Sumt fólk!
Kíkið á þetta! Gaurinn sem skrifaði þetta er ekki í lagi.
Categories: Óflokkað
Sumt fólk!
Kíkið á þetta! Gaurinn sem skrifaði þetta er ekki í lagi.
Categories: Óflokkað
Fregnir af falli Odds Ástráðssonar hafa borist mér til eyrna og þykir mér það leitt að hann muni ekki taka þátt í Gettu Betur næsta vetur.
Categories: Óflokkað
Útilega:
Við Alli, vinur minn, kíktum í smá útilegu á Þingvöllum í gær. Þegar við mættum var veðrið fínt og við reyndum að fiska eitthvað. Svo gerði hellidembu, sem varð orsök þess að við fórum á tjaldfyllerí, eins lítið og tjaldið nú var. Til þess að gera langa sögu stutta var allt á floti inni í [...]
Categories: Óflokkað
Sunbright:
Úrslitakeppni Sólbjarts (Sólbjartar samkvæmt minni bók) var háð í kvöld og voru það minn (fyrrverandi) bekkur, 4.B, á móti 5.M. Umræðuefnið var áfengi og var minn bekkur með. Eins og allt sem vel fer fór keppnin vel og er það vel. 4.B VANN!!! Þvílík snilld hefur vart sést í nokkurri ræðukeppni áður, eins og mótrök [...]
Categories: Óflokkað
Loksins loksins!
Úrslitakeppni Sólbjarts í kvöld. 4.B á móti 5.eitthvað. Að sjálfsögðu mætir maður og styður sína menn til dáða og ég efast ekki um það að þeir muni bera sigur af hólmi. Svo er annað í fréttum en er það fréttnæmt mjög. Hann Siggi vinur minn er farinn að blogga á ný, en hann hefur [...]
Categories: Óflokkað
Kallinn fallinn en ekki af baki dottinn:
Enn einn veturinn í Menntaskólanum í Reykjavík liðinn, og eins og svo oft áður hefur fólk sem ekkert lærði fallið. Ég er einn af þessu fólki. Það er reyndar ekki eins og ég hafi ekki vitað það áður en það gildir einu. Í dag var ég í annað skipti [...]
Categories: Óflokkað
Martraðir:
Þá er þriðja martröðin um að ég hafi fallið í MR komin. Kannski er það bara vegna þess að þetta er ofarlega á Baugi hjá mér núna. Kannski merkir þetta eitthvað. Ég veit það ekki, og ég er bara alls ekki viss um það hvort ég vilji vita það. En ég svaf í allan dag [...]
Categories: Óflokkað
Kominn tími til að brýna tungu mína á spjótsoddum sannleikans:
Ég er í einhverri af þeim ógeðfelldari vinnum sem möguleiki er fyrir hendi að vinna. Ekki vegna þess sem í vinnunni felst heldur vegna starfsfólksins og ég má þakka Bibba fyrir að geðheilsa mín er ekki frekar röskuð. Hér fylgir lýsing á þeim helstu afsprengjum misheppnaðrar [...]
Categories: Óflokkað
Ég var bara að koma inn úr dyrunum eftir að hafa farið með Sigga og Silju á kaffihús. Skyndilega rann upp fyrir mér að það hefur varla liður dagur undanfarnar vikur sem ég hef ekki eytt verulegum hluta af á kaffihúsi. Það er kannski ekki skrýtið í ljósi þess að Siggi er mjög duglegur við [...]
Categories: Óflokkað
Eurovisionkvöld:
Ég er alveg gífurlega þunnur. Ég fór með Alla vini mínum í Eurovisionpartí í gærkvöldi og þar draup smjör (áfengi í þessu tilviki) af hverju strái. Tvær gerðir af bollu voru fáanlegur, svo og bjórkútur. Þar gerðist ýmislegt. Gestgjafinn skaut óopnaða bjórdós með gasbyssu og sprengdi hana (Alli drakk svo úr gatinu) og fór þvínæst [...]
Categories: Óflokkað
Fokk hvað þetta er stressandi! Einkunnir birtast á miðvikudaginn og ég þarf að bíða eftir því að síminn hringi og ritari MR tilkynni mig fallinn. Ef ég fæ ekki hringingu fyrir þann tíma tel ég mig vera 25% sloppinn. Hin 75% felast þá í því að ég verð að taka endurtökupróf í Latínu og [...]
Categories: Óflokkað
Hérna er Allahornið sem gleymdist að birta í gær:
Að buffa borgarísjaka:
„Ég hef svona verið að hugsa, sökum atburða liðinna daga, hvers vegna við strákarnir þurfum að brjóta ísinn hjá ykkur stelpunum tvisvar… Mér finnst allt í lagi að við þurfum að brjóta ísinn í fyrra skiptið, en að við þurfum síðan að hringja bláedrú og [...]
Categories: Óflokkað
Fyrsti vinnudagur:
Þegar ég mætti í vinnuna í morgun var eins og ekkert hefði nokkurn tíma breyst. Það var eins og ég hefði aldrei hætt að vinna. Náttúrulega þegar maður er búinn að vinna svona lengi á sama stað fer þetta að færast yfir í einhverja rútínu. Ég HATA rútínur! Þetta var alveg ótrúlega súr dagur. [...]
Categories: Óflokkað
Dauði og Djöfull:
Vinnan hefst á morgun. Ég hata þessa vinnu. Kannski er það vegna þess að þetta verður sjötta sumarið mitt í röð þar sem ég vinn þarna. Kannski er það af öðrum ástæðum sem hér skulu ekki tilgreindar. Ég hata þessa vinnu.
En djöfull var gaman í gær! Ég er búinn að vera þunnur í [...]
Categories: Óflokkað
Lesendur bloggs þessa hafa vafalaust yppt öxlum í gær og starað í forundran á tölvuskjáinn sinn, hugsandi: Hvar er færslan? Þegar brjálæðingar eins og ég skrifa hátt í þrjár færslur á sólarhring eins og fyrir reglu verður fólki bilt við er færslur vantar fyrir einn dag og gæti fólk dregið þá ályktun að slíkur ofurbloggari [...]
Categories: Óflokkað
Latínupróf:
Dagar mínir sem MR-ingur eru taldir. Ég á níu daga eftir ólifaða sem Mr-ingur.
Categories: Óflokkað
AHAHAHAHAHAHAHAAAAA! GUH HU HUÐ MINN GÓÐUR! Ég er alveg að farast! Þannig er nebblega mál með vexti að æskuvinur minn Siggi er mjög líklega á leiðinni til New York að gerast fyrirsæta. FYRIRSÆTA?! SIGGI?! MÚHA HA HAHAHAHAAA!
Já, það er gaman að geta ennþá hlegið þrátt fyrir það að manni gangi alveg skelfilega við [...]
Categories: Óflokkað
Fokk! Hlutar af draumnum mínum eru farnir að rætast! Ég ætla bara rétt að vona að heildarmyndin rætist ekki. Þá væri illt í efni!
Categories: Óflokkað
Þriðji dagur Latínulesturs:
Úff, púff. Ég er að farast. Ef ég aðeins væri betri í Latínu =/ En svo er ekki. Ég er reyndar sáttur við skítaveðrið sem er úti af því að það heldur mér við efnið. Ég er ekkert á leiðinni út í svona veður.
Annars dreymdi mig mjög spooky draum í nótt. Hann var [...]
Categories: Óflokkað
Núna er ég að missa af „The Others“ í sjónvarpinu vegna þess að ég þarf að læra Latínu. Alltaf þegar mér býðst að sjá hana get ég það ekki og er það ástæða þess að ég hef ekki séð hana ennþá. Ég vil þakka Frikka og Frank fyrir að veita mér aðstoð sína í [...]
Categories: Óflokkað
Þar sem ég var að taka eftir smá misskilningi af hálfu Frikka vil ég benda honum á það að ég dýrka Latínu sem tungumál. Ég kallaði hana tungumál Satans vegna þess að mér gengur illa að læra hana; eins mikið og mig nú langar til að læra hana. Og þar hefur þú það.
Categories: Óflokkað
Dagur tvö af Latínulestri:
Ég er að missa vitið. Mig dreymdi í nótt að ég væri í matarboði hjá ömmu minni og að skyndilega hafi ég byrjað að tala hina fegurstu Latínu. Þetta var mikið gleðiefni að sjálfsögðu en síðan kom í ljós þegar fólk fór að spyrja mig hvað þetta þýddi allt saman, að ég [...]
Categories: Óflokkað
Die Sprache des Teufel ist zu Ende:
Þá er HELVÍTIS Þýzkunni lokið og sem betur fer! Það verður langt þangað til ég þarf að fara að spá í Þýzku aftur. Þá eru aðeins tvö próf eftir og þarf ég aðeins að læra undir annað þeirra og hefði því verið þægilegra að hafa Enskuprófið á undan. En [...]
Categories: Óflokkað
Ég vil færa mínar bestu þakkir til Tótu og Fífu. Tótu fyrir að vísa mér á svo frábærar Tamöruglósur, og Fífu fyrir að vísa mér á Egils-sögu og Snorra-Eddu glósur. Tóta, Fífa. Ég er ykkur skuldbundinn =)
Það virðist öllum finnast að þeim hafi gengið illa í Íslenskuprófinu í dag. Þetta gerir mig svolítið hræddan. [...]
Categories: Óflokkað
„Skjótt fer sólin og nær svo sem hún sé hrædd, og eigi mundi hún þá meir hvata göngunni að hún hræddist bana sinn.“
Þá er íslenskuprófið búið og tel ég mig hafa tekið það á massanum. Ef þið eruð í einhverjum alvarlegum bókmenntapælingum þá mæli ég eindregið með Snorra-Eddu en það er einhver sú magnaðasta bók [...]
Categories: Óflokkað
Þá er ég búinn að lesa íslenskuna einu sinni yfir. Ætli ég hafi tíma fyrir aðra umferð? Annars er ég á móti þessari fáránlegu staðhæfingu að vinstri grænir séu kommar. Þeir eru vissulega vinstri sinnaðir en það gerir það ekki að kommúnistum.
Veitið því athygli að ég er búinn að „öppdeita“ What’s my poison hornið [...]
Categories: Óflokkað
Þá er líffræðin búin og er ég bara nokkuð sáttur við það hvernig gekk. Það er alltaf jafn gaman að klausunni um hætturnar sem fylgja reykingum og telur Örnólfur (höfundurinn) þar með að slysatíðni reykingamanna sé meiri en hjá venjulegu fólki og telur hann greinilega að reykingar auki slysahættu þeirra sem reyki, sem er að [...]
Categories: Óflokkað
Hver sagði svo að líffræði væri ekki geðsleg:
„Sumar sækja fæðu í leifar dauðra lífvera. Þær eru rotverur, og lífshættir þeirra kallast rotlíf.“
Prófið að setja inn orðið uppvakningar í staðinn fyrir rotbakteríur:
„Rotbakteríur þrífast í leifum af líkömum dauðra lífvera, þar sem þær sundra lífrænum efnum og fá úr þeim orku til lífsstarfa sinna auk þess sem [...]
Categories: Óflokkað
Jæja, þá er helvítisdjöfulsinsandskotansdönskubrjálæðihelvítisfokkingaldarinnar BÚIÐ! Ég veit að ég er að fagna hálfri viku á eftir öllum öðrum en ég var að klára dönsku fyrir rest í dag. Um leið og ég er handviss um að ég þurfi aldrei að lyfta Babette’s Gæstebud aftur fer ég út með hana og brenni.
Annars þá hitti ég [...]
Categories: Óflokkað
Væri það ekki yndislegt ef til væri sjoppa sem héti Öfgar? Þá gæti maður sagt: „Já, ég er nú bara að fara út í Öfgar“, og það væri ógeðslega fyndið.
Categories: Óflokkað
Ágæt prentvilla í textavarpinu bls. 115 þar sem stendur að Davíð og Halldór séu að ræða um samstarf enda sé það markimið fokksins. Skemmtilegt.
Categories: Óflokkað
Oh happiness, where doth thou strike me next?
Jájájájá. Ég er svo hrottalega heppinn ungur maður með framtíðina fyrir mér og lífsgleðin frussast út úr mér líkt og stanslaust ölflæði Heiðrúnar og kátínan spriklar í hjarta mér við hvern andardrátt…
…nei.
Ég skil ekki hvernig ég fór að því en mér tókst í alvörunni að skrifa vitlaust upp [...]
Categories: Óflokkað
Vá. Tæplega tvöhundruð gestir á einum sólarhring. Greinilegt að verðlaunin hafa kynt upp í gestakomu.
Annars vil ég biðja alla þá sem kynnu að hafa móðgast við síðustu skrif mín fyrirgefningar. Það er greinilega augljóst hvað meirihlutinn vill og ég hef ekki rétt til að kalla fólk hálfvita fyrir að kjósa einhvern flokk frekar en einhvern [...]
Categories: Óflokkað
Jah, nú horfir illa við í alþingiskosningunum. Það lítur út fyrir að mínir menn séu að missa eitt þingsæti og Samfylkingin er að sækja í sig veðrið. Annars finnst mér kerfi það sem er beitt í þessum efnum alveg út úr kortinu, en kerfi það er ég tala um felst í því að þó [...]
Categories: Óflokkað
Verðlaun í boði:
Hefi ég ákveðið að gestur númer 1984 á bloggið mitt muni hljóta samnefnda bók í verðlaun. Ekki aðeins er þetta frábær bók heldur ber hún einnig fæðingarár mitt sem titil og hlýtur því að vera sérstök. Ég geri mér fulla grein fyrir því að það er langt í að svo margir muni hafa [...]
Categories: Óflokkað
GULLMOLI GÆRDAGSINS:
Silja: „Æ, Arngrímur minn, þú veist að ég myndi aldrei vilja særa þig með glerbroti!“
Hafið þið áhuga á að vita hvers vegna hún sagði þetta skuluð þið bara spyrja hana ;) Annars þá vil ég biðja bæði Silju og Sigga afsökunar á því að þau hafi þurft að fara heim fyrir mínar sakir og [...]
Categories: Óflokkað
Jæja. Planið mitt um að vaka alla nóttina kom mér í koll. Ég sofnaði klukkan átta, klukkutíma áður en prófið byrjaði! Svo vaknaði ég við upphringingu frá skólanum og var mér tilkynnt að ég skyldi nú taka á honum stóra mínum og skakklappast niður í skóla. Svo þegar ég kom í skólann var mér sagt [...]
Categories: Óflokkað
Góðir hálsar!
Á hverjum föstudegi héðan af mun hér birtast „Allahornið“ með góðfúslegu leyfi míns mæta vinar Alla. Hvort sem það eru pælingar, tilvitnanir eða teikningar, þá mun það verða birt. Góðir lesendur, ég færi ykkur:
Allahornið!
Tilvitnun vikunnar:
„Það er fátt sem að ég þoli minna en fólk sem bendir á úlnliðinn á sér [...]
Categories: Óflokkað
Einhverja þá vitlausustu grein sem ég hef lesið las ég á múrnum í dag. Þetta var grein um það hversu asnaleg lögreglan er og það hversu asnalegur hinn árlegi lögregludagur er. Þar er ýmsu haldið fram og ber þar helst að nefna að greinarhöfundur hélt því fram að lögreglan hvetji börn til að dýrka táragas [...]
Categories: Óflokkað
Á þessum degi árið 1945 lauk síðari heimsstyrjöldinni formlega í Evrópu, en hvar er heimurinn nú? Jú, á barmi þeirrar þriðju!
Categories: Óflokkað
Rise and shine lesendur! Klukkan er 08:05 að morgni og það er kominn tími til að fara að læra.
Categories: Óflokkað
Ég hef nú bætt við tóbaki vikunnar, kaffi vikunnar og lagi vikunnar hér til hliðar og er það mín einlæga von að einhverjum finnist þetta gott framtak um að koma hlutum á framfæri. Ég vil taka það fram að þó að ég mæli með tóbakstegund vikunnar þá er ég ekki að hvetja neinn til að [...]
Categories: Óflokkað
Þrjú próf búin og heil níu eftir. Það er algjör spurning hvernig mér gekk á þessu stærðfræðiprófi en ímyndir af Menntaskólanum við Sund eru farnar að ásækja mig í svefni jafnt sem vöku. Ég þarf svo sem ekki að ná stærðfræði en ég þarf að ná Latínunni og ég hef miklar áhyggjur af framtíð minni [...]
Categories: Óflokkað
Java Jampit er besta kaffi í heimi og mæli ég eindregið með því að fólk fari í Te & Kaffibúðina og kaupi sér poka, eða í hið minnsta fá sér einn bolla á staðnum. Stutt gagnrýni mín hér leiðir það í ljós að kaffið er bragðsterkt en milt í maga og það skiptir litlu [...]
Categories: Óflokkað
Stjörnuspáin mín í dag er svolítið skondin:
Travel and study are favored today, and learning along with the help of a good-looking partner is the best way to enjoy life while you absorb knowledge. The evening is especially good for romance.
Allir „good looking study partners“ eru vinsamlegast beðnir um að hringja í mig. Þið [...]
Categories: Óflokkað
Skilaboð til Sigurðar Benediktssonar: Bloggaðu drengur, bloggaðu.
Annars dreymdi mig annan draum í seríunni þar er ég fell. Ég var í dómkirkjunni ásamt öllum mínum skólafélögum og Yngvi rektor var að flytja sína árlegu ræðu í lok skólaársins. Hann virtist alveg gífurlega kátur og sagði að nær allur skólinn hefði staðið sig frábærlega og að [...]
Categories: Óflokkað
Veski hafa mér löngum þótt undarlegir gripir. Til útskýringar máli mínu fylgir saga:
Þegar ég var lítill gaf amma mér þúsundkall og var það minn fyrsti peningur. Þá fyrst var ég orðinn fullgildur þjóðfélagsþegn, handhafi hinnar sterku krónu, gjaldmiðils Íslands. En draumurinn tók skjótt enda þegar amma mín plataði mig til að kaupa mér veski svo [...]
Categories: Óflokkað
Þreytti ég próf í dag og efast ég ekki um að það próf verði mér til framdráttar hvað meðaleinkunn varðar. Próf þetta var tölvufræði og þykir mér út í hött hversu langan tíma við fengum til að inna því af hendi. Á mánudaginn er enskupróf. MÚHAHAHA! I laugh in the face of English! Ég [...]
Categories: Óflokkað
Þetta er mín þriðja færsla um þetta efni og hvet ég alla er ekki hafa lesið hinar færslurnar að gera svo. Sem fyrr var sagt virðist Snorri ekki hafa haft mikla samúð með dvergum:
„Þá stóð Þór að og vígði bálið með Mjöllni, en fyrir fótum hans rann dvergur nokkur, sá er Litur nefndur, en Þór [...]
Categories: Óflokkað
The Dante’s Inferno Test has banished you to the Sixth Level of Hell – The City of Dis!
Here is how you matched up against all the levels:
Level
Score
Purgatory (Repenting Believers)
Very Low
Level 1 – Limbo (Virtuous Non-Believers)
Moderate
Level 2 (Lustful)
High
Level 3 (Gluttonous)
Moderate
Level 4 (Prodigal and Avaricious)
High
Level 5 (Wrathful and Gloomy)
Very High
Level 6 – The City of Dis (Heretics)
Very [...]
Categories: Óflokkað