Fólk vill endanlega láta banna reykingar á kaffi- og veitingahúsum. Mér finnst það ekki koma neinum við, hvort reykingar séu leyfðar eða ekki, öðrum en þeim sem á viðkomandi kaffi- og/eða veitingahús. Sá sem á húsið eða leigir það ætti að fá að ráða því hvort reykingar séu þar leyfðar eður ei.
Enda hefur fólk nú [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 31, 2004 – 19:16
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
O me miserum! Stærðfræðipróf á fimmtudaginn. Fokkedífokkedífokkedífokk!!! Le matematiche del Diavolo me distruggeranno!
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 31, 2004 – 14:25
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér finnst að fólk eigi ekki að rasa um ráð fram á netinu, haldandi fram að hitt eða þetta sé rétt án nokkurs rökstuðnings. Oft er betra að setjast niður, móta hugsanirnar í setningar með röklegu orsakarsamhengi og skrifa af ró; miklu fremur en að kasta fram fúkyrðum og ragnandi með djöfulgangi, án þess að [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 30, 2004 – 20:53
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Eftir að hafa horft á alla gömlu félagana útskrifast hefur kveikt upp í mér þrá til að leggja harðar að mér, standast stúdentspróf og komast í háskóla. Eftir eitt ár mun afgangurinn útskrifast á meðan ég sit eftir, eitt ár í viðbót. Maður uppsker eins og maður sáir, og ég hef engum öðrum um að [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 30, 2004 – 20:38
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef ákveðið að hætta þessu röfli. Ef ég finn ekkert skemmtilegt að skrifa ætla ég að sleppa því. Ætli það gleðji ykkur ekki frekar en þetta þunglyndishjal.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 30, 2004 – 20:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Stundum orka minningar um betri tíma eins og hnífsstunga í bakið.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 30, 2004 – 15:20
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hvers vegna er lífið eins og það er? Sumir trúa á örlög, að þú hafir ekkert val um hvað þú gerir, því allt sé það fyrirfram ákveðið. Það er jafn þægilegt að trúa á örlög eins og það er svekkjandi: Það var fyrirfram ákveðið af einhverjum æðri mætti að þú værir þetta fokköpp sem þú [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 30, 2004 – 14:14
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér hefur verið sagt að ég ætti að fara til sálfræðings. Það er eins og að segja mér að ég heiti Arngrímur.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 30, 2004 – 13:27
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það hefur aðeins birt til. Kannski er það bara millibilsástand. Hver veit?
Heimurinn er undarlegur staður til að eyða ævinni á, sagði skáldið, og ég er ekki frá því að ég sé sammála.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 30, 2004 – 13:14
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Skorið var á lífæðar skáldsins, svo það féll í ómegin. Spurning hvenær það vaknar aftur til lífsins. Aðspurt um orsakir þjáningarinnar segir skáldið að það sé ekki spurning um hræðilegt atvik eða missir einhvers sem það átt hefir. Það er spurning um vöntun – vöntun á því eina sem skáldinu var aldreigi ætlað að eiga. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 30, 2004 – 00:31
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Stundum verður lífið svo undarlegt. Nú er svo komið fyrir mér að ég veit ekki einu sinni sjálfur hvernig mér líður eða ætti að líða.
Margt var sagt í gær sem var löngu orðið tímabært að segja og margt gerðist sem löngu var orðið tímabært að gerðist. Gærkvöldið var, fyrir mér, eins og hálfgert uppgjör. Nú [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 29, 2004 – 17:39
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Vil ég óska öllum MR-ingum sem útskrifast í dag til hamingju með ústkriftina. Þekki ég þá marga, en fæstir lesa þessa síðu. Þó tel ég það ekki tilgangslaust að óska þeim til hamingju, þó fæstir muni lesa þetta. Ef maður óskar einhverjum til hamingju, eingöngu til að sá sem óskað er til hamingju viti að [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 28, 2004 – 16:55
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér finnst alveg þrælmerkilegt að til séu hagsmunasamtök bandarískra barnaperra, sem krefjast viðurkenningar á þeim rökum að hver megi hafa sína skoðun. Ætli barnaperrar muni einhvern tíma hljóta uppreisn æru (úff, hræðileg tilhugsun!)?
Gleymið annars því sem ég skrifaði í gær. Ég ber við stundarbrjálæði.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 28, 2004 – 16:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Undanfarna tvo daga hefi ég keypt sex bækur. Hyggst ég nú telja þær upp (já, ég veit ykkur er nákvæmlega sama!): Around the World in Eighty Days og Journey to the Center of the Earth eftir Jules Verne, Selected Fairy-tales by the brothers Grimm, Carpe Jugulum eftir Terry Pratchett, Stríð og friður eftir Dostojevskí (á [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 27, 2004 – 19:51
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Tók einn nettan Halldórsson áðan. Hann var þó betri, sá sem ég tók í fyrradag.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 27, 2004 – 19:44
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Minni á smásagnakeppnina. Vinsamlegast látið mig vita með tölvupósti, þið sem viljið taka þátt.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 27, 2004 – 17:42
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Böbba: „Það er eins og blindur maður hafi slegið þetta.“
Oddur: „Já, eða heyrnarlaus!“
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 26, 2004 – 20:33
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér hefur tekist það sama og Bibba. Ég brann án þess að sólar nyti við.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 26, 2004 – 20:29
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Kominn úr vinnunni. Hafði Tóti orð á því að ég væri hvítari en allt sem hvítt er. Það er ekki rétt. Ég á nokkur handklæði sem eru hvítari en ég.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 26, 2004 – 17:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fínn vinnudagur. Ekki að ég búist við að þið hafið nokkurn áhuga á því.
Hvað sem því líður þarf ég að létta aðeins af mér. Ég þoli ekki diskóbrandara. Í öllum myndum sem eiga að gerast á áttunda áratuginum, er alltaf sami ömurlegi brandarinn, þegar ein persónan segir eitthvað á þá leiðina, að diskóið sé komið [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 25, 2004 – 17:59
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þorkell diktar hér upp fullt af „frægu“ fólki sem hann á að hafa afgreitt á blómasöluferli sínum. Þá spyr ég: Fyrst þetta fólk er svona frægt, hvers vegna hef ég aldrei heyrt um það áður? Minni hér lesendur á að ég veit allt og þekki alla sem vert er að þekkja.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 23, 2004 – 19:42
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér finnst ég vera að forheimskast. Ég er farinn að gera verulega klaufalegar stafsetningarvillur þegar ég skrifa eitthvað. Þyrfti að fara að láta líta á mig.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 23, 2004 – 19:05
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég þoli ekki þegar fólk segist vera mjög „pólitískt“. Án þess að ég fullyrði neitt um sjálfan mig, er það mín reynsla, að fólk sem segist vera pólitískt er einmitt fólkið sem ætti ekki að tjá sig um pólitík. Það á ekki að þurfa að taka það fram að maður sé „pólitískur“. Annað hvort hefur [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 23, 2004 – 01:10
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þetta er náttúrulega bara fokk’d opp!
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 22, 2004 – 20:25
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þegar ég var lítill æfði ég handbolta með Fram (ekki fara að rífast við mig um hve ömurlegt lið það nú er eða þar fram eftir götunum, því mér er svo nákvæmlega sama). Með mér í liði var maður sem hét Arnór Atlason, en honum mætti helst líkja við Kjartan Ólafsson úr Laxdælu. Arnór var [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 22, 2004 – 20:01
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Skemmtilegt þykir mér frá að segja að mér hefur hlotnast viðurnefni frá Einari, en það mun vera flautaþyrill. Þessu hafði ég ekki tekið eftir áður, en ég er handviss um að þetta muni hafa verið þarna í þó nokkurn tíma.
Viðurnefnið lýsir mér ágætlega og því finnst mér ekki úr vegi að svara í sömu mynt.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 22, 2004 – 19:56
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Djöfullinn gengur um myrka sali Ikea í Holtagörðum. Með honum í för er jafnan maðurinn með ljáinn, vígamóður og vitfirrtur, og stendur slétt á sama um þau líf er hann ófrjálsri hendi tekur af viðskiptavinum Ikea. Skrattinn hlær holum hlátri meðan hann sorterar út þá sem honum tilheyra, að loknu starfi Dauðans. Þeir kumpánar taka [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 22, 2004 – 19:00
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í vinnunni í dag afgreiddi ég konu og þroskaheftan son hennar. Hún virtist skammast sín fyrir hann. Að vísu mátti hún skammast sín, en ekki fyrir soninn, heldur fyrir sinn eigin fordómafulla ömurleika. Ég þoli ekki svona.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 22, 2004 – 18:00
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég fékk mér eitthvað svona XML dótarí fyrir bloggið mitt en ég hef ekki hugmynd um hvað það gerir. Þetta átti að vera eitthvað í sambandi við RSS-fíd en í stað þess að fá RSS fékk ég ljótari útgáfu af blogginu mínu. Svo kalla þeir þetta „user friendly“. Bah!
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 21, 2004 – 18:48
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Varúð! Þið sem hvorki hafið séð myndina né lesið söguna ættuð ekki að lesa þessa færslu.
Í stað þess að tala um það sem vel fór í myndinni ætla ég að tala um alla vitleysuna sem hefði auðveldlega mátt forðast. Mér er það vel skiljanlegt að til að gera myndir á borð við t.d. Hringadróttinssögu þarf [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 21, 2004 – 15:16
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Eftir að hafa horft á kviðuna í bíó líður mér eins og mér séu ætluð þau örlög að deyja í bardaga. Þannig líður mér raunar alltaf þegar ég horfi á hálfnakta karlmenn skylmast.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 21, 2004 – 00:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Senn skunda ég í kvikmyndahús að sjá Illionskviðu (eins og myndin hefði með réttu átt að heita). Ég ætla rétt að vona að þrætueplinu hafi ekki verið sleppt. Það er mikilvægt fyrir þá sem ekki þekkja til sögunnar að vita hvers vegna spartverjar fara í stríð við Tróju.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 20, 2004 – 16:26
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í dag dvaldi ég í sex klukkustundir á Kópavogshæli. Hvað maður gerir ekki fyrir smá pening. Á morgun er frídagurinn sem páskarnir gleymdu: Uppstigningardagur. Eins og lesendur þessa bloggs ættu að vera búnir að geta sér til fyrir löngu (borið fram a’launngu) hef ég aldrei verið neitt sérstaklega kátur, þegar mér er fyrir skipað að [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 19, 2004 – 17:00
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nei, þetta verður ekki væmið!
Áðan var ég í nauðum staddur, en fyrsta seinkoma lífs míns (þ.e. utan skóla) virtist vera í uppsiglingu. Leitaði ég á náðir ömmu minnar, sem ég hef stundum viljað setja í samhengi við þennan hérna, lánaði (já, lánaði!) mér bílinn sinn. Hvað kom fyrir? Hefur höggormurinn brugðið sér í meyjar líki? [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 18, 2004 – 23:01
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Já, og meðan ég man. Ónefndur vinnufélagi minn vill láta loka alnæmissjúklinga inni svo þeir smiti ekki annað fólk. Afstaða hans grundvallast á ástandinu í afríku. Sumt fólk er ekki í lagi.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 18, 2004 – 18:24
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Alltaf þegar mér er boðið eitthvað, t.d. í leikhús, bíó, á óperur eða tónleika, enda ég alltaf á að sjá eftir því að hafa þegið það. Einmitt núna gæti ég verið sofandi ef ekki væri fyrir brigðula „innri vekjaraklukku“ mína (hvað þá þá ytri!), þ.e. ég myndi missa af tónleikunum sem mér er boðið á [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 18, 2004 – 18:15
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ef þið kaupið ykkur einhvern tíma „vatnsþolna plástra“ er það bókað mál að þeir losna af ykkur við fyrsta handþvott. Auglýsingaskandall tuttugustu aldarinnar? Já, það getið þið bölvað ykkur upp á!
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 18, 2004 – 16:23
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá er skólanum opinberlega lokið. Ég vildi að ég gæti sagt að ég hefði komist klakklaust í gegnum þetta en eins og venjulega varð stærðfræðin mér til trafala. Endurtökupróf verður þ.a.l. mitt helsta áhyggjuefni um mánaðarmótin.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 18, 2004 – 16:18
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er að velta því fyrir mér hvort það væri ekki skemmtilegr ef ég tæki upp á því þegar ég kommenta á bloggsíðum að segja eitthvað sem kemur málinu ekkert við, t.d. ef einhver skrifaði um líkþornið sitt myndi ég segja: „Já, Wagner hefur mér löngum þótt skemmtilegt tónskáld“. Eða ef einhver skrifaði um gyllinæðina [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 17, 2004 – 17:18
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá er fyrsta vinnudeginum á spítalanum þetta sumarið lokið. Þursinn hann Tryggvi er ennþá að vinna þarna og sömuleiðis himpigimpið hann Baldur. Sá fyrrnefndi, svo ég nefni fyrsta skandal sumarsins, varð mús einni að aldurtila um nónbil. Vildi það þannig til að hann sté fæti sínum niður á greyið án þess að gæta að hvert [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 17, 2004 – 16:37
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ætli sportbílar væru jafnvinsælir ef þeir væru kallaðir íþróttabílar? Það hljómar eiginlega svo asnalega að ef þessu yrði breytt myndi líklega engum detta í hug að kaupa þá eftirleiðis. Hmm, sounds like a plan. Héðan í frá mun ég kalla þetta fyrirbæri íþróttabíla.
Annars skipar þessi dagur sér í hóp þeirra allra verstu. Veðrið er afleitt; [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 16, 2004 – 19:24
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Forseti tjáir sig ekki. Fyndin fyrirsögn.
Farfuglar fyrr á ferðinni vegna loftslagsbreytinga. Hér hélt ég að átt væri við dani. Ég set nefnilega gjarnan samasemmerki milli dana og farfugla, sbr. vandrehjem. Annað kom þó á daginn. Hvers vegna ættu loftslagsbreytingar svo sem að bitna á sólarlandaferðum dana?
Gengi krónunnar styrktist um 0,24%. Mikið er ég feginn. Ég [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 16, 2004 – 16:19
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Er Bibbi að drekka Absynth á sunnudegi?
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 16, 2004 – 15:59
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
EKKI tengja á this.is síðuna mína því hún verður ekkert notuð á næstunni og tengillinn frá henni vísar á gamla bloggið mitt. Tengið því frekar hingað, enda mun ekkert nokkurn tíma bætast við hinar tvær síðurnar.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 16, 2004 – 14:17
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég þoli ekki þegar ég lendi á popp-öpp gluggum með auglýsingum um hvernig ég geti losnað við popp-öpp glugga.
Lítið bólar á bekkjarfélögum mínum á veraldarvefnum. Gæti verið að þeir séu hættir að iðka komur sínar hingað í Bloggheima?
Vinna dauðans á morgun og út vikuna. Ikea alla næstu helgi og svo vinna dauðans alla næstu viku. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 16, 2004 – 14:00
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fyrir ykkur tungumálanerðina.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 15, 2004 – 21:01
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Og ég verð að játa að ég hef alveg ágætlega gaman að hallærislegu atriðunum. Alvarlegu atriðin eru leiðinleg. Maður tekur ekki þátt í Eurovision til að vera töff heldur til að vera asnalegur. Það er alltént mín ályktun. Ég meina, ekki getur fólk verið svona hallærislegt í alvörunni?
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 15, 2004 – 20:32
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Úkraínska atriðið var stórkostlegt og ég vona að það vinni. Írland drullaði verr á sig en maður hefði talið mögulegt og ég vona að þeir fái engin stig.
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 15, 2004 – 20:25
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég held ég hafi komist nokkuð nálægt því áðan að líða eins og óléttri konu sem ég sat í vinnunni. Á tímapunkti var ég alvarlega að hugleiða að æla ofan í ruslafötuna undir borðinu mínu svo ég gæti nú komið ógleðinni frá. Svo, eins og það væri ekki nógu slæmt að hafa magann uppi í [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- May 15, 2004 – 17:01
- Author:
- By Arngrímur Vídalín