Mikið hefur verið dekrað við mig að undanförnu. Í gær fékk ég máltíð konunga: Rauðvínsleginn hamborgarahrygg með brúnuðum kartöflum, gulum baunum og brúnni sósu, og rauðvín var drukkið með. Á eftir er mér boðið í snittur, bjór og snafs, og ekki er það nú verra.
Svo er bókaskápurinn á leiðinni að fitna með laglegri og ómissandi [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 31, 2004 – 17:25
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Það er harmleikur þegar einn maður deyr, en þegar milljón manns deyja er það tölfræði“ er einhver sú mest pirrandi og ofnotaða tilvitnun sem ég veit um. Og ekki er nóg um að allir sextán ára og eldri þylji þetta upp í hvívetna eins og þeir séu klárasti maður á jarðríki, heldur er það hvernig [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 30, 2004 – 15:29
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þessi nýja auglýsing er asnaleg, þar sem allir íþróttakapparnir hlaupa um og leika listir sýnar. Sérstaklega atriðið þar sem einhver handboltakappi brýtur sér leið framhjá sjómanni, til þess eins að hoppa fram af bryggjunni og henda boltanum út í sjó. Og hvað er verið að auglýsa? Lottó!
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 29, 2004 – 20:22
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Leiðrétting hefur borist á seinustu færslu, en í ljós kemur að Mogginn birti fréttina um horfnu atkvæðaseðlana á forsíðu blaðsins. Sjálfur studdist ég við Netmoggann, enda les ég ekki pappírsófétið, en fann hvergi neitt sem impraði jafnvel örlítið á þessu mikilvæga máli.
Þakka Elíasi fyrir þessar upplýsingar.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 29, 2004 – 15:58
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Er ég hissa á að 60.000 utankjörfundaratkvæðaseðlar hafi horfið í Flórída í ljósi skandals síðustu kosninga og þeirrar staðreyndar að Jeb Bush er ríkisstjóri þar?
Og er ég hissa á því að Morgunblaðið minnist ekki EINU ORÐI á þetta? Svarið liggur í augum uppi.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 29, 2004 – 11:34
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í dag fékk ég Politik: magt og indflydelse i det politiske system að gjöf og þakka ég fyrir hana.
Einu verkefni fer senn að ljúka og taka þá önnur við; bæði ritgerða- og greinaskrif. Vonandi verða þau verkefni jafn skemmtileg eins og þau eru krefjandi.
Þetta eru alvarlegar ásakanir og nánast örugglega ósannar. Bandaríkin sætta sig ekki [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 28, 2004 – 18:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ætli undirritaður hafi ekki verið valinn í spurningalið bekkjarins fyrir innanskólakeppnina, ásamt þeim Skúla og Bjössa. Mér þykir bekkurinn ætla sér mikils. Það geri ég hins vegar ekki. Þvert á móti hengi ég mig í hæsta gálga ef ég hlýt jafn smánarlega útreið eins og í Njálukeppninni, þar sem mér var teflt fram sem einhverju [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 28, 2004 – 14:14
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ekki get ég tekið undir að tunglmyrkvinn hafi sést vel. Tunglið hvarf algjörlega sjónum þegar um 3/4 þess voru myrkvaðir. Ollu því skýin, sem grúfðu yfir öllu.
Þetta eru hræðilegar fréttir. Ég leyfi mér hins vegar að efast um að drengurinn hafi allt í einu snappað án þess að nokkuð lægi að baki. En eftir liggur [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 28, 2004 – 11:13
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
RSS fréttaveitan sem ég bjó til með hjálp Mikka vefs birtir ekki færslurnar mínar. Það er vegna þess að slóðin á síðuna mína birtist sem http://www.mikkivefur.is/rss/www.arngrimurv.blogspot.com – sem er bull. Og það er hvorki hægt að laga það né skrá nýja veitu fyrir bloggið mitt! Ég verð að segja að mér er ekki skemmt.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 28, 2004 – 00:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég mannaði mig loksins upp í að lesa um brennuna. Ég er ekki sáttur.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 27, 2004 – 20:47
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hjálpi mér, þetta ofsóknarbrjálæði! Þessar aðgerðir bandaríkjamanna eru gagnslausar gagnvart hryðjuverkasamtökum; þeir finna alltaf leið. Takið samt eftir setningunni „… þá verður krafist lífkenna, einkum upplýsinga um höfuðlag“. Þeir eru Lombrosomenn líka!
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 27, 2004 – 19:59
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég tel íslensku hafa farið aftur frá fornri tíð, í þann tíma er hún var rituð með hljóðtáknum í stað bókstafa. Það segir sig sjálft, að þeir sem numið myndu stafrófið, ættu mun auðveldara með að átta sig á framburði. Hefði þetta ekki breyst þyrfti enga séríslenska hljóðfræði – hana lærðirðu um leið og þú [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 27, 2004 – 15:56
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fjárinn hafi það! Hljóðtáknið fyrir ö (o-cedilla) birtist ekki nema í tölvu með Reykjavík Times leturgerðinni. Í stað þess birtist eitthvert déskotans a-umlaut. Það kemur ekki einu sinni nálægt því að vera sama hljóðið! Mælist ég til að allir lesendur sæki sér Reykjavík Times sér til yndisauka.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 27, 2004 – 13:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ah, VÄluspa átti það að vera. Þakka Vésteini kærlega fyrir.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 26, 2004 – 22:53
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ah, nú sit ég heima og drekk dýrindis Bókhlöðukaffi (hugsið ykkur tæknina nútildags, þegar ég get drukkið Bókhlöðukaffi heima hjá mér!). Þar fann ég bækurnar þrjár sem mig vantaði. Aðeins eina þeirra fékk ég að hafa með mér heim, þ.e. Germanic Texts and Latin Models: Medieval Reconstructions; hinar voru víst svo gamlar. Þetta er gott [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 26, 2004 – 16:55
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mikið er ég feginn að hafa ekki svona vinnufélaga.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 26, 2004 – 09:05
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég svaf frá klukkan hálfsjö í gær til klukkan hálfátta í morgun. Það var gott. Þetta er ekki eins gott, þ.e. að samkynhneigðir þurfi að nýta sér erlenda þjónustu til að geta eignast börn. Hvenær ætla ráðamenn að vaxa upp úr þessum fordómum sínum? Mér finnst þetta hálf barnalegt allt saman.
Og er þetta frétt? Ég [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 26, 2004 – 08:02
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er mjög þreyttur. Kannski spurning um að sofa, svona einu sinni? En hvað er ég annars að blogga um þetta?
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 25, 2004 – 18:32
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þetta er mjög góð grein. Segir eiginlega allt sem segja þarf.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 24, 2004 – 19:35
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ótrúleg þessi neytendalúnasía sem aftur endurspeglast í markaðshyggjubrjálæðinu. Fólk er svo ólmt í að kaupa jólavarninginn að fyrirtækin keppast um jólamarkaðinn og auglýsa jólahitt og -þetta svo snemma sem í október. Þetta gengur svo langt að fyrirtæki státa sig af því að hafa verið fyrstir til að auglýsa. Kannski mun þetta á endanum ganga svo [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 24, 2004 – 18:44
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mig vantar titil. Allir flottustu bloggararnir hafa titil (alltént virðist Blögginn ekki skorta heldrimannslegan titil). Til skamms tíma kallaði ég mig Nátthrafninn (lat. CORVVS NOCTVRNVS) því ég svaf aldrei, nema kannski á daginn. Þegar ég svo lærði að sofa skipti ég um titil og kallaði mig því óþjála og asnalega nafni Bloggari vegarins, en þó [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 23, 2004 – 20:47
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þeir í Ikea hafa tekið upp á því að selja glerbrot í pokum. En það sem meira er: Fólk kaupir þetta!
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 23, 2004 – 19:24
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Minningarbrot IV:
Ég man að eitt sinn sótti mamma mig og Sævar, bekkjarbróður minn, í skólann þegar ég var sex ára haustið 1990. Við keyrðum framhjá Þórsbakaríi (nú Kornið). Á hlið hússins var (og er) lóðrétt skilti sem á stóð Bakarí. Þá las Sævar á skiltð og sagði: „Írakab? Er það ekki eitthvað sem er alltaf [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 22, 2004 – 15:54
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef hafist handa við heimildaleit fyrir ritgerðina mína. Fyrst leitaði ég um alla málvísindahillu Bóksölu stúdenta og varð fyrir sárum vonbrigðum. Þar er einfaldlega ekkert sem tengist samanburðarmálfræði eða etýmólógíu. Þar voru að vísu ýmsar áhugaverðar bækur, svo sem Codex Wormianus And The First Grammatical Treatise, en ég get alltaf lesið það síðar.
Með sárt [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 21, 2004 – 18:42
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þetta er fyndið. Sérstaklega setningin „Vörðurinn ætlaði í hann og spurði jafnframt hvað hann héldi að þessir Íslendingar væru, að kalla sig heimsmeistara. Þeir væru bara fífl“. Auðvitað erum við fífl að hreykja okkur af einhverjum asnalegum hrossum bara vegna þess að þau geta tölt. Og að hugsa sér að ekki aðeins eigum við umboðsmann [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 21, 2004 – 11:54
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þarf í alvöru fjóra lögreglumenn til að handtaka einn mann?
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 21, 2004 – 11:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Bráðlega hefst ég handa við umfangsmikla ritgerðarsmíð. Vinnuheiti ritgerðarinnar er „Um etýmólógíu latneskra og germanskra orðstofna“. Vinnulýsingin gæti verið á þessa leið: Orðsifjafræðileg athugun á latneskum og germönskum orðstofnum og -málfræði, með hliðsjón af eldri rannsóknum innan fræðigreinar samanburðarmálfræði.
En að öðru. Engin svör hafa borist við spurningu gærdagsins, en ég neita að trúa því að [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 20, 2004 – 14:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Sá sem getur bent mér á aðra villu í innganginum sem ég birti í síðustu færslu fær verðlaun. Aðeins ein verðlaun eru í boði. Svör sendist hingað.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 19, 2004 – 16:15
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þýzkalandsfarinn gaf mér eintak af Wom Magazin áðan þar sem m.a. er birt viðtal sem Michael Ernst tók við meistara Tom Waits og ber yfirskriftina „Familienmensch“. Ekki líkar mér það uppnefni. Inngangur greinarinnar hljóðar svona:
Jahrzehntelang hat der Sänger, Komponist und Schauspieler Tom Waits an seinem schrägen Image gebastelt. Der harte Trinker, der Penner, der Melancholiker, [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 19, 2004 – 15:59
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Á svona dögum er lífið kalt og hræðilegt. Ofnarnir eru farnir að gefa sig og heimilið er í lamasessi. Enginn getur sig hrært af kulda nema hann sé undir sæng. Mér verður ekkert úr verki, enda er mér kalt og mér líður önuglega; eins og ég sé á síðasta snúningi með allt sem gera þarf [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 18, 2004 – 19:09
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hrós Fréttablaðsins fá grunnskólabörn fyrir að ganga ekki af göflunum í verkfallinu, eins og einhver hafi raunverulega búist við því. En það væri nú helvíti fyndið ef þau gengju skyndilega af göflunum.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 18, 2004 – 14:47
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það ætti að skjóta þetta djöfulsins pakk! Það er ekki allt í lagi með þetta fólk. Ekki myndi ég vilja vera meðlimur í félagi sem elur á fordóma og misrétti. Enda er ég það ekki – ég sagði mig úr þjóðkirkjunni fyrir nokkru og ég hyggst aldrei ganga í þann skítaklúbb aftur.
Stephen Hawking er ekki [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 18, 2004 – 14:05
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ojbara, hver leyfði þetta veður?
Ekki skil ég hvað þeim gengur til, þeim sem þetta styðja. Á að stöðva verkfallið með lagasetningu? Ég er ekki viss, en ég myndi ætla að það jafngilti afnámi verkfallsréttar kennara. Hvers vegna? Jú, allir eru svo mikið fyrir skyndilausnir í dag. Hver þarf verkföll þegar ríkið getur bara stoppað þau [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 18, 2004 – 13:54
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mr. Mister’s, “Broken Wings”
Misheard Lyrics:
Bake these chicken wings
No longer fry them up
Learn to live fat free.
Correct Lyrics:
Take these broken wings
And learn to fly again
And learn to live so free.
-Tekið af Am I right.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 17, 2004 – 19:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er ekki viss um fræðilegan möguleika þess að ég nái að opna Bibliotheca e archivi Aquilami Vidalin Stefanofilii almenningi á settum tíma, þ.e. á þriðjudaginn. Þetta er eiginlega of mikið basl. Og hér tala ég eins og ég sé að flytja, þegar ég í raun er aðeins að endurinnrétta eitt herbergi. En það skal [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 16, 2004 – 20:06
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Jæa, nú er komið að því. Í dag hefst ég handa við að umbreyta kompunni minni í flottasta bibliothek sinnar stærðargráðu. Gangi mér vel.
Ég hef alltaf verið svolítið svekktur yfir því að herbergið mitt er ekki undir súð, því eins og allir vita er nærri ekkert eins huggulegt. Fyrir nokkrum árum fékk ég þá hugmynd [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 16, 2004 – 13:29
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ætli einhver kaupi sér þetta? Eða þetta.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 15, 2004 – 23:17
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Alveg hverfa haustlitirnir í grámósku Reykjavíkur. Annað en á Akureyri, þar sem allt er svo fallega baðað í búningi haustsins um þessar mundir.
Mér þótti gaman að fá afgreiðslu í ríkinu í dag. Ég er ekki enn tvítugur, en afmælisdagurinn er á næstunni, þó ég láti nú vera að blogga um það.
Ég valtaði upp prófi úr [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 14, 2004 – 15:02
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Djöfulsins Árnason er þessi Mörður Valgarðsson!
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 13, 2004 – 23:10
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hier ist ein Blog eines Mann dass nie im Nacht geschlafen könnte. Morgens ist ein Prüfung in Njála. Der Mann dass hier gebloggt wird der Prüfung beherrschen. Ich bin der Mann – ich bin der Njálameister!
Ég er farinn að fá regluleg sms frá Heimdalli. Hverju ætli það gegni?
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 13, 2004 – 16:57
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Kemst ekkert annað að í fjölmiðlum en þessi déskotans fláráður Þorgerður Katrín? Stal þessi strengjabrúða íhaldsins senunni á Alþingi? Ekki veit ég það, en hitt veit ég þó að hún hefur stolið senunni í Fréttablaðinu. Hún var á hverri einustu síðu Fréttablaðsins í dag, og fyrir hvað? EKKI NEITT! Sem er raunar betra en ef [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 12, 2004 – 22:51
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Er börnum til þess eins bannað að draga plastpoka yfir höfuð sér svo þau geti gert það þegar þau verða fullorðin? Hvar er uppeldið á þessum frökkum?!
Ef marka má þau orð Stefáns Einars, er hann eitt sinn lét falla um Birgi Má Daníelsson, tel ég hæpið að síðarnefndur fái meira en eins og einn tónstiga [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 11, 2004 – 16:36
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Rússarnir fara. Þeir hafa sjálfsagt óttast fréttaflutning hins árvökula Bloggs vegarins og ótvírætt vald þess og þeirra, sem á því skrifa. Þar sést hernaðarmáttur rússa best, er þeir renna undan bloggara. Þar sést einnig að penninn er máttugri en sverðið.
Svo hefi ek svo eiplega heyrinkunnt gjört.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 11, 2004 – 15:52
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í raun og veru ætti ekki að kalla fjölmiðla fjórða valdið, heldur annað valdið, í ljósi þess að ríkisvaldið er óskipt.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 11, 2004 – 15:40
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fjórða valdið brauðfæðir fólkið á ótta, eins og þess er von og vísa. Á skömmum tíma hafa prentmiðlarnir hrætt fólk með sögum af rússneskum hermönnum, handrukkurum, hópamyndun unglinga, geitungum og mannýgum hundum í Seljahverfinu. Næst verða það brjálaðir pósthússtarfsmenn og útlendingar sem hafa af okkur vinnuna; hvorttveggja verandi urban legend.
Sams konar urban legend eru tíundubekkingar [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 10, 2004 – 23:00
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er að spá í að útbúa viðarristu til að hengja á herbergisdyrnar mínar til að veita herberginu virðingarfullan blæ. Á ristunni gæti t.a.m. staðið: BIBLIOTHECA E ARCHIVI AQVILAMI VIDALIN STEFANOFILII (er þetta rétt skrifað?).
Einnig stendur til að gera algjöra yfirbót á herbergismálum, þá sérstaklega hvað varðar magn hluta á gólfi og fjölda bókaskápa. Já, [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 10, 2004 – 17:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ekki get ég séð á myndinni, að köttur þessi hafi verið étinn. Nema einhver hafi tjaslað honum saman og þvegið eftir að hundarnir tveir skiluðu honum af sér.
Þetta er alveg magnað. Eins óhugnanlegt og það er, að heill rússneskur floti geti komist óséður að landi, hlýtur þetta að sýna fram á vanhæfni varnarliðsins. Bandaríkjunum er [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 10, 2004 – 11:59
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Inga Jóna er ekki mjög góð í íslensku. Hún notar orðið gæði sem hvorugkyns eintölu orð – oftast með greini. Það er ekki hægt. Það er eins og að tala um buxur sem buxið.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 9, 2004 – 22:52
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er augljóst af hagfræðibókinni minni að höfundurinn, Inga Jóna Jónsdóttir, er á móti mikilli einkaneyslu. Svo notar hún gjarnan tækifærið til að gera grín að hagfræðingum. Hún fellur samt í ónáð hjá mér fyrir að skrifa „fram-leiðsla“.
Categories: Óflokkað
- Published:
- October 9, 2004 – 21:44
- Author:
- By Arngrímur Vídalín