Monthly Archives: June 2003

Viðurkenningar 0

Hér hefst nýr liður, en í lok hvers mánaðar skal bloggurum veittar viðurkenningar fyrir ákveðin afrek á ólíkum sviðum.
Bloggari júnímánaðar: Ármann Jakobsson
Framfarabloggari júnímánaðar: Steindór Grétar Jónsson
Eipari júnímánaðar: Atli Freyr Steinþórsson
Lygari júnímánaðar: Birgir Már Daníelsson
Letibloggari júnímánaðar: Elísabet Karlsdóttir
Ef einhver hefur eitthvað um þetta að segja er þeim að sjálfsögðu heimilt að tjá sig. Tæpast mun það [...]

Verðlaun 0

Verðlaun fyrir bestu smásöguna eru enn í athugun en líklegt þykir mér að valið muni standa á milli The Catcher in the Rye eða Bréf til Láru.

111533225402433205 0

Ítrekun
Vinsamlegast sendið mér e-mail á arngrimurv@hotmail.com með staðfestingu á þátttöku yðvar í smásagnakeppnina ef þið viljið taka þátt. Ah, what’s the use? Það hefur greinilega enginn áhuga á þessu.
Reglubreytingar í smásagnakeppni
Smásögur þurfa að vera a.m.k. þrjár Word síður í leturstærðinni tólf með default línubili. Sérstök leyfi verða þó veitt ef ástæða fyrir því að sögurnar [...]

111533219213010765 0

Ég virðist vera hafður að skotmarki fyrir þá sem hafa gaman að samlíkingum. Fólk sem mér hefur verið líkt við hingað til:
Tom Waits
Ron Perlman
Gunnar Þórðarson
Lionel Ritchie
Guy Pearce
Ben Affleck
Hvers vegna fólk hefur gaman að þessu mun ég aldrei komast að.

111533216093692898 0

Orðatiltækið „Cat got your tongue?“ er algjör óþverramunnsöfnuður. Réttilega íslenskað: „Reif kattarófétið úr þér tunguna svo blóðið rennur án afláts niður í kok þér?“
Ef kettir tækju upp á slíku ættu þeir varla tilkall til hins verðuga titils „vinsælasta gæludýrið“.

Rútínan 0

Skyldi maður verða hlessa? Þessi nótt virðist ætla að vera jafn fljót að líða og bölvuð helgin! Svona er þetta þegar hrukkurnar fara að koma sér fyrir og maður finnur ellina hellast yfir sig eins og hland úr næturgagni satans. Tíminn fer hreinlega að fara í sandinn! Ekki geri ég grein fyrir dagamun lengur og [...]

OK. Planið 0

Að vaka í all nótt, drekka mikið kaffi, semja gott lag, lesa lengra í Bréf til Láru og hafa samt orku til að mæta til vinnu. Já, það er ekkert grín að vera CORVVS NOCTVRNVS en einhver þarf að vera það. Hver er svo sem heilbrigðin í því að vaka heilu dagana?

111533203098377454 0

Leiðrétting á staðhæfingu Bibba á blogginu sínu: David Cobain var ekki pabbi Kurt Cobain og var svo sannarlega ekki heldur í Pink Floyd.

Smásögukeppni 0

Hefur í huga minn upp komið hugmynd um það hvernig blogg þetta geti sem skemmtilegast orðið. Í tilefni af Bókmenntasumri (eða svo hefi ég titlað sumar þetta) hef ég ákveðið að koma hér upp keppni í þeirri viðkvæmu listgrein sem smásagnagerð getur verið. Sögum ber að skila fyrir þann 20.júlí og hvet ég alla (skuli [...]

111533194080794532 0

Veðrið í dag varpar frekara ljósi á alhæfingar mínar um gæði sunnudaga, en þau tel ég engin.

111533190756924708 0

Skyldulesning fyrir hvern mann Íslenskan
Lovestar eftir Andra Snæ Magnason
Bréf til Láru eftir Þórberg Þórðarson
Englar Alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson
Á svo eftir að kynna mér Kiljan betur
Skyldulesning fyrir hvern mann Íslenskan sem og útlenskan
Hringadróttinssaga eftir J.R.R. Tolkien
Öll helstu verk Edgar Allan Poe
Öll helstu verk H.P. Lovecraft
Hvað sem er eftir Hunter S. Thompson
The Catcher in the Rye [...]

Kommentakerfið 0

Ólíkt flestum bloggurum á ég í engum vandkvæðum með íslensku stafina heldur kommentakerfið mitt. Hversu lengi á þetta blessaða k.k. mitt að vera „Closed for Maintenance“? Þessi þjónusta gengur alveg fram af manni!
Hmm, Bibbi alltaf í Absynthinu.
Annars þá hef ég verið að minnka drykkju mína talsvert án þess þó einu sinni að reyna það. Skortur [...]

Tóbaksvarnarnefnd gerir enn einn skandalinn! 0

Svo virðist sem tóbaksvarnarnefnd sé búin að ákveða það að hreinlega banna alla sölu á venjulegum sígarettum eftir áramót. Þetta gæti sumum virst sniðugt og hafa margir áreiðanlega hugsað: Já! Þá er mun ólíklegra að fólk ánetjist þessum fjára! Að sjálfsögðu er það firra að ætla sem svo. Að frátöldu því að það er alveg [...]

111533172880474010 0

Litla bróður mínum finnst Sleikir vera fallegt nafn fyrir hund. Það finnst mér aftur á móti ekki.

Gítarskóli 0

Ég gleymdi algjörlega að mæta í gítarskólann í dag. Kjáni get ég verið.

Fokking nýji blogger! 0

Þessi nýji blogger er alveg hræðilegur! Sem dæmi má taka það að þeir bjóða aðeins upp á sjö ný template en engin af þeim gömlu. þetta er náttúrulega alveg fáránlegt þar sem við sem notuðum gamla kerfið erum öll með önnur template þá er aldrei að vita hversu vel þetta fúnkerar saman. Ég hef mínar [...]

111533157726882139 0

Á æskuárum mínum
var alltaf leikið í svona kastala á skólalóðinni. Einhvern daginn er við vinirnir hugðumst gera okkur glaðar frímínútur var þar fyrir krakkaskríll sem hrópaði hástöfum þegar einhver nálgaðist kastalann: „Farið þið niður! Við viljum friður!“ Áður en ég vissi af voru vinir mínir komnir upp í kastalann og farnir að kyrja með. Þetta [...]

111533152084056810 0

Mig langar í svona.

JAY! 0

Ég er kominn með Íslenska stafi í línkasafnið þökk sé Steindóri.

Leiðindi 0

Til marks um skilningsleysi vinnufélaga minna og meintan ótrúverðugleik minn í starfi hafa þeir ávallt neitað að trúa því að ég geti orðið veikur. Eitt vil ég þeim segja, með von um að þeir lesi, að ég þjáist (já í alvöru!) vissulega af mígreni og það háir mér meir en þeir geta ímyndað sér. Það [...]

Fallegt lag: 0

A Distance There Is með Theatre of Tragedy. Alveg einstakt lag sem á sér engan líka. Eitt það fallegasta lag sem ég hef nokkru sinni heyrt. Þakkir til Fífu fyrir að kynna mig fyrir því. Í staðinn vil ég benda á lagið Glory Box með Portishead. Það er alger snilld.

1984: Vinningshafi framtíðarinnar? 0

Bibbi heldur því fram að hann hafi ferðast til framtíðarinnar og orðið gestur nr.1984 og sendi mynd því til sönnunar. Ef ske kynni að hann mæli sannleikann munum við komast að því fljótlega því ef hann vann í framtíðinni mun hann líka vinna á rauntíma, þ.e.a.s. þegar að því kemur. En upp komast svik um [...]

Hvað í fjandanum 0

er þetta? Er hægt að taka frétt alvarlega þegar myndin við greinina er tekin úr The Sims?

111533115385470307 0

Ég kveikti á sjónvarpinu áðan og sá að stöð tvö voru að sýna þá arfagóðu mynd Return of the Jedi. Skyndilega minntist ég þess að það eru þrír menn sem leika Svarthöfða: Einn sem er í búningnum, einn sem talar fyrir hann og annar sem leikur hann án grímunnar. Maðurinn sem lék hann fékk ekki [...]

Magadanskeppni Íslands 2003 0

Þangað fór ég í gærvköldi til að sjá kærustu bróður míns keppa. Keppendur voru tólf og var Helga Braga kynnir. Þegar leið á keppnina uppgötvaði ég að ég þekkti tvo keppendur til viðbótar við þann fyrrnefnda, en það voru Kristína Berman, búninga- og leikmyndahönnuður Herranætur í ár og skólasystir mín til sextán ára. Fór keppnin [...]

Einn góður 0

111533097484686084 0

1984
Að svo skrifuðu eru nákvæmlega 484 heimsóknir í verðlaunaafhendinguna og vil ég af því tilefni minna á hinar ströngu reglugerðir sem þeim fylgja. Ekki þýðir að „reloada“ síðunni aftur og aftur því ég get séð það ef þið gerið það. Ef maður númer 1983 reloadar missir hann af verðlaununum og sá næsti fær þau. Ef [...]

111533092300882614 0

Rétt áðan sá ég silfurlitaðan Honda Civic (sportbílinn) með númeraplötuna Taz. Stuttu síðar sá ég silfurlitaðan Citroen Xcara með númeraplötuna Raz. Báðir bílarnir eru svipaðir í laginu. Þetta þótti mér undravert.
Annars hóf ég (tilraun til) að kenna Silju á gítar. Vandamálið var að gítarinn hans Sigga er í hönki, en þar lá hnífurinn í kúnni [...]

111533085388689169 0

Af hverju var tannlæknirinn rekinn? Hann reif kjaft.
Annars er hér nýtæki: Að ramma einhvern inn (tekið úr ensku, to frame), að koma sökinni á einhvern annan.
Dæmi: Löggan er að handtaka Valla. Valli segir: „Það er verið að ramma mig inn!!!“
Eitt dæmi um góða nýtingu á fjármunum. Í vinnunni í dag var yfirvinna til fimm. [...]

111533081547416554 0

Hefur fólk ekkert að tala um?

17. júní 0

Að sjálfsögðu rigndi í dag. Eins og venjulega var margt að gerast niðri í bæ og að vanda var allt leiðinlegt. Nema eitt. Hin frábæra hljómsveit Dáðadrengir spiluðu á stóra sviðinu og voru alveg hreint frábærir. Þetta segi ég þó ekki eingöngu vegna þess að ég er vinur eins þeirra.
Mér til mikilla vonbrigða var Steindór [...]

Á fóninum núna: 0

Requiem eftir Mozart (borið fram Rekvíem).
Að endingu birti ég mynd af myndasögukarakter, sem ég skapaði, í nýjum búningi. Karakterinn er Náætan og Alli teiknaði:

111533050464143760 0

Don Giovanni
Í dag fór ég á Don Giovanni eftir Mozart í Borgarleikhúsinu. Var þar pabbi í einhverju því flottasta hlutverki sem um getur, en það er hlutverk sjálfs Commendatore. Þetta var alveg ótrúlega flott sýning og eiga allir sem að henni stóðu mikið hrós skilið, sérstaklega Keith Reed sem leikstýrði og lék Leporello, en án [...]

111533027003807094 0

Ég vona að ég sé ekki að móðga neinn með þessari færslu…

Í dag rigndi eins og Ödipus… 0

…og þar með er brandarinn tvístolinn. Í allan dag vann ég undir hefndarskúr skapara vor og þar dugði ekkert mögl. Eftir að hafa staðið í þeim leiðindum (það ber að athuga að leiðindi geta verið ágæt sé borgað fyrir þau) fór ég í ríkið og keypti kassa af Newcastle Brown Ale. Þá er maður vel [...]

111533016650997043 0

Stríðsæsingamaðurinn og ríkisstjórnarsleikjan hún móðir mín er á móti mínum stjórnmálaskoðunum til þess eins að vera á móti þeim. Kallar hún mig „of ungan“ og „fáfróðan sökum aldurs“ enda sé hún „miklu lífsreyndari“ en ég. Eins og aldur skipti einhverju máli í því samhengi. Ég er orðinn djöfull þreyttur á því að vera rakkaður [...]

111533010713834892 0

Annar vinnudagur liðinn, annar gítartími einnig. Það kraftaverk gerðist að mér tókst að læra það sem sett var fyrir en í næsta verkefni á ég við ramman reip að draga. Þar sem ég efast um að nokkur af lesendum þessa bloggs muni skilja hið sjúka tæknimál yfir það sem ég þarf að læra hef [...]

111533007176160661 0

Ég er að blogga í vinnunni. Það verður gaman að sjá viðbrögð hins unga verkstjóra þegar hann les þetta. Múhahahaha.

111533001552332418 0

Hér er svolítið sem allir tilvonandi hljóðfærakaupendur ættu að hafa á bak við eyrað. Það er ekkert skemmtilegra en að kaupa sér hljóðfæri =)

Bibbi Strikes Back 0

Þá er Bibbi mættur til leiks (vinnu) á ný. Hann var svo höfðinglegur að gefa mér undurfagurt sígarettuhulstur að gjöf að ég fæ ekki orðað hve þakklátur ég er. Þess fyrir utan hefur mig langað í svona í langan tíma. Ég þakka enn og aftur fyrir góða gjöf og vona að ég geti endurgoldið bráðlega. [...]

111532988404854282 0

Based on your answers, we have calculated the maximum penalty for your crimes*:
undefined
Ég er bara hreint ekki viss um hvað þetta þýðir! Ég hefði átt að fá fleiri ár en Tóta, að ég tali nú ekki um fjársektir. Slapp bara vel frá þessu.

Plöturýni-Radiohead: 0

Pablo Honey
Árið 1993 gáfu Radiohead út frumburð sinn Pablo Honey. Það sést á plötunni hversu nýir þeir voru í bransanum, þó svo að þeir hefðu spilað sem underground sveit til fjölda ára. Þeir kunnu augljóslega ekki á stúdíóið og sést það best á því hversu hrá flest lögin eru. Það er lítil heild í [...]

111532915260283789 0

Sem viðbót við síðustu færslu er hér grein um það hvernig Radiohead unnu að nýju plötunni, ef ske kynni að fleiri en ég hefðu áhuga á slíku.

Radiohead 0

Áðan (í gær skyldi ég vilja gerast tæknilegur) skruppu ég, Fífa og Steindór saman í skífuna. Þar keypti ég hina nýju Radiohead plötu Hail to the Thief, sem ég er einmitt að hlusta á núna. Eftir kaup þessi skrapp ég í partí til vinafólks bróður míns en þar var verið að fagna búferlaflutningi eins þeirra [...]

Radiohead 0

Já, það er Radiohead í kvöld. Ég hef beðið eftir þessu í tvö ár. Þetta verður yndislegt.

STÓRTÍÐINDI! 0

Nýjasti diskur Radiohead, Hail to the Thief, kemur í búðirnar á morgun. Allir aðdáendur Radiohead skuli mæta fyrir utan skífuna á miðnætti (aðfaranótt mánudags) þegar skífan opnar til að kaupa limited edition útgáfu disksins.
Matrix
Í gær fór ég á Matrix Reloaded og ég hef eftirfarandi hluti að segja um hana:
1) Hún kemst hvergi í hálfkvisti við [...]

Vonbrigði 0

Árið 2002 var eitt af þeim verri árum ævi minnar, alltént það sem ég man eftir. Það virðist vera að árið 2003 sé að sækja í sig veðrið í þeim efnum, og er það nú þegar orðið með verri árum. Smá yfirgrip af því sem hefur gerst í ár:
* Ég byrjaði árið á því að [...]

111532881593481897 0

Kominn tími til að fara að sofa.
Allt of snemmt að mínu mati, en hey. Try saying that to my boss!

111532876855369245 0

Tilvera Andrésar var alveg hreint til prýði, þó svo að ýmislegt hefði betur mátt fara. Það eina sem var til ama var skortur á geimskipi (verður lagað), örfáar klippingar (verður lagað) og hljóðið í endann á myndinni (verður einnig lagað). Annars munu tökur á minni eigin mynd (Maðurinn sem dó úr ofáti: Leikþáttur í [...]

Tilvera Andrésar 0

Ég lék í stuttmynd vinar míns fyrir nokkru (kannski svona tveimur mánuðum) og hún var tilbúin fyrir mánuði. Ég hef ennþá ekki fengið að sjá hana. Ef allt rofar til þá fæ ég að sjá hana í dag. Hér er plakatið af myndinni. Það er heldur ófrýnilegt.