekipróf 0

Jæa, netpróf sem ég fann hjá Vésteini. Ég er kannski ekki sammála því að ég sé spírítískur, en ég hugsa vissulega út fyrir hinn „efnislega ramma“. Margt er til í þessum heimi sem ekki er úr efni, t.d. sjálf hugsunin.
Svo þarf ég að gera upp við mig hvort það er Dalai Lama eða Stephan G. [...]

Hreintungustefna 0

Ég verð að játa að mér finnst fyndið þegar menn advókera íslenska hreintungustefnu á ensku.

Uppgerð Group 0

Merkilegt hvað fólk talar um að gera upp bíla og þess háttar apparöt, þegar nafnorðun af sögninni gæfi af sér ranga mynd af verknaðinum, t.d. ef fyrirtæki sérhæfði sig í uppgerð eða uppgjöri. Það væri ekki heil brú í því. Þess vegna talar fólk líka gjarnan um verkstæði, sem er ágætt. Enda er nafnorðun sagna [...]

Top Gun 0

Ég horfði á Top Gun í fyrradag. Það er ein lélegasta mynd sem ég hef á ævi minni séð.

111566782998464815 0

Í dag vann ég minn síðasta vinnudag á kassa, a.m.k. í bili. Ég ætla að sjá hvort ég fái að taka að mér afleysingar á kassa meðfram húsgögnunum.
Í dag strípuðu tveir sextán ára strákar alveg og lögðust upp í rúm. Þeim var tvisvar hent út, í seinna skiptið þegar þeir reyndu að komast aftur inn [...]

Próf 0

Ýmsir frægir einstaklingar virðast hafa sagt ýmsa vafasama hluti.

Gátan leyst 0

Rétt er það, setningin er úr stórmyndinni The Guyver, frá 1991. Bjössi svindlaði hins vegar og gúglaði svarinu, og er því ekki þess verðugur að bera heiðursnafnbótina Mahakeshyapa af BV.
Í dag er mæðradagurinn. Gefið mæðrum ykkar nú eitthvað fallegt.

Getraun dagsins 0

Maður 1: I’ve killed you once, and I’ll kill you again.
Maður 2: You can’t kill me. I’ve been rejected by death.
Sá sem getur sagt mér úr hvað kvikmynd þetta er (án þess að nota leitarvél) hlýtur æðstu verðlaun Bloggsins um veginn: Heiðurstitilinn Mahakeshyapa af Blogginu um veginn, sem er markgreifanafnbótarígildi.
Eflaust verða margir um hituna, [...]

Orðatiltæki o.fl. 0

Skyldu lesendur mínir hafa jafn gaman að mjólkurfernuáletrunum og ég? Þessar um skrattann finnast mér skemmtilegastar:
Að koma eins og skrattinn úr sauðaleggnum,
að mála skrattann á vegginn,
eins og skrattinn sé á hælunum á e-um,
hver hefur sinn djöful að draga.
Aðrar skemmtilegar eru:
Eins dauði er annars brauð,
oft kemur illur þá um er rætt,
sérhvert sæði ber ávöxt sinn líkan,
að [...]

Sænskt sumar 0

Jæa, þá er öðrum (hálfum) degi mínum í starfsþjálfun lokið. Svo er það sleitulaus vinna fram á miðvikudag, en þá á ég frí, ef að líkum lætur. Ekki að það sé neitt issue, svo ég mæli á aðra tungu.
Heim með mér hafði ég milljón bæklinga um hina ýmsu og margvíslegu sófa sem viðskiptavinum Ikea stendur [...]

Undarlegar fréttir 0

Maður dó við handþvott í gosbrunni,
smekkleysi kom upp um þjóf,
maður stöðvaður á flugvelli með skjaldböku límda við bakið,
maður kramdist milli tveggja fíla
og 6,75 kg. hamborgarar.
Hvurs konar skrýmsli þarf til að geta torgað 6,75 kg. hamborgara! Í raun er þó ekkert að furða. Mottó bandaríkjamanna enda verandi: If you can eat it, what are you waiting [...]

Hinn siðlausi sölumaður 0

Í dag byrjaði ég í starfsþjálfun. Ég get ekki annað sagt en að mér líki starfið vel, mun betur en mér líkaði kassinn. Vér sem fegrum starfsheiti vor í CV-um vorum unum betur við að vera „sölumenn“ en „gjaldkerar“. Núna get ég líka selt sálu mína mónópólýinu og gerst algjörlega siðlaus, eins og sölumönnum ber [...]

Auglýsingar 0

Leiðinlegt er að geta ekki lesið bloggsíður vina sinna fyrir auglýsingum. Mest pirrandi auglýsing sem ég hef séð hingað til er þessi hérna. Hvernig dettur fólki svona leiðindi í hug? Það er ekki nóg að hafa auglýsingar heldur þurfa þær líka að vera leiðinlegar.

Snorra-Eddu glósur 0

Alltaf á vorin og síðla á veturna fyllist bloggið mitt af fólki í leit að Snorra-Eddu glósum. Það er kannski komin tími á að ég tengi á slíkar glósur, svo ég valdi fólki ekki vonbrigðum. Hérna er síða með ýmis konar Snorra-Eddu tenglum, en sjálfur mæli ég með þessum. Þetta eru glósur úr Snorra-Eddu, Egils [...]