Í sumu er minni mitt gloppóttara en ósonlagið. Til að mynda er kona sem alltaf heilsar mér með nafni þegar hún sér mig, sem er raunar alltaf þegar ég er í vinnunni. Hún hefur tendens til að dúkka upp þegar síst skyldi, eins og síðast þegar hún hnippti í öxl mína og sagði „Hæ Arngrímur!“ [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 30, 2005 – 16:27
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ætli við bróðir minn séum þeir einu sem höfum húmor fyrir því að Heimdallur sjái jafnt nótt sem dag hundrað rasta?
Mitt ófélagslynda sjálf
Áðan barðist ég við að hringja í fólk upp á að setjast við Austurvöll og dreypa á bjór í sólinni. Ég hugsaði með sjálfum mér að ég gæti notið mín jafnvel einn. Svo [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 30, 2005 – 16:15
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Við Skúli litum við á doktorsvörn Sverris áðan. Nú vitum við hvernig slíkt battarí gengur fyrir sig. Slík vitneskja getur komið metnaðarfullum námsmönnum að góðu haldi í framtíðinni. Alveg væri ég annars til í að upplifa doktorsvörn þar sem andmælt er ex-auditorio. Það væri töff. Annars voru minni átök en ég bjóst við. Ég sá [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 29, 2005 – 18:40
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Ég er með hugmyndir um sumarvinnu handa þér.“ Svo sagði Emil starfsmannastjóri í símanum fyrir hálfri mínútu. Ég hafði þegar sótt um sumarvinnu í Ikea og Emil vissi það vel. Símtalið var þess vegna undarlegt. Þýðir þetta stöðuhækkun? Hádegi mánudagsins ber svarið í skauti sér.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 29, 2005 – 12:57
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er örendur á líkama og sál. Hvaðan kemur þessi þreyta?
Mig langar til að skrifa, en ég hef ekkert að segja, svo ég dæli bara í ykkur Lao Tse-legu spakmæli:
Allir óska sér þess einhvern tíma að líf þeirra taki gjörbreytingum og að allt verði eins og best væri á kosið. Þeir sömu missa af hamingjunni, [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 29, 2005 – 01:14
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég var að koma af Shi mian mai fu á kvikmyndahátíð. Mjög góð mynd, betri en Hero, en slær þó Crouching Tiger ekki við. Þá hef ég séð tvær myndir á hátíðinni, hin verandi Der Untergang, sem var alveg frábær. Ég er að hugsa um að skella mér á nokkrar í viðbót áður en hátíð [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 28, 2005 – 21:08
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er að hugsa um að kaupa mér svona. Hann er talsvert barðaminni en gamli hatturinn minn, sem er ótvíræður kostur, og kostar 90 dollara. Það er á við hatta hérlendis, nema þessi er vandaðri en flest sem hér fæst. Ef fjöðrin fylgir með verður hún fjarlægð.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 27, 2005 – 22:21
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ef einhver vill iðka þann gamla sið að gefa mér sumargjöf, þá skal það vera þetta. Er til meiri snilld?
Hattar virðast vera að komast aftur í tísku. Það veit aðeins á gott. Svo þarf aðeins að leyfa götulistamönnum að iðka listir sínar í miðbænum fyrir pening og La Belle Epoche Íslands verður að veruleika. Við [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 27, 2005 – 15:24
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það eru ekki til sérstök hljóðtákn fyrir málhelti, einfaldlega vegna þess að hljóðfræði er ætlað að sýna hvernig hljóð hafa áhrif á merkingu tungumálsins og réttan framburð (að sjálfsögðu miðað við viðeigandi mállýskur, enda ekkert rétt eða rangt í þeim efnum – aðeins eldra og yngra. Þess vegna er það rangt hjá Bibba, að norðlenskan [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 26, 2005 – 16:51
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég þarf ekki að taka próf í stjórnmálafræði. Ég er búinn í skólanum.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 26, 2005 – 15:49
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég stóðst mat. Vegið meðaltal er slétt átta. Það er hæsta kennaraeinkunn sem ég hef nokkurn tíma fengið. Þetta þýðir að ég þarf ekki að taka nein próf, að stjórnmálafræði undanskilinni, og að ég verði búinn í prófum á fimmtudaginn. Táp og fjör.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 26, 2005 – 11:17
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þekkirðu muninn á tölvugrafík og ljósmyndum? Ég veit að ég geri það.
Annars er þreytan nú loks farin að hellast yfir mig eftir annir vetrarins. Þá er gott að geta sest niður, slappað af og fengið sér tebolla. Ætli ég fari svo ekki snemma að sofa í kvöld.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 25, 2005 – 20:24
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í stað þess að eyða orðum á þetta ætla ég einfaldlega að tengja á þessa frétt.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 25, 2005 – 19:01
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Hrottafengin voðaverk kommúnista á öldinni sem leið hafa algerlega farið fram hjá þorra manna“.
Ég furða mig á þessari athugasemd. Ég veit ekki betur en allir viti af þeim hörmungum sem ógnarstjórn sovétkommans leiddi yfir Evrópu. Þetta er kennt í öllum grunnskólum og menntaskólum landsins, auk þess sem áhrif kommúnismans hafa verið fastur þáttur í allri [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 25, 2005 – 18:04
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er ekki mikið fyrir að hæla sjálfum mér, raunar finnst mér það meira að segja óþægilegt þegar aðrir hæla mér, en sögueinkunnin mín fyrir þetta skólaár liggur nú fyrir. Og ég er orðlaus. Það er gjörsamlega óverðskulduð tveggja stafa tala. Mér finnst eins og ég hafi svindlað á einhverjum.
Það er ekki kennt í dag, [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 25, 2005 – 12:15
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég viðurkenni hér með að mér finnst orusta óendanlega ljótur syntax. Sjálfur skrifa ég alltaf orrusta. Hvort tveggja er rétt. En þegar bókarþýðandi getur ekki ákveðið hvort hann vill og notar báðar útgáfur, er það hámark mannlegrar eymdar.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 24, 2005 – 23:37
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég vil vera í öðru landi, nánar tiltekið Ítalíu. Andvarp!
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 24, 2005 – 17:52
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í dag kom einhver hálfviti á kassann minn og reifst við mig, skammaðist og hélt því fram að „við“ kynnum ekki að afgreiða pantanir (einhver inni á lager hafði sagt honum að hann pantaði heimsendingu á kassa, sem er rugl, og ég sagði honum eins og er að lagerinn sæi um heimsendingar). Það er langt [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 24, 2005 – 17:05
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég á erfitt um vik með að hugsa. Líður nánast eins og ég hafi ekki huga. Hef verið svona í allan dag, fremur þurr og álkulegur. Þeir mega prísa sig sæla sem ekkert hafa talað við mig í dag.
Og það er augljóst af fleiru en veðrinu að vorið er að koma.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 23, 2005 – 21:25
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í ofanálag er mannhelvítið enn í krossafaraleik gegn hundingstyrkjum. Hann vill sumsé meina þeim aðgang að Evrópusambandinu vegna þess eins að þeir eru tyrkir. Yfirleitt er hart tekið á rasískum ummælum í heimspressunni, en það er greinilegt að tengiliður guðs og manna þarf ekki að standa neinum reikningsskil.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 22, 2005 – 16:11
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Gagnrýnin kom frá Alfonso Lopez Trujillo, kardinála og formanns fjölskylduráðs Páfagarðs í viðtali í dagblaðinu Corriere della Sera. „Við getum ekki þvingað svona ranglæti upp á fólk,“ sagði hann. Sagði hann að embættismenn sem beðnir yrðu um að gefa samkynhneigða í hjónaband ættu að neita, jafnvel þótt þeir kynnu að missa starfið“.
Hver andskotinn gengur eiginlega [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 22, 2005 – 15:56
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Og ekki er það verra. Mínu erfiðasta skólaári til þessa fer senn að ljúka (það er ofsögum sagt að félagsfræðibraut í Menntaskólanum við Sund sé einhver hægðarleikur). Á þessu skólaári hef ég skrifað tvær efnismiklar ritgerðir, önnur 11 bls. að lengd en hin 16, og framkvæmt eina sálfræðirannsókn. Í ofanálag hef ég skilað öllum stærstu [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 22, 2005 – 13:22
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá er ég búinn að prófarkalesa og leiðrétta ritgerðina. Nú er mál að sofa.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 22, 2005 – 02:05
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá hef ég loks lokið við ritgerð mína um Hobbitann. Hún heitir Hobbitinn eftir J.R.R. Tolkien, huglæg athugun og samanburður við norræn sagnaminni. Þetta er lengsta ritgerð sem ég hef skrifað til þessa. Þetta fór algjörlega úr böndunum. Ætli ég neyðist til að biðja kennarann afsökunar vegna þessa.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 22, 2005 – 00:52
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það verður ekki sagt að ég sé í ástandi til að skrifa ritgerð, hvað þá eins langa og flókna ritgerð og ég er að skrifa núna. Ég þjáist af höfuðverk, athyglisleysi og sljóleika. Æ, æ, æ. Ég hefði átt að byrja á þessu í gær, andskotinn hafi það.
Mikið vildi ég að ég gæti setið þennan [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 21, 2005 – 20:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef ekki farið út úr húsi, því ég er bundinn fyrir framan tölvuna, en mér sýnist á öllu að veðrið sé ágætt. Mín vegna mætti sumardagurinn fyrsti samt vera 30 apríl. Þessi tímasetning er út í hött.
Umræðan um áframhaldandi R-listasamstarf hefur verið svolítið í deiglunni núna undanfarið og flestir vinstri-grænir virðast því mótfallnir. Sverrir [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 21, 2005 – 16:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það verður ekki annað um mig sagt en að af öllum mögulegum páfaefnum hafi kardínálarnir valið þann allra versta. Sjá t.a.m. bloggfærslu Lárusar.
Annars er lítið í gangi, nema auðvitað ýmis mál sem ég kæri mig ekki um að blogga um. Það eru misgóð teikn á lofti.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 20, 2005 – 13:23
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Össur hlýtur að hafa dottið á hausinn.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 18, 2005 – 19:38
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Eitt það leiðinlegasta sem ég horfi upp á er þegar börn brjóta leikföngin sín í einhverju óðagoti. Aftur á móti er það and-sorglegt þegar börn brjóta leikföngin sín viljandi. Hvað þetta snertir er litli bróðir minn öðruvísi en ég. Hann syrgir ekki brotin leikföng, hann tjaslar þeim bara saman með límbandi og heldur áfram. Það [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 18, 2005 – 18:41
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Aldrei hefði ég búist við því að fá senda ítrökun frá Spron á kröfu um félagsgjöld í frjálsu félagasamtökin Ný kynslóð, nemenda- og stúdentafélag, en þegar ég kom heim rak ég augun í nákvæmlega þannig ítrekun. Félagið er kristið. Öðruvísi mér áður brá.
Á heimasíðu þjóðkirkjunnar stendur um félagið: Félagið miðar að því að efla trúarlegt [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 18, 2005 – 13:31
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég kláraði Manngerðirnar í gær og skemmti mér hið besta. Svo las ég ársgamla ritgerð eftir sjálfan mig, Samanburður á norrænni goðafræði og Hringadróttinssögu. Mér finnst hún ekki góð lengur. Orðin samantíningur og kraðak lýsa henni ágætlega. Það er því meiri þörf á Hobbitaritgerð en ég í fyrstu hugði, þ.e. fyrir sjálfan mig. Ég get [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 17, 2005 – 17:54
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég mæli með Furðulegu háttalagi hunds um nótt (The Curious Incident of the Dog in the Night-time). Hún er mjög góð. Eitt er slæmt við hana, fyrir utan það sem ég minntist á í síðustu færslu, en margir munu eflaust styrkjast í trú sinni á að allir einhverfir séu góðir í stærðfræði. Sem er bull. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 16, 2005 – 19:21
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef rekist á nokkra galla í Furðulegu háttalagi hunds um nótt, hver um sig afsakanlegur, en einn er áberandi verstur. Svo virðist vera að sögumaður bókarinnar átti sig ekki almennilega á því hvað hann er gamall, sem væri gjörsamlega fáránlegt, svo sökin liggur annaðhvort hjá þýðanda eða rithöfundi, sem er þó eiginlega ennþá fáránlegra. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 15, 2005 – 22:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hugsið ykkur þetta: Mynd um Gosa, Drew Carey leikur Gepetto og hann syngur um að hann langi í börn (versta martröð okkar allra?). Nei, þetta er ekki grín. Þetta er í sjónvarpinu núna.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 15, 2005 – 20:17
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ofarlega á Hrísateignum, við horn hans og Hraunteigs, stóð hús í stórum trjágirtum garði. Grindverkið kringum lóðina var gamalt og fúið og það var húsið raunar augljóslega líka, þótt lítið sæist í það gegnum trjáþykknið. Það sem af garðinum sást var í niðurníðslu.
Fyrir fjórum árum, meðan ég var blaðburðardrengur, þurfti ég að fara með blaðið [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 15, 2005 – 17:41
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þetta er einhver sú allra mesta snilld sem ég hef séð lengi! Verðlaunin þennan mann!
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 14, 2005 – 22:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Eine Abhandlung auf den menschlichen Körperfunktionen:
„Wann Mann nicht essen kann, so wird Mann hungrig. Wann Mann nicht schlafen kann, so wird Mann müde, oder so hat der Arzt gesagt“.
Markmiðið með þessu er að sýna fram á tvennt: Annars vegar að einföldustu hlutir hljóma eins og hin merkustu fræði á þýsku. Hins vegar að þýska er [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 14, 2005 – 20:39
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Við Brynjar fórum í dag og létum binda inn skýrsluna okkar, Um forvarnargildi aðvörunarmiða á neysluvörum: Rannsókn á klassískri skilyrðingu. Hún hefur verið valin til að prýða heimasíðu skólans sem kynningarefni fyrir hugsanlega nýnema. Einnig hefur okkur hlotnast sá heiður að eintak af skýrslunni verður skráð í Gegni og geymt á bókasafni skólans. Þess vegna [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 14, 2005 – 19:26
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er æðislegt að fá pakka sendan heim til sín, vitandi að það er bók í honum. Verra er með að opna pakkann, því hann er svo afspyrnu fallegur að helst vildi ég komast hjá því að opna hann, a.m.k. í bráð. Það er jú ekki á hverjum degi sem ég fæ svona fínar bækur [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 14, 2005 – 15:14
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég mæli hiklaust með þessu. Þetta er ný tækni í leturgerð sem gerir það mun þægilegra að lesa texta af skjá og í sumum tilfellum kemur hann m.a.s. betur út á útprenti. Skoðið þetta, í alvöru talað.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 13, 2005 – 18:22
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Getur þú framkallað skilyrt viðbrögð hjá hundinum? Spilaðu „Hund Pavlovs“ til að komast að því! Ef hann er of auðveldur má einnig athuga þennan. Frítt sýniseintak er fáanlegt hér.
Hver segir svo að fræðandi tölvuleikir séu ekki skemmtilegir.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 13, 2005 – 16:02
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Magnað alveg hreint að í morgun var snjókoma og fimbulrok en nú er semi-Fensterwetter. Já, þetta var nú ansi ómerkilegt blogg. Þessi dagur orkar raunar allur á mig eins og hann verði ómerkilegasti dagur ævi minnar. Og maður með fyrirframhugmyndir um hvernig dagurinn verður getur ekki vænst annars en að allt gangi eftir; hugmyndir hans [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 12, 2005 – 15:59
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Gunnar Ingvi Birgisson, alþingismaður, hefur verið valinn No Name andlit ársins. Við vörum við myndum sem fylgja þessari frétt“.
-Útvarp Baggalútur
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 12, 2005 – 00:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá er að byrja að læra fyrir félagsfræðiprófið á morgun. Já, ég er svona snjall.
Annars skilst mér af Séð og Heyrt að Brynjar Jón og Rannveig hafi kynnst í gegnum krabbamein. Hver segir svo að krabbamein sé ekki frábært?
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 10, 2005 – 22:24
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hvenær ætli landsfundur FÍÞ verði? Mig langar nefnilega til að brenna þá inni og vega þá sem út komast með sverði mínu.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 10, 2005 – 20:09
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er að hugsa um að kaupa mér ritsafn Jónasar á morgun. Ég var nefnilega að muna eftir dálitlu, nefnilega léttgreiðslum, þeim mikla lausnara fátækra en bókelskra námsmanna. Sjibbí!!!
Af öðrum skáldum á ég Kristján Jónsson, Stephan G., Þórberg Þórðarson (þó ekki Hvíta hrafna, hvar fæ ég hana?) og Andra Snæ Magnason. Af þessum finnst mér [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 10, 2005 – 19:10
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í vinnunni kom maður að mér með gardínustöng og sagði: Er þetta ekki örugglega veiðistöng? Brandararnir sem ég fæ að heyra í vinnunni …
Annars er fyndið að sjá viðmótsbreytingar kúnnanna gagnvart okkur gjaldkerum (gjaldtæknum jafnvel) eftir að við fengum öryggisvörð í búðina. Þeir eru mjög uggandi þegar þau mæta ísköldu augnaráði varðarins. Fólk þorir ekki [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 10, 2005 – 18:11
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er mikill misskilningur að ég hafi eitthvað merkilegt fram að færa á þessari bloggsíðu, eða fólk almennt á sínum bloggsíðum. Á ég að leitast þess við að orða hlutina öðruvísi, svo lesendur rjúki ekki upp sér til handa og fóta, svo yfir mig dembist holskefla svívirðinga einfaldlega vegna þess að textinn býður upp á [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 9, 2005 – 11:58
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Tíhí, ég veit það er ljótt, en ég get ekki hætt að hlæja að því að forseti Íraks heiti Talabani.
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 8, 2005 – 17:02
- Author:
- By Arngrímur Vídalín