Monthly Archives: December 2004

Kryddsíldin 0

Halldór Ásgrímsson fær prik fyrir að dissa Össur. Það er alveg rétt að ákvarðanir Samfylkingarinnar eru teknar eftir skoðanakönnunum, sem þýðir að oft leika menn þar tveimur skjöldum og í þversögn við fyrri „stefnu“ flokksins. Þetta segi ég með fullri virðingu fyrir kjósendum þeirra.
Fyrst menn gerðust svo háfleygir á að minnast á og jafnvel mæra [...]

Fyrir þá sem láta sig það varða 0

Hamfarir 0

Það er kannski kominn tími á að blogga um þær gríðarlegu hamfarir er átt hafa sér stað í Indónesíu og víðar. Yfir 55000 manns eru látnir samkvæmt nýjustu fréttum. Jarðskjálftinn, mældist 8,9 á Richter, er sá öflugasti í yfir 40 ár. Nú reynist bjánalega Stalínkvótið vera eins fjarri sannleikanum og mögulegt er. Þetta er harmleikur, [...]

Jólin 2004 0

Já, ekki fer ég í jólaköttinn í þetta sinn. A.m.k. hefur hann ekki látið á sér kræla. Þetta fékk ég í jólagjöf, að undanskilinni einni gjöf sem ég ætla ekki að tjá mig um hér:
* Eddukvæðin, öll í einni bók,
* Konungasögur – þrjár bækur,
* Svört jakkaföt, skyrta og bindi,
* Glænýir og glæsilegir skór,
* Tenderfoot – [...]

Aðfangadagur 0

Í gær mætti ég til vinnu klukkan fjögur og var þar til hálftólf, sem var ágætt. Fólk var rólegt, allir í jólaskapi, og lítið var að gera. Svo atvikaðist að sjálfur Sigurður Kári pseudolíbertarían kom á kassa til mín. Hann var langtum kurteisari en venjulegt getur talist.
Að vinnudegi loknum var ég leystur út með miklum [...]

110381159183422270 0

Minni lesendur á að spreyta sig á prófinu. Hér eru svo niðurstöðurnar. Meira verður ekki bloggað í dag. Og fyrst enginn latínugúrú hafði neitt um spurningu mína frá í gær að segja verð ég að álykta að orðnotkunin sé sú sama.

Lag dagsins 0

Það er Ave Maria eftir meistara Franz Schubert (skóbert). Þegar ég hlusta á það finnst mér ég skynja allar heimsins þjáningar. Þegar því lýkur finnst mér sem lífið sé búið. Ekki veit ég hvaða fräulein syngur í minni útgáfu, en fallegri söngrödd hefi ég aldregi heyrt.

Setning dagsins 0

Hana á Snæbjörn Guðmundsson.

110374832012812984 0

Nú svari mér fróðir menn: Er lat. áfn. is notað á sama hátt og ísl. áfn. sá, þ.e. bókasafn þess meistara = bibliotheca eius magistri? Einhver?

Föt og klipping 0

Hvergi bólaði á Ásgeiri, enda mæta öryggisverðirnir sjaldnast fyrir klukkan sex. Hins vegar má segja að ég verði ekki beinlínis ræfilslega klæddur á Aðfangadag, onei. Svona fín föt hef ég aldrei áður átt. Ekki spillir heldur fyrir að ég fór fyrr í dag og borgaði konu fyrir að taka hárið mitt. En ekki var hárið [...]

Jólakvöð 0

Svo virðist sem ég sé að falla á tíma með allt það sem ég þarf að gera fyrir jólin. Ég neyðist víst til að slá mikilvægum hlutum á frest og vinda mér í þá milli jóla og nýárs. Það er óásættanlegt.
Ég var í kaffi hjá ömmu minni áðan, þ.e. þeirri góðu. Það var ágætt.
Nú skunda [...]

Tilvitnun dagsins 0

… er að þessu sinni úr Íslandsklukku Halldórs Kiljan, en Jón Hreggviðsson hefur nýverið handtekinn af þjóðverjum við landamæri Hollands:
Láttu það vera, sagði Jón Hreggviðsson. Það er brauðið mitt.
Hvurn fjandann ertu að gera við brauð? sagði vaktmeistarinn. Þú sem verður heingdur í fyrramálið. Ég geri þetta brauð upptækt í nafni keisarans.
Hann setti sverðið fyrir [...]

110366091224951866 0

Ég er ekki frá því að ég verði antrópófóbískari með hverju árinu.

Dramb er falli næst 0

Hmm, einkunnaúthlutan er farin að minna á MR-kríteríuna. Annars finnst mér það bara hið besta mál að fólk hafi drullað á sig í prófunum. Það er kominn tími til að vissir ónefndir einstaklingar innan bekkjarins taki náminu af ögn meiri alvöru og hætti að áfellast kennarann fyrir slakan árangur, sérstaklega ef þeir hafa látið eins [...]

110365784010343084 0

Ég er orðinn þreyttur á að vera eins og ljóti andarunginn. Mig langar mun fremur að vera eins og Palli sem var einn í heiminum.
Annars skil ég ekki hvernig fólk getur borðað kjúkling. Hann er bragðlaus, ógeðslegur og þar að auki ávísun á kamfýlóbakter og salmonellu. Aukinheldur virðist ég ekki einu sinni geta skorið í [...]

Þetta er víst móðins 0

Hversu vel þekkið þér mig? Takið prófið og sjáið niðurstöðurnar.

110364266016215920 0

Sumt fólk ætti ekki að ganga laust. Munurinn á fólki sem þarf læknismeðferð og þeim sem eru „andsetnir af djöflinum“ er enginn. Þeir síðarnefndu þurfa einnig meðferð, þá líklega lyfjameðferð hjá geðlækni.
Mér finnst líka merkilegt að öryggisvörður hafi hugsanlega kveikt í lyftara, tilkynnt eldinn og slökkt hann sjálfur. Mælist ég til þess að Ásgeir taki [...]

110357524583763861 0

Ég tók út síðustu færslu af ótta við að vera kallaður Trölli (e. The Grinch). Það er kominn tími á að hætta að hugsa um galla samfélagsins og taka á móti kostum þess, a.m.k. á meðan jólafríið endist. Hins vegar er og verður jólasveinninn umdeildur.

2004 0

Mér finnst eiginlega flottara að tala um árið tuttuguhundruðogfjögur en tvöþúsundogfjögur. Þeim sem eru ósammála er bent á að þeir vilja ekki deila við mann sem skoraði níu á íslenskuprófi nærri ólesinn.
Þó læðist sá grunur að mér að í fyrsta lagi sé enginn sammála mér og að í öðru lagi verði ég ásakaður um snobb [...]

Einkunnir 0

Vegna fjölda áskorana mun ég birta hér einkunnir mínar í samanburði við einkunnaspár. Samanburðurinn er hins vegar ómarktækur þar sem þær einkunnir sem ég hef í höndunum eru ekki stakar prófeinkunnir, heldur meðaltal prófeinkunna og námseinkunna, og þar sem aðaleinkunn var 8,1 en námseinkunn 6 geri ég ráð fyrir að þær einkunnir sem á eftir [...]

Skammdegisþunglyndi 0

Rosalega er ég þreyttur og áhugalaus. Ég hef það á tilfinningunni að hjá mér komi jólin ekki fyrr en í janúar. Samt ekki. Janúar og febrúar eiga það sameiginlegt að vera tveir leiðinlegustu mánuðir ársins, svo … já. Ætli þau komi nokkuð?
Ég tók þátt í ljóðasamkeppni. Niðurstöðurnar átti að birta á miðvikudaginn. Eitthvað stendur á [...]

Agnus dei sum 0

Meeee!

Manngæska 0

Andri bróðir er hjartahlý manneskja sem ber alla kosti hátt yfir Björn Bjarna. Rétt í þessu kom greyið inn með himinháan pappírsjólasvein sem hann hafði þrælast við að búa til svo vikum skipti og bað mig um að pakka honum inn fyrir sig svo hann gæti gefið mömmu hann í jólagjöf. Það gekk ekki vel [...]

110328194872944484 0

Önnur grein um skandalinn og mannréttindaglæpinn gegn úkraínumanninum. Þetta er svo viðurstyggilegt að ég fæ klígju af tilhugsuninni. Það má kalla þetta mörgum nöfnum, þar með talið nasismi og kynbótastefna, og mér þætti hreint ekki of langt gengið að úthrópa Björn Bjarnason nasista eða kynþáttahatara hér á þessu bloggi, þó ég geri það ekki.
Nei, ég [...]

110328017186429944 0

Fyrir nokkru var ég beðinn um að spila í brúðkaupi og játti ég því. Lagavalið hefði þó mátt liggja fyrir aðeins fyrr. Það er ekki lítið á mann lagt að eiga að læra lög sem hlýða engum náttúrulögmálum þegar kemur að rytma. Eða lög sem ég hef engin tök á að verða mér úti um [...]

Uppreisn 0

Þeir sem láta sig það varða skulu skoða þetta myndband. Ég veit ekki hvort það er ósvikið en það nægir a.m.k. til að vekja fólk til umhugsunar. Rosalegt ef satt reynist.

Keyptu þér gleðileg jól! 0

Senn nálgast jólin. Orðið á götunni er að meira að segja sagnfræðingar deili um hvort kom á undan, auglýsingin eða jólin, en menn hafa fljótlega gleymt sér í neysluhyggjubrjálæðinu, svo jafnvel elstu heimildir stangast á. Leiddar hafa verið líkur að því að Jesús hafi í raun verið fyrsta fyrirtækisímyndin, eins og Michael Jordan var fyrir [...]

Hobbitinn 0

Ég pantaði mér þessa bók nú fyrir skömmu. Ég stóðst ekki freistinguna. Ég er raunar almennt mjög slæmur í að standast freistingar þegar kemur að bókum.

110321743848959216 0

Ég gerði mér ferð niður í bæ að skoða jakkaföt sem á að gefa mér. Það ótrúlega gerðist í mátunarklefanum að buxurnur voru of þröngar – í fyrsta skipti á ævinni sem það kemur fyrir mig, manninn sem fitnar aldrei. Ég skrapp líka í Ecco að skoða skó. Þeir eru víst hættir að framleiða uppáhaldsskóna [...]

110321130304090849 0

Þetta er algjör viðbjóður! Ég ætla að hafa um þetta fá orð. Bendi á orð Óla Gneista og greinina hans Sverris. Ég er fjúríus.

Hákarlar og Svarthöfði 0

Ég veit að þetta er ekki huggulegt en ég gat einhvern veginn ekki varist brosi þegar ég las þetta. Ég get verið alveg viðbjóðslega vondur stundum.
Talandi um illsku þá sá ég trailerinn fyrir Episode III í gærkvöldi. Ég held að fátt hafi valdið mér þvílíkri gæsahúð áður. Nema auðvitað trailerinn fyrir Hringadróttin. Það eina sem [...]

110315188996965460 0

Átti ágæta kaffihúsastund með Skúla og Einari. Ég er samt eitthvað svo andlega búinn á því svo ég var fremur daufur í dálkinn. Eftir á að hyggja er ekki mikill léttir í að vera búinn í prófum. Þvert á móti finnst mér eins og allt hafi skyndilega orðið fremur ómerkilegt, nú þegar ég má með [...]

Hoffa 0

Mig langar að horfa á myndina um Jimmy Hoffa með Jack Nicholson og Danny DeVito. Það kynni einhverjum að þykja undarlegt, en mér finnst hún skemmtileg.

Framtíðarflámælið 0

Hið svokallaða „e-hljóðvarp“ Alla er í raun og veru flámæli, þ.e. i og hinu hljóðfræðilega sambærilega y er skipt út fyrir e í framburði. Dæmin sem hann tekur eru svo skýr dæmi um hið sk. Framtíðarflámæli, en faðir þess er Jóhann Alfreð Kristinsson, ef mér skjátlast ekki. Framtíðarflámælið einkennist ekki aðeins af hefðbundnum framburðarbreytingum á [...]

Einkunnaspá VI: Hagfræði 0

Já, þetta gekk bara ágætlega. Ég veit þó ekki hvort ég ætti að vera að spá eitthvað sérstaklega fyrir um einkunnina. Hún gæti verið á bilinu 6 og upp úr. Nema mér skjöplist stórkostlega á áður óþekktum mælikvarða.

110298952795698390 0

Andskotinn! Var það þess vegna sem þeir dældu út þessum ópraktísku 2000 króna seðlum árið 1995: Til að ýta okkur upp úr samdrættinum?

110296906358676235 0

Arg! Það er einhver krakkabjálfi að reyna að spila jólalög á trompetinn sinn og hann spilar hörmulega! Það er alltaf eitthvað í hverjum prófum – undanfarin fjögur ár hefur það verið vitfirringur með rafmagnsbor, en þetta er ekki stórt skref til hins betra. Svona lagað er ekki á lærandi mann leggjandi.

Sem skynlaust skordýr 0

Það skiptir engu hvort um er að ræða þriggja vikna prófatörn eða átta daga. Það kemur allt á sama stað niður, þ.e. á skynjun og hugsun. Skynjun vegna þess að átta daga prófatörn er alveg jafn lengi að líða og þrjár vikur auk þess sem skammdegið setur visst strik í reikninginn. Hugsun vegna þess að [...]

Hvað gerir þessi Bjúgnakrækir? 0

Ekki veit ég fyrir hve mikla siðsemi Faldafeyki var breytt í Bjúgnakræki. Þvert á móti þykir mér nafngift hans óbærilega tvíræð og myndræn. Hið minnsta myndi ég ekki vilja mæta Bjúgnakræki í dimmu húsasundi. Sem sýnir að ég er ekki jafn hugaður og lögreglan, sem hætti sér ofan í dimman og djúpan helli gagngert til [...]

Hægðir og hvernig má gera þær betri 0

Nú þekki ég ekki þann stílsnillíng sem hinn svo vatnsausni köttur er, en þetta er sem mælt úr mínum tranti. Það hefur verið eitt minna æðstu verkefna, alveg frá því ég fékk nóg af afætulíferni mínu í híbýlum móður minnar, að skipuleggja í þaula innihald bókaskápsins sem ég hyggst koma fyrir á náðhúsi minnar fyrstu [...]

Prófíll 0

Skellti inn aðeins menntasnobblegri mynd. Þar má sjá brot af því mikla bókasafni sem ég á.

110292690115442524 0

Það fór sem ég óttaðist: Menn eru farnir að nota dauða Yassir’s sem afsökun fyrir hermdarverkum. Auðvitað urðu samsæriskenningarnar ofan á. Það var aldrei möguleiki á öðru.

110292515543615071 0

Mættur. Eins gott að ég nái að daðra meira við hagfræðigyðjuna (Ekonómíu) en ég gerði í gær.

Glæpir og refsingar 0

Ég hef ákveðið að svara athugasemd Ásgeirs við þessa færslu sérstaklega:
Refsingar hafa ekki fælandi áhrif á glæpamenn og draga því ekki úr glæpatíðni. Flest afbrot eru framin án tillits til refsingarinnar. Ef refsingar eru þyngdar hafa þær aðeins fælingarmátt til skamms tíma, og þótt í fyrstu virðist að dregið hafi úr afbrotum, fer þeim smám [...]

Ókind ≠ ekki kind 0

Það virðist vera vinsæl skýring á orðinu ókind, að ást íslendinga á skepnunni hafi verið svo mikil, að allt sem ekki var kind hafi verið slæmt eða af hinu illa. Sjálfur hallast ég að annarri skýringu. Þó það sé óveður þýðir það ekki að það sé ekkert veður. Hið sama er uppi á teningnum með [...]

Nietzsche II 0

Keypti mér Handan góðs og ills. Mun hella mér í hana um jólin (viðeigandi?). Að því loknu helli ég mér í Platon.
Voðalega er annars mikil ládeyða yfir Bloggheimum í dag, sem er glæpsamlegt, nú þegar fólk er í prófum. Á prófatímum á að blogga sem mest svo við, námsmenn, getum átt ánægjulegri lestrarhlé.

Nietzsche 0

Verandi bölsýnismaður hef ég ákveðið að taka Nietzsche upp á arma mína. Hvar er best að byrja? Hafa einhverjar bóka hans t.d. verið gefnar út með lærdómsritum Háskólans?
Einn góður: „Undarlegur hlutur, refsingar okkar. Þær hreinsa ekki afbrotamanninn, þær eru engin forbetrun: Þvert á móti saurga þær meira en brotið sjálft!“

Óráðin framtíð 0

Stundum gerir maður sér grein fyrir því að maður biður um of mikið, en vill ekki sannfæringar sinnar vegna biðja um minna, þó maður viti að maður fái ekkert fyrir vikið. Það er erfitt að svíkja eigin sannfæringu til að fá allt sem maður fengi ekki ella, jafnvel þótt sú sannfæring byggi ekki á þeim [...]

Allt óþolandi 0

Ég er í mjög vondu skapi. Ekkert er mér óviðkomandi því allt fer í taugarnar á mér. Mér væri skapi næst að kyrkja einhvern með skítugum sokk. Svona ömurlegheit fara sérstaklega í taugarnar á mér. Þessar þóknanir námu hærri upphæð en safnaðist fyrir krabbameinsveiku börnin og ef valið ætti að standa milli þess að styrkja [...]

Til marks um andleysið 0

You Are
Tangerine

You are a beautiful person, in a wistful kind of way. If you could, you would spend all your time daydreaming and writing poetry. You are a tragic beauty.
You are sensitive and caring, and you don’t take insults well. You don’t smile much, but when you do, you really mean it.
People like to [...]