Ég verð að segja að mér finnst það ekkert erfitt! Það á að dæma dýraperra á grundvelli kynferðisafbrotalaga; það er nú ekki flóknara en það. Hversu erfitt getur það verið?
Categories: Óflokkað
Ég verð að segja að mér finnst það ekkert erfitt! Það á að dæma dýraperra á grundvelli kynferðisafbrotalaga; það er nú ekki flóknara en það. Hversu erfitt getur það verið?
Categories: Óflokkað
Þetta er fyndið: Skammaður af breska þinginu fyrir að taka í höndina á Robert Mugabe, forseta Múgabíu (áður Zimbabwe). Eftir atvikið skrifaði Mugabe eftirfarandi orð á bloggið sitt: „Is it because I is black?“ Efast engin um að sú spurning verði að einni hörðustu deilu 21. aldarinnar.
Categories: Óflokkað
Ég vissa það, þetta er að verða tíska! Mér sýnist einnig að blaðamenn Fréttablaðsins lesi bloggið mitt, því þetta er fyrsta skiptið sem þeir skrifa „öxi“.
Categories: Óflokkað
Nefndin sem veitir Edduverðlaunin kallar sig Akademíu. Ef þetta er ekki hjákátlegt …
Categories: Óflokkað
Mér virðist sem „axarmaðurinn“ sé íslendingur af gamla skólanum. Þessi leikur svo sama leikinn, sjálfsagt haldandi að hann sé frumlegur. Sem hann er ekki.
Leiðinlegt hvernig blaðamenn Fréttablaðsins skrifa alltaf „exi“. Það þarf ekki að vera rétt þó það standi í orðabókinni. Það sama gildir um kvk. no. „völ“. Það er algjör óþarfi að hafa tvö [...]
Categories: Óflokkað
Kominn heim úr Njáluferð. Hún var ágæt. Bjössi hrundi niður Stóru-Dímon. Það var fyndið.
Categories: Óflokkað
Nú, fóru viðgerðir á Alþingishúsinu fram úr kostnaðaráætlun? Aldrei hef ég áður heyrt að framkvæmdakostnaður ríkisins hafi farið fram úr áætlun (not!). Í raun og veru ætti ekki að birta svona fréttir. Þá kannski frekar ef framkvæmdir fara ekki fram úr áætlun. Það er eitthvað sem gerist aldrei.
Categories: Óflokkað
Ármann Jakobsson skrifar skemmtilegan pistil á Múrnum.
Categories: Óflokkað
Hversu margir ætli hafi lent í því að keyra út í búð og ganga heim, algjörlega búnir að gleyma bílnum? Ekki veit ég það svo gjörla, en þetta gerði ég áðan.
Categories: Óflokkað
Ekki veit ég hvurslags fólk heldur vöku fyrir nágrönnum sínum með svívirðislega hárri tónlist klukkan fjögur á næturna, og þó. Það er týpan sem býr í stigaganginum mínum. Svona framkoma er hreint óþolandi og nóg til að láta eðlilegasta fólk snappa. Ég verandi eðlilegur (eða þannig).
Categories: Óflokkað
Í Brennu-Njáls sögu er ein flottasta frásögn sem ég hef lesið (úr köflum 78 til 79):
Þeir Skarphéðinn og Högni voru úti eitt kveld og voru fyrir sunnan haug Gunnars. Tunglskin var bjart en stundum dró fyrir. Þeim sýndist haugurinn opinn og hafði Gunnar snúist í hauginum og sá í móti tunglinu. Þeir þóttust sjá [...]
Categories: Óflokkað
Eipið leynist víða.
Categories: Óflokkað
Hér sé fárviðri! Á svona dögum þykir mér best að sitja heima undir hlýrri sæng, með góða bók, tebolla og köttinn malandi ofan á mér. Þess í stað sit ég á Bibliotheca Schola Babtisteria, bíðandi eftir að latínan hefjist.
Categories: Óflokkað
Mörður Valgarðsson er eitthvað það mesta fúlmenni sem sögur fara af. 30, jafnvel fleiri, mannslíf. Það þykir honum lítill fórnarkostnaður fyrir að klekkja á Gunnari. Hvers vegna, kynni einhver að spyrja. Að ástæðulausu! Hann er bara gegnheilt illmenni – eins og Svarthöfði, sem bældi niður heilu vetrarbrautirnar undir járnhnefa sínum, að því er virtist af [...]
Categories: Óflokkað
Ef það vantaði skilgreiningu á að kasta steini úr glerhúsi, þá væri þetta hún. Hvenær ætli Zimbabwe hlotnist annars heiðurstitillinn Múgabía?
Þetta er ekki ný frétt. Það er heldur ekkert nýtt að skoðanakannanir Fréttablaðsins stangist á við raunveruleikann.
Morgunblaðið sýnir sinn rétta lit í dag; ekki mega kjósendur Sjálfstæðisflokksins tefjast í umferðinni meðan fólk deyr úti á [...]
Categories: Óflokkað
Hér sést gjörla munurinn á fréttaflutningi Fréttablaðsins og Moggans. Dæmi hver fyrir sjálfan sig.
Í dag kom eitthvað dáleiðslufífl í skólann. Ég missti af því, en ég hefði viljað vera þar og láta drauminn rætast: Að fara upp á svið sem sjálfboðaliði og látast ekki dáleiðast, til að sanna mál mitt, að svona karlar eru svikarar [...]
Categories: Óflokkað
Ég er viss um að engum þótti síðasta færsla fyndin.
Ef þú spyrð sex ára strák að því hvað hann vilji verða þegar hann verður stór, benda allar líkur til þess að hann vilji verða lögga. Sumir vilja m.a.s. gerast „leynilöggur“. Ef börn vissu hvað etýmólógískar rannsóknir á latínu, grísku og germönskum málum eru miklu meira [...]
Categories: Óflokkað
Úr dagbók lögreglunnar:
Koðrán Styrkársson Andersen, sakborningur í Núpalindarmálinu, játaði í dag sekt sína og leiddi lögreglu að felustað líks Ástvalds G. Eiríkssonar, hafnarverkamanns, í Hafnarfjarðarhrauninu á ellefta tímanum í morgun. Kom lögreglu það í opna skjöldu, að umrætt lík var eigi téður Ástvaldur G., heldur Geirfinnur Einarsson, hver lengi hefur oss týndur verið. Neitar Koðrán [...]
Categories: Óflokkað
Nei, ríkið á ekki að skerast í deilumál einstakra starfsstétta við launagreiðendur sína. Þá verður kröfum kennara ekki mætt, þó þeir kannski skrifi undir. Það er ávísun á annað verkfall innan örfárra ára; það er það sem alltaf hefur gerst í launabaráttu kennara og það er ekki ríkisins að skarast í leikinn og ákveða hvenær [...]
Categories: Óflokkað
Það er fyndið að birta frétt um ákærumál fyrirtækis á helstu vefsíðu þess (dæmi um hlutlægan fréttaflutning?). Það er álíka kjánalegt eins og þegar Netmogginn auglýsti nýja heimasíðu Netmoggans.
Þetta er einnig fyndið. Sjáið þið ekki fyrir ykkur angist íbúanna þegar Saddam flytur í hverfið? Það verður erfitt fyrir hann að vera Saddam granni, gamli karlinn [...]
Categories: Óflokkað
Setning gærdagsins:
„Ef Morgunblaðinu væri annt um að þakka einhverjum útlendingi sjálfstæði Íslendinga þá væri Adolf Hitler kannski betri kostur því að hernám Danmerkur hafði heldur meiri áhrif á fullt sjálfstæði íslendinga en stuðningur Bandaríkjastjórnar þó að hann hafi auðvitað verið vel þeginn og þáverandi Bandaríkjastjórn til sóma.“
-Ármann Jakobsson á Múrnum.
Categories: Óflokkað
Í Fréttablaðinu er mynd af tíundabekkingum með kröfuspjöld. Á einu þeirra stendur: Við viljum stafsetningu. Verandi í tíunda bekk og ekki kunnandi stafsetningu hlýtur annað hvort að sýna fram á óþurft kennaranna eða fáfræði þess sem ekki kann, hafandi numið hana alla sína grunnskólatíð. Verandi í tíunda bekk og ekki kunnandi stafsetningu þýðir að viðkomandi [...]
Categories: Óflokkað
Þetta er gott dæmi um það sem ég kalla þriðjapersónuskot.
Categories: Óflokkað
Kvæði þetta tileinka ég Þorkatli Gunnari Sigurbjarnarsyni (hah! Þágu- og eignarfallsdiss!), sem keyrði mig heim, og bregð ég nú við drengskap hans:
Fjekk eg far hjá fagrhærðum
fákadróttni er Þorkell kallask.
Eptir gjörviligu ok ginnheilögu
guðsins orði hann ætíð fer.
Til stóð að Björn Freyr Björnsson, lögmaður frá Skegghömrum, skutlaði mér heim, en allt kom fyrir eigi. Svona hefði vísan [...]
Categories: Óflokkað
Horfði á CSI í gærkvöldi. Það er sannarlega þáttur dauðans. Sérstaklega fannst mér lokauppgötvun Grissoms klén, þegar hann fann út hver morðinginn var vegna sígarettuösku undir skóm þess sama.
Mér segir svo hugur að Grissom verði drepinn úr handritinu, en Grissom þykir mér sýna nógu miklar grundvallarskapgerðarbreytingar til að deyja á næstunni. Hvers vegna? Jú, ein [...]
Categories: Óflokkað
Eip.
Categories: Óflokkað
Gísli Marteinn Baldursson segist ekki vera kona, samt er hann nefndur ein vinsælasta sjónvarpsman þjóðarinnar á síðu 49 í Fréttablaðinu í dag. Oft leynist eyrarúna fölsku flaggi undir.
Categories: Óflokkað
Skrýtin frétt. Hvernig getur farþegi í eigin bíl verið stöðvaður af lögreglu? Hér mun við málfarsráðunaut Moggans að sakast. Það er a.v. líklegra en að þetta sé allt stórt samsæri um að koma Macaulay Culkin í fangelsi. Annars hafa sögur af skítlegu eðli Culkin borist mér til eyrna allt frá því ég var tíu ára, [...]
Categories: Óflokkað
Mér heyrist af sænsku stórveldiskaupmönnunum að ætlast sé til að ég mæti til vinnu þessa fríhelgi mína. Gangi þeim vel að tjónka við manni sem ekki hefur sofið þrjár nætur í röð.
Nú, með nýjum ritstjóra af gamla skólanum hefur vefsíða Fréttablaðsins og DV (Draslblaðið vitleysa?) hrunið. Út með það nýja, inn með það gamla. Sérstaklega [...]
Categories: Óflokkað
Bróðir minn stendur í ströngu þessa dagana við að formæla hinum og þessum. Þetta er t.a.m. mjög málefnaleg og vel rökstudd gagnrýni á slæm rannsóknarefni. Þetta er einmitt það sem gerist þegar félagsfræðingar hafa annað hvort of lítið að gera eða of lítið hugmyndaflug.
Categories: Óflokkað
Ég veit ekki hvort ég hafi þetta af, þetta ætlar að verða þriðja nóttin í röð sem ég sef ekkert. Í gær náði ég ekki að sofna fyrr en undir átta um morguninn og nóttina áður náði ég ekki að sofna fyrr en upp úr fimm. Kann ég enga útskýringu á þessu þar eð ég [...]
Categories: Óflokkað
Keypti tvær Þórbergsbækur (Ýmislegar ritgerðir I & II), mætti á málfund um réttindi samkynhneigðra (eitthvað sem varðar okkur öll!), mætti ekki í skólann (til hvers?) og missti af forprófunum fyrir Gettu-betur. Ekki amalegur dagur að síðasta liðnum undanskildum.
Yfirlýsing Kofi Annan hefði ekki átt að koma neinum í opna skjöldu. Þvert á móti hefur afstaða hans [...]
Categories: Óflokkað
Netið er lítið. Áðan uppgötvaði ég að sá Kristján sem heldur uppi þessari heimasíðu er sá sami og kenndi mér eðlis- og stærðfræði í aukatímum. Já, netið er lítið.
Categories: Óflokkað
Forðist Sundlaugaveginn fyrir alla muni! Uppsetning tveggja umferðarljósa við gatnamót Sundlaugavegar og Laugalækjar; Sundlaugavegar og Reykjavegs (með tíu metra millibili) er ávísun á umferðarteppu, og það er nákvæmlega það sem gerst hefur. Mér finnst að þetta hefði mátt leggja fyrir íbúa Laugarneshverfis áður en þetta var gert. Enda bitnar þetta aðallega á okkur sem búum [...]
Categories: Óflokkað
Lag dagsins: Mayonaise – Smashing Pumpkins. Sérstaklega setningin „Try to understand, that when I can, I will.“
Annars sýndist mér af því sem ég sá gegnum ruglið á Sýn að verið væri að bera Eið Smára alblóðugan út af velli. Alltént hefur einhver glatað dreyra sínum á fínu hvítu treyjuna sína.
Categories: Óflokkað
Fátt er með svo öllu gott að ekki boði nokkuð illt.
Categories: Óflokkað
Hvað hefur dagurinn minn farið í, utan að dissa Howard Gardner? Jú, hann hefur farið í að hlusta á símann hringja. Það mun vera verknaður vina litla bróður míns.
Það er góð og gild regla þegar maður hringir í fólk, að láta símann aldrei hringja oftar en fjórum sinnum. Vitaskuld eru vinir bróður míns undanþegnir allar [...]
Categories: Óflokkað
Enn ein andvökunóttin afstaðin. Ég komst að því áðan að félags- og afbrotafræðikennarinn minn er Howard Gardner-isti. Það þykir mér heimskulegt. Kenning hans snýst í meginatriðum um að maðurinn sé í raun fjölgreinda, þ.e. sé ekki aðeins greindur í almennum skilningi (t.d. „rökgreind“ og „stærðfræðigreind“), heldur líka listgreindur, málgreindur og tilfinningagreindur svo eitthvað sé nefnt.
Þetta [...]
Categories: Óflokkað
Leyfi mér að svara Bibba: Vissulega er doktorsnafnbót lögvernduð. Þ.e.a.s. að þú mátt ekki kalla þig doktor nema þú hafir í raun og veru staðist doktorspróf. Ef spurt er um mannsnafn aftur á móti horfir málið allt öðruvísi við. Fyrst sadistar í Bandaríkjunum mega nefna börnin sín Xerox (e. ljósrit), hlýtur Doctor, eða jafnvel Dr, [...]
Categories: Óflokkað
Mér sýnist þeir vera að yfirgefa svæðið. Sem er afar merkileg tímasetning því senn geri ég slíkt hið sama.
Categories: Óflokkað
Hvernig verkamaður vinnur eftir klukkan fjögur á daginn?
1. Ofurmennið
2. Verkamaður dauðans, sem skeytir engu um geðheilsu fólks og vinnur eins lengi og honum sýnist og það í tvennum tilgangi:
Til að hala inn pening
Til að láta alla nábúa snappa
Ég hallast að svari tvö.
Categories: Óflokkað
Fokkíng framkvæmdir! Svo er svalahandriðið horfið (!). Ætli verið sé að rífa húsið mitt og láðst hafi að láta mig vita? Hér leikur alltént allt á reiðiskjálfi, svo það útilokar viðgerðir. Enda hér umhorfs eins og suðurlandsskjálfti dauðans hafi riðið yfir.
Ef ég ætti fartölvu gæti ég farið eitthvað annað, en ég á ekkert slíkt. Aukinheldur [...]
Categories: Óflokkað
Hér er ekki vinnufriður fyrir framkvæmdum! Áreiðanlega verður mér sagt að ég standi í vegi fyrir framförum, en ég lýsi mig hérmeð eilífan óvin framkvæmda (í mínu nágrenni).
Categories: Óflokkað
Ég hef óskað eftir að fá að taka stöðupróf í ensku. Mun það til komið vegna eigin drambsemi, en ég tel mig þegar fullnuma í námsefni vetrarins og þ.a.l. ekki græða neitt á að mæta í kennslustundir. Þar að auki er vöntun bæði á kennslu og aga. Væri hinu síðarnefnda kippt í liðinn myndi hið [...]
Categories: Óflokkað
Fyrir þá sem vilja losna við stikuna efst af bloggunum sínum.
Categories: Óflokkað
Þá er ég kominn aftur úr ferð út í hverfiskondítoríið. Frá þeirri ferð er að segja, að í sömu svipan og ég kveikti mér í sígarettu við útidyr húss míns, veittist að mér gamall maður. Mælti hann þau orð: „Varaðu þig, sígarettur geta valdið krabbameini.“ „Nú,“ sagði ég „ekki vissi ég það. Það getur vel [...]
Categories: Óflokkað
Bróðir minn birtir niðurstöður skoðanakannanar á blogginu sínu og eru svarendur þar taldir 52. Þetta þykja mér tíðindi, enda þekkir bróðir minn ekki svo marga og enn færrri lesa bloggið hans.
Við Binni vorum samferða upp í þjóðskrá eftir skóla og skráðum okkur úr þjóðkirkjunni, því helvítis bákni. Löngu orðið tímabært að ég léti verða af [...]
Categories: Óflokkað
Í gær voru þrjú ár liðin frá hryðjuverkaárásunum sem gerðar voru á Bandaríkin; aðdraganda tröllreiðar Bandaríkjanna yfir austurlönd sem enn sér ekki fyrir endann á. Að venju var þessa minnst, þó mesta harmleiknum sé vitanlega sleppt úr pakkanum. Sama dag var fjallað um forskot Bush á Kerry í skoðanakönnunum. Það er ills viti að bandarísku [...]
Categories: Óflokkað
Afstaða þessara þingmanna kemur mér ekki á óvart. Alltaf virðist það eina lausnin að beita ógn til að halda friðinn. Það er til önnur lausn, en ekki ef þeir vilja halda Tjeténum áfram í gíslingu. En friði verður aldrei haldið með vopnavaldi.
Þessi frétt er rosaleg. Ég á ekki til eitt aukatekið orð.
Categories: Óflokkað
Mig hefur ætíð langað til að valda einhverjum hugarangri. Mér finnst það töff. Sjáið þið það ekki fyrir ykkur, mig sitjandi inni á myrkvuðu bókasafni rýnandi í skræður fornar og handrit fyrrum konunga, sem löngu eru fallnir í gleymskunnar dá. Gamall maður í tættum rykfrakka með Stetsonhatt vindur sér upp að mér og rýfur þögnina [...]
Categories: Óflokkað