Þá er ritgerð mín „Um etýmólógíu latneskra og germanskra orða: Orðsifjafræðileg athugun á latneskum og germönskum orðum og textum, með hliðsjón af eldri rannsóknum innan fræðigreina sögulegrar- og samanburðarmálfræði“ tilbúin.
Þá er að prófarkalesa. Ég vona að hún sé ekki of léleg því ég þarf að skila henni á morgun.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 30, 2004 – 21:28
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Lúdowig ther snéllo, thes wísduames fóllo,
er óstarrichi ríhtit ál, so Fránkono kúning scal“.
Á hvaða tungumáli er þessi lofgjörð og hvað þýðir hún; í hvaða bók birtist hún fyrst, hver orti og hvenær? Bókarverðlaun í boði fyrir besta svar. Berist fleiri en eitt rétt svar vinnur sá fyrsti til að svara. Svör sendist hingað.
Lágmark fyrir þátttöku [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 30, 2004 – 19:42
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Ég hélt satt að segja ekki, og vona að mér fyrirgefist að ég segi það, að svona skítlegt eðli væri inni í hæstvirtum forsætisráðherra, en það kom greinilega hér fram.“
-Ólafur Ragnar Grímsson
„Og það skal þá standa að Davíð Oddsson sé slík gunga og drusla að hann þori ekki að koma hér og eiga [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 30, 2004 – 14:19
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Höfundaréttur helst uns 70 ár eru liðin frá næstu áramótum eftir lát höfundar“. Þetta stendur í höfundarréttarlögunum og mér finnst það fáránlegt. Mega þá allir stela vísum úr Íslendingasögunum og kalla sínar eigin, eins og eitthvað fífl gerði á Rithringnum?
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 30, 2004 – 09:51
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þetta ætla ég að stúdera um jólin, svo ég kunni að minnsta kosti stafrófið. Það háir mér stundum að vera ekki læs á grísku. Til dæmis núna. Á næsta ári hef ég svo hugsað mér að nema ítölsku við MH, grísku og rússnesku við MS. Það er viss áskorun sem felst í að læra tvö [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 29, 2004 – 15:46
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hah! Ekki ómerkari maður en sjálfur Bill Clinton, fyrrv. Bandaríkjaforseti og frelsari sundraðrar Júgóslavíu, leit við á auvirðilegri síðu minni um tvöleytið í nótt. Ég get a.m.k. haldið því fram meðan þessi heldur áfram að þykjast vera hann.
Ég uppgötvaði mér til hryllings, eftir að hafa átt það í tvö ár, að eintak mitt af Marðar-Eddu [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 29, 2004 – 14:30
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er með óbærilega verki jafnt í baki sem í kviðarholi, og ég veit, að dauðinn er á næstu grösum. Það er því til lítils annars tilgangs að blogga, en að gefa veraldlegar eigur mínar, þeim sem þurfa þykir, post mortem Aquilami.
Þórður fær því Þórbergsbækurnar mínar og Silja fær kisuna mína. Afgangurinn fylgir mér í [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 29, 2004 – 01:25
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég sakna Bloggs dauðans. Mikið væri nú ógurlega gaman ef bloggari dauðans snéri aftur til Bloggheima, svo og fleiri bloggarar af svipuðu kalíberi.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 28, 2004 – 20:14
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Arngrímur segir, að sá er ekki spakur, er rífst um sjálfsagðan hlut, dylur sannleikann í ræðu sinni svo málefnið virðist ekki eins sjálfsagt og beitir honum svo fyrir sig sem rökum um að hann hafi rétt fyrir sér.
Slíkur spekingur varð á vegi mínum í gær og gortaði hann mikið af því, að hafa lagt mig [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 28, 2004 – 17:47
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í dag á afmæli Ásgeir, vinur minn. Hann hélt upp á það í gær.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 28, 2004 – 17:35
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Eflaust spyrja sig margir hvað Arngrímur geri á síðkvöldum eftir langan og strembinn dag af heimildarvinnu (já, sá veruleiki sem ég viðurkenni er háður ímyndunarafli mínu). Það getur verið margt, en einn er sá hlutur sem er fastur liður í öllu því sem ég geri, og það er að borða. Svo það telst ekki með. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 27, 2004 – 02:21
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þessi maður, sem hafði litlu stelpuna á brott, er viðbjóðslegur.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 26, 2004 – 18:32
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Unglingar eru gjarnir á að eyðileggja hluti (afsakið alhæfinguna). Það er oft að ég sé brotnar ljósaperur í ljósastaurum, veggjakrot og hvaðeina. Samt, þegar gamla Kringlan var og hét og Hard Rock hafði bíl hangandi utan á byggingunni, samt var hann látinn í friði. Skrýtið.
Ég fór ekki í skólann í dag. Vekjaraklukkan klikkaði og móður [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 26, 2004 – 14:23
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er merkilegt að sjá kvikmyndir frá Kalda stríðinu þar sem Bandarískir stjórnmálamenn tala um að hindra þurfi framrás kommúnismans í Evrópu. Sýnir best hvar „samúð“ Bandaríkjanna liggur: Hjá hvítu fólki. Það er allt í lagi þeirra vegna að kommúnisminn þrífist í Asíu, fjarri öllu alvöru fólki.
Þessi kommafóbía er alveg út í hött. Ein afleiðing [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 25, 2004 – 21:04
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Svo ég bæti við fyrsta lið síðustu færslu, þá furða ég mig á því að ég, „kommúnistinn“, þyki svo róttækur í hugum Heimdellinga að vilja frið, jafnrétti og bræðralag. Orðið frelsi mun ég aldrei nota, nú þegar kanaagentar Heimdallar brúka það sem samnefnara yfir hryðjuverk Bandaríkjaforseta í Írak.
Þá þykir mér skárra að vera bendlaður við [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 25, 2004 – 15:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
1. Þegar ég er kallaður kommúnisti. Þeir sem það gera mega éta skít.
2. Að til sé fólk sem þarf að sofa á götum úti.
3. Þegar menn mótmæla staðreyndum í sögutímum og kalla það „vinstri slagsíðu“.
4. Að ávísanir séu enn notaðar.
5. Að svona helvítis fíflum detti svona nokkuð í hug!
6. Að samkynhneigðir njóti ekki sömu réttinda [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 25, 2004 – 14:46
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í íþróttatíma dagsins varð ég vitni að kapítalisma boltaíþróttanna; þegar tveir menn eigna sér boltann meðan hinir sitja eftir og fá ekkert að gert.
Ég sé það núna að ég neyðist til að tala þó nokkuð um hljóðdvalarbreytinguna og tengsl hennar við germönsku hljóðfærsluna. Ekki að það þurfi að neyða mig til, onei. Caput verður seint [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 25, 2004 – 11:48
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Páll Hilmarsson hlýtur ævarandi þakkir mínar fyrir hjálp sína við að útvega mér hljóðtáknin dýrmætu. Fær hann tengil að launum.
Uppfært:
JESS! Þessir fontar rokka!
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 24, 2004 – 21:47
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ekki er við lesendur mína að sakast þótt þeir megi mér enga hjálp veita, en mér eru allar bjargir bannaðar. Ég neyðist því til að hefjast handa við sjálfa samanburðarvinnuna, sem er í raun algjör óþarfi, þar sem öll vinnan hefur þegar verið unnin fyrir mig. En hún er skemmtileg og fræðandi svo ég kýs [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 24, 2004 – 20:37
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Vandamálið leyst. Nú vantar mig hljóðstafi!
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 24, 2004 – 17:32
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Kann einhver að gera ör á ská í Word? Það er eins mikilvægt og hugsast getur, að ég fái hjálp sem fyrst. Ég þarf að geta skrifað niður germönsku hljóðfærsluna eins og hún kemur fyrir í orðsifjabók Ásgeirs Blöndal!
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 24, 2004 – 17:17
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er einmitt á þeim stundum sem maður fer mest úr hárunum yfir eigin vankunnáttu sem hvatningarorð falla fyrir ofan garð og neðan. Ég læt fallast á sverð mitt frammi fyrir ginnheilagri ásjónu almættisins, menntagyðjunnar. Hvers á ég að gjalda fyrir eigið rökleysi og dysfúnksjón? Þúsundkjell, svarar Pallas A. Ekki að and-narkissistum eins og mér [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 24, 2004 – 15:29
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Ég sagði frá því í síðasta pistli, að ég hefði heimsótt kommúnistasafn í Prag. Þar voru sýnd áróðursplaköt gegn Bandaríkjunum og þegar þau eru skoðuð kemur í ljós, að í þeim er einmitt sami tónn og í þessum leiðara Jónasar Kristjánssonar. Þegar ég starfaði sem blaðamaður á Morgunblaðinu fengum við daglega sendingu úr sovéska sendiráðinu [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 23, 2004 – 23:16
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Sá frómi língvist, Saxithorisfilius, hefir fyrstur manna gagnrýnt þá málleysu er birst hefur í „latínu“ athugasemdakerfis Bloggsins um veginn. Hefi ég vitað af þeim sjálfskapaða skandal um nokkra hríð, en ekkert aðhafst. En nú er sá ljótleiki endanlega leiðréttur.
Fyrr í dag barst mér purpuralitt bréf í pósti, og ályktaði ég undir eins, að þar væri [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 23, 2004 – 21:02
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég fékk skyndilega löngun til að skrifa bókina Um ánauð viljans – sálfræðirit með móral í garð þeirra sem trúa á frjálsan vilja.
Svo mundi ég eftir Marteini Lúther. Helvítið hafi hann fyrir að ræna svona góðum titli.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 23, 2004 – 17:19
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hér er ekki hugsandi fyrir sírenuvæli og bílaumferð. Já, rétt til getið: Lögreglan beinir allri bílaumferð niður Laugarnesveginn.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 23, 2004 – 01:23
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Helvítis! Nú sit ég fastur í reykjarkófi dauðans! Ég get ekki einu sinni opnað glugga. Lögreglan hefur tilkynnt gegnum kallkerfi að allir gluggar skuli vera lokaðir vegna eiturefna sem berast frá eldinum. Ég skrapp útfyrir. Snjórinn var sumstaðar svartur og skyggni var lélegt. Ég þurfti að anda gegnum hnefann á mér vegna þyngd loftsins og [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 22, 2004 – 23:16
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fylgi fordæmi kanslarans:
Take the Dead German Composer Test!
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 22, 2004 – 22:21
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er almennur misskilningur að tónlistarmenn viti meira um lífið en annað fólk.
Alls ótengt, þá er lag dagsins „Drive“, með R.E.M.
Textabrot dagsins er úr sama lagi:
„Hey kids, shake a leg.
Maybe you’re crazy in the head, baby.
Ollie, ollie.
Ollie ollie ollie.
Ollie ollie in come free, baby.“
Þessi orð eru mjög við hæfi á þessum síðustu og verstu tímum.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 22, 2004 – 21:23
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér finnst ég þróttlaus frammi fyrir verkefni mínu. Þetta er verkkvíði sem verður vonandi horfinn á morgun.
Allir virðast byrjaðir að læra undir prófin nema ég. Ég tel þetta óþarfa hysteríu. Það eina sem bekkurinn þarf að óttast, miðað við frammistöðu í kennslustundum, er hagfræðiprófið, en það er síðasta prófið og nægur tími verður til að [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 22, 2004 – 17:49
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá er ég búinn að semja drög að formála (vá, hvað ég er mikið fífl. Hef haft tvo mánuði til að skrifa og ég er búinn að semja drög að formála). Nú vitna ég í sjálfan mig:
Markmið þessarar ritgerðar er að afhjúpa lexíkalíseraða latínu í germönskum málum, varpa ljósi á söguleg- og málfræðileg tengsl [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 21, 2004 – 23:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég fékk galna hugmynd í vinnunni í dag um að koma upp gagnvirku jóladagatali á blogginu mínu, eins og Sjónvarpið er með, sem lesendur gætu tekið þátt í. Þá kæmi nýr gluggi til að opna á hverjum degi sem hefði að geyma vísbendingu um það sem koma skyldi. Svo gerði ég mér grein fyrir því [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 21, 2004 – 20:56
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Óhappabloggarinn hefur umturnað blogginu sínu. Ég hef nokkrar athugasemdir um það:
1. Það lítur miklu betur út.
2. Vantar athugasemdakerfi.
3. Það virkar ekki í Netscape, algjört sköll.
Það var áreiðanlega eitthvað fleira, en þetta er það mikilvægasta.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 20, 2004 – 20:13
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hey, ég fékk hugmynd. Hvernig væri að Ikea bætti við sig deild – Hálfvitalandi – svo fólk geti skilið hálfvitana eftir þar meðan það verslar? Ekki myndum við, starfsfólkið, kvarta.
Þetta er augljóslega bylting gegn kúgun og offorsi mannsins gagnvart náttúrunni. Manni verður ekki um sel.
Og að „hagfræðiflokkurinn“ þurfi að láta segja sér svona hluti.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 20, 2004 – 19:41
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þegar ég bjó á Ítalíu sem barn átti ég eitt sinn rifrildi við ítalskan vin minn um hvort talan sjö kæmi á undan sex eða eftir. Ég hefði mátt vita að hann vissi það betur en ég, enda var ég ekki jafn vel talandi á ítölsku og hann.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 19, 2004 – 14:20
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Alveg hafði ég gleymt því að það var ball í gærkvöldi og þ.a.l. frí í fyrstu tímunum. Ég neyðist víst til að standa mína pligt, eftir aðeins sex tíma svefn sem fór allur í draum um að ég gæti ekki sofið.
Þetta er skammarlegt. Mér finnst ekkert merkilegt að samkynhneigðir hafi rétt á lögfestri sambúð. Það [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 19, 2004 – 08:25
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Erfiður dagur, massaði prófið, skemmtilega steiktur í vinnunni (ekki að furða), góður fundur. 36 tíma sólarhring dauðans er lokið. Í nótt sef ég ánægður.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 18, 2004 – 23:34
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hálfvibbalegur þessi Eiríkur Jónsson, þegar maður veltir því fyrir sér …
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 18, 2004 – 07:58
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Setningu dagsins á Morgunblaðið:
„… meðal annarra kunnra setninga eru: I’ll be back, sem Schwarzenegger sagði í The Terminator, Frankly, my dear, I don’t give a damn, sem Clark Gable sagði í Á hverfanda hveli, Show me the money, sem Cuba Gooding Jr. sagði í Jerry Maguire og May the Force be with you sem margir [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 18, 2004 – 07:16
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hjálpi mér hamingjan! Ég vakti alla nóttina við próflesturinn. Það var ekki góð ráðagerð miðað við hversu brjálaður dagurinn verður. Svona er að vera vitleysingur sem tekur sér tíma í að lesa svo hann njóti bókarinnar betur. Eða vitleysingur sem bloggar um sjálfan sig í þriðju persónu.
En mikið er ég feginn að hafa lesið bókina. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 18, 2004 – 07:02
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í samhengi við eip dagsins hlýt ég að álykta að í dag sé alþjóðlegi skurðaopnanadagurinn. Með þessu hef ég tryggt sjálfum mér heiðurinn að súrustu athugasemd dagsins.
Það er ekkert nema gott um það að segja að saxófónleikarinn fimi sé hætt að hlusta á 50 Cent. Enda tónlist hans varla áheyrnar verð. Nema frá sé talið [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 17, 2004 – 22:33
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég skil ekki orð af því sem hann skrifar, en þessi pólski bloggari er töffari, þó ekki væri nema vegna þess að hann er pólskur.
Á morgun er próf með tilheyrandi blóðsúthellingum. Þ.e. fyrir marga aðra en mig, sem kem til með að massa það. Morgundagurinn verður þreytandi þar sem hann er allur frátekinn fyrir fundi [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 17, 2004 – 17:41
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mikið friðar veðrið mig. Ég er aldrei þessu vant ósammála háværum röddum snjóhatara. Ég fagna snjónum og vil að hann tóri sem lengst.
Á svona dögum vantar mig kærustu til að gera snjókarl með. Ekki ætla ég mér að reyna að leika eftir hinn algenga höslgjörning kvikmyndanna, að finna einhverja fagra stúlku, gera með henni snjókarl [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 17, 2004 – 14:52
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er orðinn of alvarlegur bloggari. Það er ekki maklegt.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 16, 2004 – 22:25
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þvílíkt eip í kvöldfréttunum! Ólafur Sigurðsson talar frá Washington fyrir framan bluescreen af bandaríska þinginu um fund Davíðs og Powell, klukkutíma eftir að hann er búinn. Og svo hafði hann ekki nokkra hugmynd um hvað hafði farið þeirra á milli, þó augljóst megi vera, að Davíð hafi tuðað um „varnarmál“ íslendinga. Ekki veit ég [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 16, 2004 – 20:30
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ef stríð er það sem þið viljið, hvers vegna ekki að fá það beint í æð. Enginn skal reyna að réttlæta þetta fyrir mér. Ég veit ekkert skammarlegra og viðurstyggilegra. Þetta er hryllingur.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 16, 2004 – 18:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Helvítis eip er á athugasemdunum! Þær ýmist koma eða fara.
Áðan var himininn blár en nú er hann rauður. Það sem ekki hefur breyst er að enn snjóar og börnin eru enn að bisa við snjókarlagerðina úti í garði. Sjálfur gerði ég minn fyrsta snjókarl fjórtán ára. Talandi um að hafa misst af miklu …
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 16, 2004 – 17:05
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nei, það er alveg á hreinu að ég hætti ekki lífi mínu úti í þessu veðri. Nú er lag á að vinna að rigerðinni.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 16, 2004 – 15:53
- Author:
- By Arngrímur Vídalín