Þessa stundina sit ég á Bibliotheca Schola Babtisteria, eða bókasafni Menntaskólans við Sund. Ástæða þess mun vera sú að ég gerði ekki ráð fyrir því að íþróttatíminn ætti sér stað utandyra í þessu fárviðri andskotans. Slíkar pyntingar þykja mér með öllu ótækar og afréð ég af þeim sökum að brokka eigi á inniskónum (þ.e. íþróttaskóm [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 31, 2004 – 11:24
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Sáttur við veðrið. Þetta er veður til að sitja inni með lak ofan á sér og malandi kisu; góða bók, mat og drykk. Desværre þarf ég að sækja bróður minn í vinnuna og þar með yfirgefa sæluna.
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 30, 2004 – 22:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það þarf engan Clint Eastwood til að sleppa af Hrauninu. Öðru máli mun gegna um Alcatraz.
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 30, 2004 – 22:36
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er ekki frá því að skammdegið sé þegar farið að hafa áhrif á skaplyndi mitt. Annars náði ég mér í forritið Radio@Netscape. Lofa þeir ókeypis aðgangi að 175 útvarpsstöðvum sem að forritinu standa. Þá varð ég fyrir vonbrigðum að finna ekki útvarp allra landsmanna meðal þeirra stöðva. Þar kennir þó margra grasa, t.a.m. Led [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 30, 2004 – 22:25
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Amma mín fer jafnan mikinn í háðsglósum sínum og fordæmingum á öðru fólki, svo lokar hún fyrir eigin rökskilning þegar við hana er átt. Það er einfaldlega ekki hægt að rökræða við svona fólk. Þegar þannig er í pottinn búið, fer fólk að segja hluti sem það sér eftir. Ekki sé ég eftir neinu en [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 30, 2004 – 21:06
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það hendir mig oft að fólk hringir í mig þegar ég les (ég les mikið). Þegar ég er spurður hvað ég sé að gera, segist ég „bara vera að lesa,“ og sá sem hringir svarar: „Já, ókei“ og heldur áfram að tala! Það er semsagt ekkert merkilegt að ég sé að lesa og það er [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 30, 2004 – 18:55
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Andskotinn! Rétt í þessu hringdi yfirmaður minn í Ikea. Ég horfði á símann og ákvað að ég myndi ekkert vinna þessa viku. Hvað gerðist? Jú, áður ég vissi af var ég skráður til að vinna alla vikuna! Hví er mér um megn að segja nei við tilboðum Satans?
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 30, 2004 – 14:01
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Skemmtilegasti skóladagurinn til þessa. Hagfræðikennarinn hélt mér eftir tíma og bað mig vinsamlegast um að stilla sér ekki upp við vegg með skotum á ríkisstjórnina, en skömmu áður hafði ég gert athugasemd við áætlun stjórnvalda að draga úr þenslu og lækka skatta á sama tíma. Þó hún væri mér sammála, að þær aðgerðir eigi ekki [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 30, 2004 – 13:46
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fyndið þykir mér, að nær enginn þekkti Forest Whitaker, fyrr en hann kom til landsins. Undanfarin ár hef ég oft minnst á hve mikil synd það er, að Whitaker leiki svo sjaldan í kvikmyndum. Hafa svörin oftast verið á þá leiðina, að viðmælendur mínir vita ekki hvern ég á við. Nú hefur þó orðið kúvending. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 29, 2004 – 18:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég afgreiddi sjálfan Hannes Hólmstein í Ikea í dag. Því miður keypti hann sér ekki Hannes-skrifborð, en ég held í vonina að hann geri það næst.
Í nótt dreymdi mig einkar sérkennilegan (og ógeðfelldan) draum sem ónefndur vinur minn kom við sögu í. Mun ég ekki lýsa innihaldi hans hér nema með leyfi viðkomandi.
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 29, 2004 – 18:34
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Meira um holdarfar, en íþróttakennarafélag Íslands vill þröngva daglegri íþróttaiðkun upp á íslenskt skólafólk, því forsvarsmenn þess hafa áhyggjur af holdafari íslenskra ungmenna. Þá spyr ég: Á skólinn ekki að snúast um menntun fremur en líkamlegt atgervi? Hvað koma íþróttir menntun við? Ef fólk hleypur í spik, þá er það agavandamál sem það sjálft þarf [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 27, 2004 – 16:03
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég varð fyrir vonbrigðum með latínuna. Það er ekki útlit fyrir að þetta verði neitt sérlega krefjandi vetur.
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 27, 2004 – 15:06
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér finnst merkilegt hvað fólk virðist hafa rosalegan áhuga á Supersize Me, myndinni um gaurinn sem borðar eingöngu McDonald’s í heilan mánuð. Gerir fólk sér grein fyrir því að það er að fara að horfa á gaur borða í 90 mínútur? Svo vita allir hvernig hún endar: Gaurinn verður feitur og drepst nærri því úr [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 26, 2004 – 21:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér miðar vel áfram í þeirri viðleitni minni að gerast uppáhaldsnemandi allra kennara minna (að íþróttakennaranum undanskildum). Fröken Þormar, hagfræðikennari, var frá sér numin af ánægju er við Skúli spurðum hvort við fengjum að læra um þá Adam Smith og Milton Friedman. Spurði hún mig meðal annars hvers vegna ég væri ekki á hagfræðikjörsviði. Ég [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 26, 2004 – 15:18
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er að leka niður af þreytu eftir að hafa verið á þönum um allt í tæplega tólf klst. Í kvöld verð ég heima, sama hvað dynur á. Mér hlýtur að takast að vera heima a.m.k. eitt kvöld. Mér er jafnvel farið að finnast ég ekki eiga neitt heimili, nema þá kannski til að sofa, [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 25, 2004 – 20:17
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Annasamur dagur í dag. Skólinn var settur með pompi og prakt á slaginu níu í morgun. Ekki nenni ég að fara ofan í saumana á því máli, en ég er alltént ánægður með að vera kominn aftur í skólann.
Keypti Frank’s Wild Years með Tom Waits í Hagkaupum á kr. 990 íslenskar. Það kalla ég kjarakaup!
Keypti [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 24, 2004 – 17:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Við Bibbi virðumst deila ástríðu á að ala upp órangútanapa á vissan hátt.
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 23, 2004 – 13:59
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í nótt dreymdi mig að ég hefði farið til Grænlands. Það var mjög gaman. Mæli með því að þið kíkið þangað.
Í gær fór ég ásamt Einari á Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð í Borgarleikhúsinu. Sýningin fór fram úr mínum björtustu vonum, enda svo sem ekki von á öðru en góðri sýningu ef miðað er við hverjir stóðu að [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 23, 2004 – 13:44
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ensk mannanöfn sem þýða „jól“ á ýmsum tungumálum: Noel, Jules, Natalie og Christmas. Ef einhver veit um fleiri er um að gera að láta mig vita.
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 22, 2004 – 17:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fimm hlutir sem ég ætla að gera fyrir þriðjudaginn
1. Halla undir flatt
2. Dæsa af andakt
3. Drepa tittlinga
4. Galvanísera bárujárn mitt
5. Yrkja af andans elju
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 22, 2004 – 16:56
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Merkilegt þykir mér hvað menn taka sér fyrir hendur á menningarnótt. Morgunblaðsmönnum finnst einnig fréttnæmt að mikill mannfjöldi hafi verið í miðbænum og að mikið hafi verið um ölvun.
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 22, 2004 – 13:10
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég fór út í bakarí áðan og rak þar augun í skemmtilega vörumerkingu. Þar var kaka, ekki ósvipuð sveskjuköku, merkt sem „hjónabandsæla“. Kærði ég mig kollóttan um slíka köku og fékk mér vínarbrauð. Mig langaði til að benda afgreiðslustúlkunni á hversu kræsilegri kakan yrði ef öðru s-i yrði bætt inn á merkimiðann en afréð að [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 20, 2004 – 14:44
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég þoli ekki sumartímann. Hvert vor fyllist ég væntingum til sumarsins – haldandi að ég muni geta gert margt sem ég ekki gat sökum skólans – fullur tilhlökkunar til allra partýanna, ferðalaganna og kaffihúsaferðanna í góða veðrinu. Allt er þetta kjaftæði og yfirleitt gengur ekkert af þessu eftir. Mér til mikillar gleði, lauk sumrinu í [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 19, 2004 – 16:43
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Lesendur hafa augljóslega ekki hætt lífi og limum til að gera athugasemdir í dag, enda þótt síðasta færsla væri meira upp á grínið en hitt, og enda þótt flestu gríni fylgi nokkur alvara.
Sigur íslendinga á ítölum er vissulega afrek sem á engan sinn líka í íslenskri fótboltasögu (komi það í ljós að álíka merkilegt afrek [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 18, 2004 – 23:57
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Stundum verð ég svo fjúríus að mig langar að rífa vissa aðila á hol, tæta upp úr þeim innyflin, gúffa þeim í mig og öskra illyrmislega yfir skrokkum þeirra með hálftuggið hold millum tannanna. Þannig leið mér einmitt fyrir skömmu. Ég vona viðkomandi vegna að enginn reyni að messa við mig í dag, ella á [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 18, 2004 – 16:46
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er kominn með þvílíkan vinnuleiða, en skólinn hefst eftir átta daga og þá get ég tekið gleði mína að nýju.
Eftir umfangsmikla leit heima við, að hinni helgu bók Kristins Ármannssonar, neyddist ég til að kaupa mér nýtt eintak. Sem er synd, því aldrei er gott að eiga tvö eintök af sömu bókinni, en eru [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 16, 2004 – 15:24
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Alltaf þegar ég sé skota fyllist ég löngun til að tala við þá á þessum nótum:
Ég: „Who are ye, wee man?“
Skoti: „Angus McHaggis of the McLauchlan clan, ye puny nancyboy!“
Ég: „McHaggis, eh? I knew your father, Robert ‘Mutton’ McHaggis, and a right bastard ‘e was.“
Skoti: „Aye.“
Ég myndi sóma mér ágætlega á Skotlandi, tossin’ em cabers [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 16, 2004 – 14:26
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Að sjálfsögðu þurfti KB banki að birta auglýsingu mér til rökstuðnings: „Þegar landsliðið keppir, þá keppir öll þjóðin.“
Aldrei hef ég keppt í fótbolta og ekki ætla ég að byrja á því þó KB banki segi það.
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 14, 2004 – 17:25
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Alveg er ég gapandi bit yfir fjölda réttra svara við getrauninni – þau eru engin. Og mér sem fannst þetta í auðveldari kantinum. Þeir sem gerðu tilraun til svara flöskuðu á því að ég spurði aldrei um fótboltalið eða landslið eða neitt í líkingunni. Ég spurði hvaða þjóð er best í fótbolta og eina rétta [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 14, 2004 – 15:29
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er hundfúll. Ekki út í neinn sérstakan þó. Ég hef verið í vondu skapi síðan ég kom heim úr för minni til Rómaveldis ins forna, enda ekkert við að vera hérna heima. Hver dagur er öðrum verri – kannski vegna þess að þeir eru allir eins – og án tilbreytingar er lífið leiðinlegt. Mikið [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 14, 2004 – 04:34
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í DV dagsins í dag er sagt frá dæmdum nauðgara sem vann 90 milljónir í lottó meðan hann sat inni. Að sögn þess sem ritar er allt brjálað í Englandi vegna þessa, og segir innanríkisráðherra Englands, að hann muni beita sér fyrir því að komi þetta upp aftur, muni vinningshafinn skyldur gjör til að leggja [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 13, 2004 – 18:32
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ekkert rétt svar hefur borist við getrauninni enn. Læt þó bíða með að birta svarið. Einhver hlýtur að luma á því. Ítreka þó að ég vil fá svör með tölvupósti. Netfangið, svo sem alltaf hefur verið, er arngrimurv@simnet.is.
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 13, 2004 – 11:37
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Quote dagsins:
Mr Burns: “Smithers, who is that watercloset caddie?”
Smithers: “Homer Simpson, sir, from sector 7-G – but I don’t think that …”
Mr Burns: “He reminds me of myself, and the match I played with president Nixon. He was always such a sore loser: ‘I can’t go to Jail, Monty. They’ll eat me alive!’
… I wonder [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 11, 2004 – 17:04
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hafði lofað sjálfum mér því að blogga aldrei um tölvuleiki, enda með eindæmum hallærislegt. En Doom III stendur öllum mínum vonum framar, og þá er mikið sagt, enda er ég sérfróður um allt sem viðkemur Doomseríunni. Ég er ekki frá því að ég sé að nálgast taugaveiklun, svo hryllilegur er leikurinn.
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 10, 2004 – 23:20
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er erfitt líf og ekki á færi allra að vera „Blöggur“!
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 10, 2004 – 00:18
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ekki veit ég með þetta, enda eru Vinstri-grænir sósíalistar og kalla sig engu öðru nafni. Sumir kalla sig raunar komma, en það gerir þorri íslenskra vinstrimanna aftur á móti ekki. Alltént ekki svo ég viti til.
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 10, 2004 – 00:14
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Er hægt að spila leiðinlegri tölvuleik en Championship Manager? Það finnst bróður mínum ekki, enda ekki að spyrja að sérviskunni.
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 9, 2004 – 18:21
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég játa það fúslega að ég hef frá litlu að segja í dag. Best þykir mér að skrifa þegar ég er grautfúll yfir einhverju, en því er ekki að skipta. Ekki að ég sé í góðu skapi. Ekki láta ykkur detta það í hug.
Ef eitthvað, þá dregur það helst til tíðinda að vinur minn var [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 9, 2004 – 17:06
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég þoli ekki þegar fólk segir að eitthvað sé það eina sem „blífar“, þá væntanlega í merkingunni að duga. Þetta er ekki íslenska. Þetta er ekki einu sinni danska, þar sem sögnin at blive í dönsku þýðir að verða að einhverju. Þeir sem þetta brúka, réttlæta notkunina á þeim forsendum, að það sé hreintungufasismi að [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 9, 2004 – 00:47
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hvað síðustu færslu varðar hafði ég að sjálfsögðu mínar eigin hugmyndir um hvaðan vindurinn kæmi þegar ég var lítill. Áleit ég að hreyfing skapaði vind (sbr. þegar þú hleypur, þá heyrirðu í vindinum) og að vindurinn skapaði svo meiri hreyfingu. Í upphafi var allt kyrrt, svo kom fyrsti maðurinn og lærði að hreyfa sig. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 8, 2004 – 19:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fátt þykir mér skemmtilegra en alþýðuskýringar. Alþýðuskýringar eru, þegar menn vantar svör, hafa engin og búa þau til. Sem dæmi má nefna iðnaðarmennina í Grafarholtinu, sem furðuðu sig á hve seint verk þeirra gekk. Að lokum urðu menn sáttir á að þar væri álfabyggð (!) og að téðir álfar væru ekki par ánægðir með stóriðjuna. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 8, 2004 – 18:54
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Dropinn holar steininn þykir mér ágætt máltæki, ekki bara vegna þess að ég vinn í Ikea, þar sem mannsandinn bugast smám saman af allri þeirri geðillsku sem fellur á starfsmenn eins og beljandi stórfljót. Það er aðeins fagurfræðilegt mat mitt á þeim ágæta vinnustað en, hvað máltækið varðar, á það við um fleiri hluti en [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 8, 2004 – 18:51
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér finnst þessi frétt fyndin, sérstaklega í ljósi þess að blaðamaðurinn sem hana skrifar gerir augljóslega upp á milli frambjóðenda.
Þessi frétt er líka fyndin. Mér virðast menn komnir með buxurnar niður á hæla þegar þeir telja mönnum það til miska að andmæla stríði. Vissulega liggja fleiri ástæður þarna á bakvið, en þessi sneið vakti hjá [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 7, 2004 – 23:08
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hjálpi mér! Nú verða systrungar hinir ódælustu.
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 7, 2004 – 22:53
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef ákveðið að svara Silju með mínum eigin lista yfir 13 hluti sem ég ætla að hafa lokið af áður en ég verð 25 ára, ekki að mér liggi neitt á, eða að ég skilji hvers vegna þeir þurfa að vera 13 – hlutirnir, það er. Er þetta ekki birt í neinni sérstakri röð:
Kenna [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 7, 2004 – 22:49
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Á Ítalíu er mjög gott kaffi. Svo gott að kaffið á Íslandi má viðbjóður heita í samanburði. Uppáhaldið mitt úti var svonefnt café grappa, eða espressó í jöfnum hlutföllum við hinn bitra grappasnafs, flösku af hverju ég hafði með mér þaðan.
Nú, ég gerði mér lítið fyrir áðan og keypti mér espressokönnu og Lavazza. Eftir grandskoðun [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 7, 2004 – 19:30
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það var ekki fyrir mörgum vikum að ég sá ævisögu Margaret Thatcher, ævistarf Ronald Reagan, Afmælisrit Davíðs Oddssonar og stjórnmálasögu Hitlers, hlið við hlið í bókaskáp. Þótti mér það afar fyndið.
Þið skulið þó ekki halda að ég líki þeim hér saman á nokkurn hátt. Fullyrði þó ekkert um meiningar eigandans.
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 6, 2004 – 21:10
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Einn vinnufélaga minna, hvern ég nafngreini ekki, kom mér á óvart í byrjun sumars. Samræður okkar hófust svo, sem fyrir neðan er ritað:
Kauði: „Veistu hvern ég þoli ekki?“
Ég: „Nei, hvers vegna ætti ég að vita það?“
Kauði: „Ég veit það ekki, en veistu hvern ég þoli EKKI?“
Ég: „Nei.“
Kauði: „Atla Frey Steinþórsson.“
Ég: „Hvers vegna þolirðu hann ekki?“
Kauði: [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 6, 2004 – 19:54
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í gær sá ég mjög fyndna ruslatunnu. Á henni stóð: Eingöngu fyrir atvinnusorp. Þessi tunna er fyrir Völu Matt, hugsaði ég. En að öllu gamni slepptu er ég hálf móðgaður yfir þessu öllu saman, þessari mismunun á sorpi, á ég við. Að aðeins menntuðu sorpi sé veittur aðgangur að tunnu þessari er náttúrlega fyrir neðan [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 6, 2004 – 17:18
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Einhverra hluta vegna hef ég aldrei viljað vera sá sem þrýstir á hnappinn í strætó. Aðallega kannski vegna þess að ég vil ekki vekja athygli á sjálfum mér (hvers vegna blogga ég þá? Góð spurning!), en yfirleitt hlýtur hnappsáþrýstandi óskerta athygli samferðamanna sinna nær samstundis og á hnappinn er þrýst.
Jæja, nóg um það. Keypti [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- August 5, 2004 – 23:08
- Author:
- By Arngrímur Vídalín