Monthly Archives: May 2004

Andleysi 0

Mér finnst ég eitthvað svo andlaus orðinn eftir að ég skipti um blogg. Ég get einfaldlega ekki skrifað neitt af viti. Ég veit ekki hvernig ég get náð mér upp á strik aftur. Ég neyðist örugglega til að taka mér frí frá blogginu. Þannig er nefnilega mál með vexti að ég finn alltaf nóg til [...]

Andlega þunnur 0

Ég er svona andlega þunnur í dag. Þetta mun vera skrýtið í ljósi þess að ég verð manna þynnstur að morgni nýafstaðins drykkjukvelds.

0

Björn Bjarnason er greinilega orðinn alvöru bloggari: „Fór á traktornum og fékk rabbabara hjá nágranna mínum til að setja í garðinn. Sló umhverfis húsið, en það hef ég ekki áður gert svona snemma.“
Sjiiitt!

Leiðinlegt 0

Bloggið mitt er orðið leiðinlegt eftir að það fluttist hingað. Kann ég enga útskýringu á því. Biðst þó velvirðingar á ástandinu og vona að það verði ekki til langframa.

Senn líður að hófinu 0

Já, senn líður að hófinu. Verður Dýonísos vegsamaður með ótæpilegri öl- og viskýdrykkju. Munum við Skúli taka I walk the line eftir Johnny Cash ef gítar verður fyrir hendi. Hyggst Skúli syngja. Hyggst Skúli einnig deila heimabrugguðu hvítvíni sínu með Einari Halldórssyni, ef sá síðarnefndi vill þiggja, en það er nánast bókað mál.
Ber ég fram [...]

Víkurfréttir 0

Þetta finnst mér fyndin frétt. Ekki ímynda ég mér þó að bílstjóranum sé skemmt.

Fyrir þá sem eru auðginntir 0

Ég át ekki eyrnamerg minn eins og ég sagðist hafa gert í þessari færslu.

Upphitun 0

Í gær hituðum við Alli ágætlega upp fyrir lokahófið í dag. Það var svolítið skondið, en ég sá einhvern þátt um Nick Nolte og Garey Busey var fenginn sem viðmælandi, en sumum finnst þessir menn vera tvífarar.

Amerískt 0

Þetta er eins amerískt og það verður. Sjálf staðalmynd bandarískra unglinga.

Barnaklám 0

Ég fordæmi þetta barnaklám sem viðgengst í bleyjuauglýsingum!

Eldur 0

Eftir prófið í dag fór ég til föðurhúsa minna til að gefa fiskum þess gamla að éta. Á leiðinni til baka úr Grafarholtinu varð ég var við mikinn reykjarmökk við Ingvar Helgason. Ég dreif mig þangað hið snarasta til að sjá hinar miklu eldglæringar sem fengu sjálfan Surt til að skammast sín, en varð fyrir [...]

Líkamshreingerning (ekki ber að taka bókstaflega) 0

Ah! Þetta var hressandi. Hvað var svona hressandi? Jú, það var líkamshreingerningin. Skal ég nú lýsa henni í grófum smáatriðum.
1. Ég klippti neglurnar á fingrum mér og hreinsaði burt bjakkið sem þar hafði undir sest.
2. Ég klippti tuttugu metra langar inngrónu táneglurnar á mér (já, ég er ógeðslegur), og naut vel.
3. Ég rakaði mig, og [...]

Í útvarpinu 0

Í dag sem svo oft áður hlustaði ég á útvarpið í bílnum. Tvennt stóð þar upp úr. Annars vegar var sagt frá sálfræðitilraun þar sem úrtakinu var skipað í tveggja manna hópa. Þeim fyrri var boðin tiltekin peningaupphæð og gert að ráðstafa þeirri upphæð milli sín og hins mannsins í hópnum. Mátti hann skipta peningunum [...]

Prófin búin 0

Þá eru prófin búin og senn mun ég skunda heim að dusta rykið af rakhnífnum. Órakaður sjentilmaður er ódannaður sjentilmaður.

Sumar 0

Nú fer í hönd sá tími ársins þegar allir helstu lúðar og hálfvitar landsins flatmaga hálfnaktir á götum úti. Ég viðurkenni að það er fínt að liggja í sólinni; það getur verið mjög notalegt. En að fara í sólbað í þeim yfirlýsta tilgangi að skipta um húðlit þykir mér algjörlega absúrd (já, ég sagði absúrd!).
Það [...]

Fiskikóngurinn 0

Ég las það í DV í gær (já, ég gerðist svo frægur) að fiskikóngurinn úr Fiskibúðinni Vör hefði lagt til atlögu við eiganda einhverrar annarrar fiskverslunar. Þá er skemst að minnast hinnar frægu „auglýsingaherferðar“ fiskikóngsins, en þar lét hann hin fleygu orð falla: „Það er aðeins einn fiskikóngur, og það er ég!“ Svo skellti hann [...]

Kommentamálum reddað 0

Úff! Ég gat einfaldlega ekki afborið þetta bloggerkommentakerfi svo ég setti gamla kerfið aftur inn. Sá hálgur er á að tengillinn birtist inni á næstu færslu fyrir neðan, en það ætti ekki að koma neinum úr jafnvægi. Munið bara að það er tengillinn fyrir neðan færsluna sem brúka skal.
Það er útlit fyrir að bloggið mitt [...]

Tenglamál 0

Ég bið alla sem tengja á heimasíðuna mína að tengja frekar hingað. Ég mun ekkert hreyfa við henni fyrr en ég veit hvað í ósköpunum ég get gert við hana.
En nú er kominn tími á að líta á þessa þýsku.

Raskat 0

Himmi heldur áfram að blogga. Lengi lifi Raskatið!

Prófatími og skegg 0

Senn lýkur þessari prófatörn. Eins og siðmenntaðra er siður hef ég ekkert rakað mig allan tímann, því að allir karlmenn þurfa eitthvað til að toga í á prófatíma. Typpið eitt nægir ekki. Aukinheldur er ekki eilíflega hægt að toga í þann strenginn, því líkamanum eru tilfinningaleg takmörk sett hvað blóðmjólkun getnaðarlimsins snertir.
Félagar mínir í bekknum [...]

Kommentakerfið í rugli 0

Ókei, svona skulum við hafa þetta: Þegar þið kommentið skuluð þið kommenta undir anonymous og skrifa nafnið undir kommentinu. Djöfull er ég fokkíng ósáttur við þetta andskotans djöfulsins horngrýtishelvítiskerfi!!!

Tenglamál 0

Ef einhvern skortir tengil af þessari síðu má senda mér tölvupóst eða kommenta hér fyrir neðan. Tvær ástæður geta verið ef þig skortir tengil:
1. Ég hef gleymt þér. Þá er þetta aðeins leiðréttingaratriði.
2. Mér líkar illa við þig og vil ekki tengja á þig.

Ekki par sáttur 0

Nei, ég er ekki par sáttur við frammistöðu blogger-manna og þær svínslegu aðfarir sem gjörðar hafa verið að minni ástkæru gömlu bloggsíðu. Það er víst ekkert hægt að gera fyrir hana lengur. Ég ætla ekki að þurfa að standa í því að hátéemmella allan textann svo hann verði sýnilegur!
Í dag er oss borið Blogg satans. [...]

Nýtt blogg 0

Hvernig virkar þetta sjitt? Þ þ Æ æ Ð ð.

111713494348610560 0

Ég er kominn me? nýtt blogg hér vegna ?ess a? nýja bloggerkerfi? sty?ur ekki þ æ og ð á gömlum „templeitum“!!!

111713490800842948 0

Ég er ekki sáttur!

111713487935651301 0

Blogger hefur teki? á sig nýja, og v?gast sagt vi?bjó?slega, mynd. Úrval ?eirra af „templeitum“ hefur raunar st?kka? til muna og er ?a? vel. Hins vegar minnir hi? nýja lúkk mig helst til miki? á Movable Type bloggin, en stórmunur er á ?eim og Blogger.

111713484250897235 0

Einnig hefði ég ekkert á móti því að eignast Das geographische Weltbild des späteren englischen Mittelalters mit besonderer Berücksichtigung der Vorstellungen Chaucer’s und seiner Zeitgenossen, af sömu ástæðu og mig langar í hina bókina.

111713481054325626 0

Mig langar í bókina Evangelísk-kristileg Messu-söngs- og Sálma-bók, að konunglegri tilhlutun samantekin til almennilegrar brúkunar í kirkjum og heima-húsum og útgefin af því konunglega íslenska Lands-uppfræðingar félagi. Þó ekki væri nema fyrir titil hennar.

111713477822809347 0

Síðast ég vissi vildu konur að báðar klósettseturnar skyldu settar niður, því þeim þætti það betri frágengni, og ég er alveg sammála því. Þetta er sami hlutur og t.d. að loka skápnum eftir að maður hefur sótt sér glas þangað. Það þykir mér lítil afsökun að segja alltaf að „það taki því ekki“ að ganga [...]